Erlent

Baráttan á réttri braut

Baráttan við alnæmi er komin á rétta braut í Suður-Afríku. Þetta segir formaður læknafélagsins þar í landi og bætir við að Íslendingar geti lagt margt að mörkum í því verkefni.

Erlent

Háttsettur al-Kaída liði felldur

Bandarísk hermálayfirvöld segjast hafa fellt háttsettan liðsmann al-Kaída í Írak í vikunni. Írakar segja almenna borgara hafa falliði með honum - því neita Bandaríkjamenn.

Erlent

Niðurrif hafið

Niðurrif kjarnorkuvinnslustöðvarinnar í Sellafield á Englandi hófst í dag. Tveir 88 metra háir vatnskæliturnar voru felldir með töluverðu sprengiefni.

Erlent

Sprengja fellir 27 hermenn í Kabúl

Tuttugu og sjö afghanskir hermenn létust og 21 slasaðist þegar kröftug sjálfsmorðssprengja sprakk í strætisvagni í Kabúl höfuðborg Afghanistan í dag. Strætisvagninn fór í tvennt við sprenginguna og vitni lýstu því hvernig lík dreyfðust í kringum brakið. Talebanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, sem er næst mannskæðasta árás í landinu síðan 2001.

Erlent

12 slasast í sprengingu á Maldíveyjum

Sprengja sprakk í Male höfuðborg Maldíveyja í Indlandshafi í dag með þeim afleiðingum að 12 ferðamenn slösuðust. Sprengingin varð nálægt mosku við almenningsgarðinn Sultan Park sem er vinsæll ferðamannastaður.

Erlent

Örstutt netsamband í Mjanmar í dag

Internetsamband var sett aftur á í skamma stund í Mjanmar í dag. Netið hefur legið niðri síðan snemma í gær og er talið að herstjórnin hafi lokað fyrir aðgang almennings af ótta við að myndir af ofbeldi gegn mótmælendum næðu augum umheimsins. Í tvo klukkutíma í dag gátu tölvunotendur skoðað innlendar vefsíður og sent tölvupóst áður en lokað var fyrir sambandið aftur.

Erlent

Ríki heims staðfesti mannréttindi fatlaðra

Hart er þrýst á ríki heims að skrifa undir og staðfesta alþjóðasamning um mannréttindi fatlaðra. Samkvæmt samningnum geta einstaklingar og hópar kært ríki til eftirlitsnefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna telji þeir á sér brotið.

Erlent

Fjármagna skóla fyrir flóttamenn í Jórdaníu

Íslendingar ætla fjármagna byggingu skóla fyrir börn íraskra flóttamanna í Jórdaníu. Þannig ætlar ríkisstjórina að hjálpa til við að linna þjáningar írösku þjóðarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi. Þar fjallaði hún meðal annars um nýlega heimsókn sína til Miðausturlanda.

Erlent

Sendifulltrúi SÞ í Mjanmar

Sérlegur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna er kominn til Mjanmar til að ræða við herforingjastjórnina þar um ástandið í landinu. Mótmæli gegn herforingjunum héldu þar áfram í morgun.

Erlent

Vill að Ólympíuleikarnir verði notaðir gegn Kína

Lönd Evrópusambandsins ættu að sniðganga ólympíuleikana í Peking árið 2008 ef Kína grípur ekki í taumana gegn ástandinu í Mjanmar. Þetta er álit Edward McMillan-Scott aðstoðarforstjóra Evrópuþingsins sem vill að Gordon Brown beiti sér í málinu.

Erlent

Þögult á götum Mjanmar

Þögult var á götum Mjanmar í morgun. Þar hefur komið til blóðugra átaka síðustu daga vegna mótmæla gegn herforingjastjórn landsins. Her- og lögreglumenn hafa tekið hart á mótmælendum síðustu þrjá daga. Ekki er vitað með vissu hve margir hafa fallið í átökunum.

