Erlent
Stærsta dómsátt Bandaríkjanna Stærsta dómsátt í sögu Bandaríkjanna er nú staðreynd eftir að fyrirtækið American Electric Power féllst á að eyða sem svarar til tæpum 250 milljörðum króna í uppsetingu á nýjum mengunarvarnabúnaði. Erlent 9.10.2007 08:15
Níu fallhlífastökkvarar fórust Braklítillar flugvélar fannst í morgun í Wasingtonfylki en mikil leit hefur staðið yfir aðhenni eftir að hún hvarf af radarskjám seint aðfararnótt mánudagsins. Um borð voru níu fallhlífastökkvarar og flugmaður og eru þeir allir taldir látnir. Erlent 9.10.2007 07:18
40 ár frá falli Che Guevara Á þessum degi fyrir 40 árum síðan lést byltingarleiðtoginn Ernesto Che Guevara eftir bardaga við stjórnarher Bolívíu þar sem hann var handtekinn og síðan drepinn. Þessara tímamóta er minnst víða í Suður-Ameríku og sérstaklega þó á Kúbu. Erlent 9.10.2007 07:14
Ísraelar opna á möguleikann um tvískipta Jerúsalem Tveir háttsettir stjórnmálamenn í Ísrael ræddu opinskátt í dag um möguleikann á því að Jerúsalem verði skipt í tvennt. Stjórnmálaskýrendur segja þetta gefa til kynna að von sé á stefnubreytingu Ísraela í málinu sem hingað til hafa neitað að fallast á skiptingu borgarinnar. Erlent 8.10.2007 22:56
Slapp við sekt með því að sýna fram villu í hraðamælingum lögreglu Breskur vísindamaður sem lögreglaði ætlaði að sekta fyrir of hraðan akstur var ekki á því að fallast á það og sýndi fram á að hann hafi ekki ekið of hratt. Það gerði hann með tæki sem hann hafði sjálfur hannað og reyndist mun nákvæmara en hraðamyndabél lögreglunnar. Erlent 8.10.2007 22:11
Borgarstjóri fundar með mótmælendum Ungdómshússins Stjórnendur mótmælahreyfingarinnar sem varð til þegar Ungdómshúsið í Kaupmannahöfn var rifið, hafa ákveðið að þiggja boð Ritt Bjerregård borgarstjóra um að funda með henni. Hvað eftir annað hefur komið til óeirða í Kaupmannahöfn síðan húsið var jafnað við jörðu. Erlent 8.10.2007 20:39
Bjarndýr drap mann í Svíþjóð Bjarndýr varð sextugum karlmanni að bana í grennd við bæinn Valsjöby í Svíþjóð í morgun. Íbúar í Valsjöby hafa lengi óttast að þetta myndi gerast. Lítið hefur verið um ber fyrir bjarndýrin sem þá verða hungruð og árásargjörn. Þeir segja einnig að bjarndýrum hafi fjölgað mjög á þessum slóðum undanfarin ár. Erlent 8.10.2007 20:00
Hálft barnslík fannst við Álaborg Danir eru slegnir óhug eftir að hálft barnslík fannst á byggingarlóð rétt sunnan við Álaborg. Lögreglan segja að líkið sé af nýfæddu stúlkubarni. Það var aðeins neðri hluti líkamans sem fannst. Það var fjölskylda sem var að láta aka gróðurmold inn á lóð sína, sem fann líkið. Það var í gær, en lögreglan ákvað að tilkynna ekki um fundinn fyrr en í dag í von um að finna hinn helminginn af barninu. Erlent 8.10.2007 19:40
Kalabríu mafían hreiðrar um sig í Evrópu Kalabríu mafían hefur hreiðrað um sig í Evrópu og þrífst þar vel, að sögn Ítalsks saksóknara. Það er vegna þess að í Vestur-Evrópu eru ekki til nein samræmd stefna til þess að takast á við skipulagða glæpastarfsemi. Nicola Gratteri, sem hefur verið að rannsaka morð á sex ítölum í Þýskalandi í ágúst síðastliðnum, segir að mafían sé eins og fjölþjóða fyrirtæki, með útibú í öllum heimsálfum. Erlent 8.10.2007 18:04
