Erlent

Deilt á Obama fyrir svínaummæli

Repúblikanar í Bandaríkjunum deila nú hart á Barack Obama forsetaframbjóðanda demokrata vegna ummæla hans, sem þeir segja að hafi verið beint að Söru Palin varaforsetaefni repúblikana.

Erlent

Breskur bær tekur upp eigin gjaldmiðil

Hið svokallaða Lewes-pund hefur göngu sína á þriðjudaginn kemur og hafa þegar um 50 fyrirtæki í bænum samþykkt að taka það gott og gilt. Talsmenn Lewes-pundsins segja að þegar hefðbundnu ensku pundi sé eytt, til dæmis í stórmarkaði, hverfi það út úr samfélaginu og gagnist íbúunum ekkert eftir það.

Erlent

Eðla á vappi í Oregon

Tæplega tveggja metra löng svokölluð blettamónitor-eðla (varanus niloticus) fannst í húsagarði í bæ nokkrum í Oregon-ríki í Bandaríkjunum. Íbúi hússins var að leik í garðinum ásamt syni sínum þegar þeir feðgar komu auga á eðluna.

Erlent

Kynlíf, fíkniefni og orka

Starfsmenn bandaríska innanríkisráðuneytisins þáðu óviðeigandi gjafir frá fyrirtækjum í orkuiðnaðinum og sóttu jafnvel veislur þar sem fíkniefni voru á boðstólum auk þess að eiga í kynferðislegum samböndum við starfsfólk fyrirtækjanna.

Erlent

Bjartsýni í Simbabve

Vaxandi bjartsýni er nú um að stjórn og stjórnarandstöðu í Simbabve nái saman um myndun þjóðstjórnar. Mugabe forseti og Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar funduðu í Harare í dag. Þeir sögðu báðir að skriður hefði nú komist á viðræðurnar og að einungis ætti eftir að semja um örfá atriði.

Erlent

Pissað á skógarelda

Evrópusambandið hefur sent tvær franskar slökkviliðsvélar til Búlgaríu þar sem barist er við gríðarlega skógarelda í Rila þjóðgarðinum.

Erlent

Gæsagangur í Pyongyang

Sársoltinn almúginn í Norður-Kóreu fékk að sjá mikla skrautsýningu í gær þegar herafli landsins minntist sextíu ára afmælis ríkisins.

Erlent

Hefur borðað 23 þúsund Big Mac borgara

Bandaríkjamaðurinn Dan Gorske náði merkum áfanga í síðasta mánuði en hann hefur hesthúsað 23 þúsund Big Mac hamborgara á lífsleiðinni. Það var þann 17. maí árið 1972 sem Dan, sem er 54 ára gamall, tók þá ákvörðun að borða að minnsta kosti tvo Big Mac á dag og hann hefur að mestu staðið við það allan þann tíma. Þeir sem ekki leggja trúnað á þetta geta snúið sér til Dans því hann hefur samviskusamlega geymt hverja einustu kvittun fyrir borgurunum.

Erlent

Allt með kyrrum kjörum í Genf

Umfangsmesta vísindatilraun sögunnar hófst í morgun þegar öreindahraðall CERN vísindastofnunarinnar í Genf var gangsettur. Vísindamenn segja að engin ástæða sé til að óttast að tilraunin endi í tortímingu jarðar en hún geti hinsvegar veitt nýja innsýn í efnissamsetningu alheimsins.

Erlent

Þúsundir geðsjúkra í breskum fangageymslum

Rúmlega 11.000 manns sem eiga við geðræn vandamál að stríða hafa verið vistaðir í fangageymslum í Bretlandi og Wales síðasta árið í stað þess að vera þegar í stað fluttir á viðeigandi stofnanir eins og lög gera ráð fyrir.

Erlent

Pakkaferðir til sölu á eBay

Flugfélag í New York hefur snúið vörn í sókn í kreppunni og býður nú upp 300 flugferðir á uppboðsvefnum eBay. Það er flugfélagið JetBlue sem vekur athygli á sér á þennan nýstárlega hátt og býður nú bæði einstakar flugferðir og pakkaferðir upp á vefnum eBay.

Erlent

U-beygja hjá ríkmislögreglustjóra í Danmörku

Ríkislögreglustjóri Danmerkur tók U-beygju í þverhandarþykkri skýrslu um skipulag lögreglunnar í landinu þegar hann gjörbreytti niðurstöðu skýrslunnar rétt áður en hún var lögð fyrir danska þingið.

Erlent

Segir leynilega drápsáætlun í Írak

Bandaríski blaðamaðurinn Bob Woodward segir að minnkandi ofbeldi í Írak sé að miklu leyti að þakk leynilegum aðgerð hersins sem felist í því að þefa uppi hryðjuverkamenn og drepa þá.

Erlent