Erlent

Líkamsleifar Alexei og Mariu Romanov fundnar

Rússneskir vísindamenn segja að þeir hafi borið kennsl á líkamsleifar þeirra Alexei og Mariu Romanov, elstu barna Nikulás II Rússlandskeisara. Þegar líkamsleifar Romanov fjöldskyldunnar fundust árið 1991 voru Alexei erfingi krúnunnar og Maria eldri systir hans ekki meðal hinna gröfnu. Líkamsleifar þeirra fundust í júlí s.l. við Yekateringburg.

Erlent

Fastur í skorstein eftir drykkju á Oktoberfest

Tæplega þrítugur Þjóðverji lenti í því óhappi að sitja fastur í skorstein í 12 tíma eftir að hafa fengið sér aðeins of mikið neðan í því á Oktoberfest sem nú er hafin í Munchen. "Það er kraftaverk að hann slapp með minniháttar skrámur úr þessu óhappi," segir talsmaður lögreglunnar í borginni.

Erlent

Fyrirburi dafnar vel

Kimberly Müeller fæddist 15 vikum fyrir tímann og vó þá rétt rúma mörk. Í dag - hálfu ári - síðar er hún komin heim og dafnar vel. Læknar segja að ekki komi nærri því strax í ljós hvort hún hafi hlotið varanlegan skaða.

Erlent

Blackwater í bobba

Bandarísk þingnefnd gagnrýnir harðlega starfsemi vopnaðra verktaka í Írak, sem m.a. eru sakaðir um að hafa myrt ellefu óbreytta Íraka. Um hundrað þúsund vopnaðir verktakar eru í landinu.

Erlent

Kaupa ekki skýringar herforingja

Talið er að tugir eða jafnvel um hundrað manns hafi verið felldir í mótmælum í Mjanmar síðustu daga. Japönsk yfirvöld ætla að senda fulltrúa til landsins til að rannsaka morð á japönskum fréttaljósmyndara í mótmælunum.

Erlent

Flugdólgur dæmdur í 12 mánaða fangelsi

Farþegi í Boeing 757 þotu í eigu ferðaskrifstofunnar Thomas Cook hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi eftir slagsmál við áhöfn þotunnar sem vildi ekki leyfa honum að reykja í 33 þúsund feta hæð. Stephen Robinson réðist á flugþjón í fullsetinni vélinni sem var á leið frá Antalya í Tyrklandi til Newcastle á Englandi. Áhöfnin greip til þess ráðs að handjárna manninn sem er fimmtíu og þriggja ára.

Erlent

Ásakanir um greftrun Madeleine 'fáránlegar'

Talsmaður McCann hjónanna vísar algjörlega á bug ásökunum portúgalskra fjölmiðla um að hjónin hafi grafið lík Madeleine í ferð sem þau fóru til Spánar þremur mánuðum eftir að stúlkan hvarf. Fréttir segja að portúgalska lögreglan sé nú að rannsaka tvo klukkutíma í ferðinni þar sem ekki er vitað um ferðir hjónanna og þau hefðu getað losað sig við lík stúlkunnar.

Erlent

Reykingar ökumanna á válista

Ökumenn sem reykja við akstur í Bretlandi gætu átt von á ákæru ef sannast að reykingarnar hafi haft áhrif á öryggan akstur þeirra. Nýtt ákvæði í umferðarlögum um þjóðvegi kveður á um að lögreglumenn geti handtekið ökumenn vegna þessa. Þetta er í fyrsta sinn sem reykingar komast á lista atvika sem trufla ökumenn.

Erlent

Vó aðeins 300 grömm

Foreldrar þýsku telpunnar Kimberly eru himinlifandi með það að geta loksins tekið barn sitt með sér heim af sjúkrahúsinu. Kimberly fæddist fyrir hálfu ári - þá 15 vikum fyrir tímann. Hún vó þá aðeins 300 grömm, rétt rúma 1 mörk.