Fimmtán teknir af lífi í Afganistan Yfirvöld í Afganistan tóku í morgun 15 fanga af lífi en þetta eru fyrstu aftökur þar í landi í meira en þrjú ár. Ekki hafa fleiri verið teknir af lífi í Afganistan á sama degi síðan Talibanar voru hraktir frá völdum árið 2001. Erlent 8.10.2007 17:33
Herstjórnin tilnefnir samningamann fyrir Suu Kyi Herstjórnin í Búrma hefur tilnefnt Aung Kyi aðstoðarráðherra til að semja beint við Aung San Suu Kyi stjórnarandstæðing sem nú er í stofufangelsi. Aung Kyi tók við embætti aðstoðaratvinnumálaráðherra á síðasta ári. Tilnefningin kemur í kjölfar mestu mótmælaaðgerða gegn herstjórninni í áratugi. Erlent 8.10.2007 16:45
Kviðdómendur lentu í óhappi í París Rúta kviðdómenda í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu af Wales lenti í óhappi fyrir utan Ritz hótelið í París í dag. Hópur fréttamanna horfði á rútuna keyra á steypustólpa þegar hún ók upp að hótelinu með þeim afleiðingum að hvellsprakk. Ekki tók langan tíma að skipta um dekk og hópurinn gat haldið áfram að fara yfir síðustu stundirnar í lífi prinsessunnar og ástmanns hennar Dodi Fayed. Erlent 8.10.2007 16:11
Anda léttar Hæstiréttur á Spáni hefur staðfest bann við því að að vængstífðum öndum sé fleygt í sjóinn í bænum Sagunto, þar sem drukknir veislugestir berjast um þær. Árlega hafa hundruð manna safnast saman í bænum í ágúst, til þess að leika þennan leik. Erlent 8.10.2007 15:57
Bretar fækka herliði í Írak um helming Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands tilkynnti í neðri málstofu breska þingsins í dag að breskum hermönnum í Írak yrði fækkað úr 5.500 í 2.500 fyrir næsta vor. Hann tekur fulla ábyrgð á vangaveltum um kosningar og neitar því að slæm útkoma skoðanakannana hafi haft áhrif á ákvörðun hans um að blása ekki til kosninga. Erlent 8.10.2007 15:19
Indónesi lést úr fuglaflensu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfesti í dag að indónesísk kona frá Pekan Baru-borg á Súmötru hefði látist úr fuglaflensu. Alheimsfaraldur H5N1 fuglaflensustofninum kom upp árið 2003 í Asíu. Síðan þá hafa að minnsta kosti 202 látist úr vírusnum banvæna, þar á meðal fjöldi barna og ungmenna. Erlent 8.10.2007 14:31
Síðasti kafbáturinn fundinn Kafarar hafa fundið flakið af síðasta kafbátnum sem Þjóðverjar sendu til Noregs í síðari heimsstyrjöldinni. Það var rétt undir lok stríðsins og talið er að Horden í Noregi hafi verið áfangastaður bátsins. Breskar Mosquito sprengjuflugvélar sökktu honum austan við dönsku eyna Læsö. Erlent 8.10.2007 14:29
Ein og hálf milljón flutt frá strandhéruðum Kína Alls hefur tæp hálf önnur milljón Kínverja flúið eða verið flutt frá strandhéruðum landsins eftir að fellibylurinn Krosa gekk þar yfir í gærdag. Erlent 8.10.2007 13:24
Vilja starfsmenn Blackwater fyrir dóm Írösk stjórnvöld hafa krafist þess að vopnaðir starfsmenn verktakafyrirtækisins Blackwater verði dregnir fyrir dóm vegna morða á sautján almennum borgurum í Bagdad í síðasta mánuði. Opinber rannsókn sýni að þeir hafi ekki verið að svara árás þegar þeir hafi skotið á fólkið. Erlent 8.10.2007 13:09
Réttarrannsókn á láti Díönu prinsessu Meira en 10 árum eftir að Díana prinsessa lést í bílslysi í París hefur réttarrannsókn loks hafist á því hvað gerðist kvöldið örlagaríka þegar hún og ástmaður hennar Dodi Al Fayed létust. Erlent 8.10.2007 11:15