Erlent

Bréfasprengjumaðurinn er hryðjuverkamaður

Umsjónamaður í breskum skóla var í dag fundinn sekur um að senda sjö bréfasprengjur og vera valdur að því að slasa átta manns. Miles Cooper 27 ára íbúi í Cambridge sendi bréfasprengjurnar á heimilisföng í Englandi og Wales fyrr á þessu ári. Fimm þeirra sprungu. Dómarinn sagði hann vera hryðjuverkamann.

Erlent

Musharraf má bjóða sig fram

Hæstiréttur Pakistans úrskurðaði í morgun að Pervez Musharraf, forseta landsins, væri heimilt að bjóða sig aftur fram til embættisins þó hann væri enn yfirmaður pakistanska hersins. Andstæðingar forsetans kærðu framboð hans á þeim forsendum að honum væri óheimilt að gegna báðum embættum.

Erlent

Concorde hlutir boðnir upp

Yfir 800 hlutir úr Concorde flugvélum verða boðnir upp í Toulouse í Frakklandi í dag. Þar á meðal eru hlutir út flugstjórnarklefa vélanna, súrefnisgrímur, lendingarhjól og farangurshurðar auk salernisskála. Uppbðið mun standa í fjóra daga og er til styrktar nýjum flugsafnisem byggt verður í borginni.

Erlent

Minnkandi atvinnuleysi í Þýskalandi

Atvinnuleysi í Þýskalandi er minna nú en það hefur verið síðastliðinn tólf ár samkvæmt tölum frá þýsku vinnumálastofnuninni. Alls voru 3,5 milljónir Þjóðverja án atvinnu í septembermánuði.

Erlent

Skjóta aftur að mótmælendum í Mjanmar

Hermenn skutu aftur að nokkur hundruð syngjandi mótmælendum í miðborg Yangon í Mjanmar í dag. Fólkið forðaði sér í skjól en engir munkar voru meðal mótmælenda. Öryggissveitir hafa lokað götum og fimm klaustrum með vegriðum og gaddavír. Þannig virðist þeim hafa tekist að halda munkunum frá. Almenningi tekst þó að koma saman í stuttan tíma áður en öryggislögreglan leysir mótmælin upp.

Erlent

Of hávær í bólinu

Kona ein í Þýskalandi var rekin af heimili sínu þar sem nágrannar hennar þóttu unaðsstunur hennar vera of háværar. Konan segist sjálf lifa heilbrigðu kynlífi og talar um ofsóknir.

Erlent

Fannst á lífi eftir átta daga í bílflaki

Kona sem saknað hafði verið í átta daga fannst á lífi í bíl á botni gils í Bandaríkjunum - á sama tíma og eiginmaður hennar var að taka lygapróf vegna hvarfsins. Lögregla fann bíl konunnar á botni gils við hraðbraut nálægt Seattle í Washington. Tanya Rider var á leið heim úr vinnu þegar hún fór út af veginum og hrapaði sjö metra niður gilið.

Erlent

Átta ára golfari með holu í höggi

Átta ára gamall enskur golfari gerði sér lítið fyrir og sló holu í höggi á golfmóti í Suffolk á Englandi í gær. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta er í þriðja skiptið sem hinn ungi gólfari nær holu í höggi.

Erlent

Loka fyrir internet í Mjanmar

Herstjórnin í Mjanmar hefur lokað fyrir aðgang almennings að interneti til að forðast að myndbrot af blóðugum aðgerðum öryggissveita gegn mótmælendum berist um heiminn. Internet kaffihúsum í höfuðborginni Rangoon og öðrum borgum landsins hefur verið lokað. Bloggarar sem nota internetið til að fá meira en fréttir ritstýrðra fréttastöðva í landinu segjast vera í vandræðum með að koma efni á bloggin.

Erlent