Ástsjúkur páfugl skemmir Lexus Breskur aðalsmaður heldur því fram að páfugl hafi valdið skemmdum upp á hálfa milljón króna á Lexus-bíl sínum með því að reyna að hafa kynmök við bílinn. Baróninn sir Benjamin Slade krafði tryggingarfélag sitt um bætur fyrir skaðann með þessari útskýringu á skemmdunum. Erlent 8.10.2007 11:07
Segist vita hver myrti Politkovskaju Ritstjóri á rússneska blaðinu Novaja Gazeta segist vita hver drap rússnesku blaðakonuna Önnu Politkovskaju. Í gær var nákvæmlega eitt ár frá því að Politkovskaja var myrt fyrir utan heimili sitt í Moskvu. Erlent 8.10.2007 09:34
Fjallagórillur í stríðsátökum í Kongó Uppreisnarmenn í Kongó hafa nú tekið yfir svæði í austurhluta landsins þar sem helmingur af fjallagórillum heimsins búa. Górillurnar eru í töluverðri útrýmingarhættu og hafa umhverfissinnar miklar áhyggjur af þróun mála. Erlent 8.10.2007 08:11
Öryggismál í skoðun eftir skemmdarverk á Monet Öryggismál á frönskum söfnum er nú til endurskoðunnar þar í landi eftir að þekkt verk á þeim hafa ítrekað verið skemmd eða þeim stolið. Síðasta dæmið um skemmdarverk á þekktu klassísku málverki átti sér stað á Musee d' Orsay safninu í gærmorgun. Erlent 8.10.2007 07:55
Interpol leitar til almennings Alþjóðalögreglan Interpol hefur sett í gang alþjóðlegt átak til að hafa upp á manni sem grunaður er að hafa sett myndir á netið sem sýna hann nauðga ungum drengjum. Erlent 8.10.2007 07:35
Lífvörður Díönu prinsessu flúinn til Írak Lífvörður Díönu prinsessu, Trevor Rees, hefur hafið störf hjá öryggisfyrirtæki sem starfar í Írak. Að sögn eiginkonu hans er það til þess að flýja áreitið sem fylgir nýrri rannsókn á dauða Díönu. Erlent 7.10.2007 23:00
Líklega ekki kosningar fyrr en eftir tvö ár Forsætisráðherra Breta liggur undir ámæli andstæðinga sinna fyrir að boða ekki til þingkosninga á þessu ári líkt og hann hafði gefið í skyn. Erlent 7.10.2007 18:50
24 slösuðust í sprengingu 24 slösuðust þegar mikil gassprenging varð í íbúð í Harlem hverfi New York borgar í gær. Erlent 7.10.2007 15:09
Drykkjuleikur kemur Bretaprins í bobba Harry Bretaprins er aftur kominn í fréttirnar á Englandi eftir að myndir sem sýna hann sjúga vodka í nefið birtust í fjölmiðlum. Erlent 7.10.2007 14:05
Öllum mótmælendum sleppt í Kaupmannahöfn Öllum mótmælendunum sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær hefur verið sleppt. Alls handtók lögreglan yfir fjögur hundruð mótmælendur í borginni í gær. Fólkið safnaðist saman við auð hús í norðvesturhluta borgarinnar og fór fram á að fá húsin í stað ungdómshússins sem rifið var á Norðurbrú síðastliðið vor. Lögreglan beitti táragasi og hundum á hópinn eftir að upp úr sauð milli hennar og mótmælendanna. Erlent 7.10.2007 10:30
Fjórir létust eftir fellibyl Að minnsta kosti fjórir létust þegar fellibylur gekk yfir Taívan í gær. Miklar rigningar fylgdu fellibylnum og fór rafmagn þúsundum heimila. Fellibylurinn stefnir nú að meginlandi Kína og óttast yfirvöld þar hann eigi eftir að valda þar miklu tjóni. Íbúum strandbæja hefur verið fyrirskipað að flytja sig innar í land. Erlent 7.10.2007 10:26