Erlent

Óttast hungursneyð í Simbabve

Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að minnka matarskammta sem hún deilir út í Simbabve vegna þess að engin viðbrögð hafi borist við ósk stofnunarinnar um 140 milljóna dollara framlag til þess að fæða hina sveltandi í landinu.

Erlent

Kjarnorkusprengja undir ísnum á Grænlandi?

Bandarísk kjarnorkusprengja er talin liggja undir ísnum á norðvesturhluta Grænlands, nærri Thule ratsjárstöðinni. Bandarísk sprengjuflugvél fórst þar fyrir fjörutíu árum. Ein fjögurra kjarnorkusprengja um borð fór í sjóinn og fannst aldrei.

Erlent

Obama vill neyðarfjárvetingu til bílaframleiðenda

Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, hefur beðið George Bush, fráfarandi forseta, um að styðja tillögu um neyðarfjárveitingu til bílaframleiðenda í Bandaríkjunum til að koma í veg fyrir gjaldþrot. Bush og Obama funduðu í Hvíta húsinu í gærkvöldi. Fundur þeirra var sá fyrsti frá forsetakosningunum fyrir viku.

Erlent

Dönsk sveitarfélög hemji afbrotaunglinga

Þau sveitarfélög í Danmörku sem standa sig ekki í stykkinu við að halda ungmennum frá glapstigu afbrota og ósæmilegs lífernis fá að finna fyrir því þegar kemur að því að úthluta fé úr ríkissjóði.

Erlent

Boða nýja hryðjuverkaárás

Fregnir berast nú af því að al Qaeda-samtökin undirbúi árás sem verði mun umfangsmeiri en hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001.

Erlent

Sex íslenskir hestar drápust á Jótlandi

Sex íslenskir hestar drápust í eldingaveðri, sem gekk yfir Norðvestur-Jótland í Danmörku í fyradag. Þetta var í Lemvig og voru hrossin í beitarhólfi, sem girt var af með rafmagnsgirðingu.

Erlent

Hross drápust í eldingaveðri

Sex íslenskir hestar drápust í miklu fárviðri við Lemvig nálægt Limfjord á Jótlandi í gær. Eigendur hrossanna voru ekki heima þegar atvikið varð, og hefur Folkebladet Lemvig eftir þeim að sýnin sem blasti við þeim við heimkomuna hafi ekki verið fögur. Hestarnir hafi allir legið dauðir á jörðinni.

Erlent

Þrengja leitina af Mladic

Yfirvöld í Serbíu þrengja nú leitina af Ratko Mladic, fyrrum hershöfðingja Bosníu-Serbíu, sem er eftirlýstur fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu fyrir framferði sitt í Bosníustríðinu á árunum 1992 til 1995.

Erlent

Ræða um hugsanlegan samstarfssamning við Rússa

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins funda í Brussel í dag og ræða hvort hefja eigi aftur viðræður um samstarfssamning við Rússa. Þeim viðræðum var frestað vegna stríðs Georgíumanna og Rússa í september.

Erlent

Fylgjast náið með Bush fram að valdaskiptum

Talið er að Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, ætli að snúa um tvö hundruð ákvörðunum George Bush, fráfarandi forseta. Þegar hann taki við embætti í janúar ætli hann meðal annars að hætta við fyrirhugaða olíuborun í Utah og veita meira opinberu fé til stofnfrumurannsókna.

Erlent

Hótar afrískum friðargæsluliðum

Laurent Nkunda, leiðtogi uppreisnarmanna í Kongó, hefur hótað leiðtogum ríkja í sunnanverðri Afríku og fer fram á að þau sendi ekki friðargæsluliða inn í landið.

Erlent

Mannskæðar árásir í Írak

Tuttugu og átta eru látnir og 68 særðir eftir röð sjálfsmorðsárása í miðborg Bagdad í morgun. Um er að ræða mannskæðustu árásir í Írak í marga mánuði.

Erlent

Mikill skortur á heimilislæknum í Danmörku

Heimilislæknar eru að verða takmörkuð auðlind í Danmörku. Nú er svo komið að hver starfandi heimilislæknir hefur að meðaltali 1.583 sjúklinga á sinni könnu og 180 þúsund Danir líða fyrir þennan skort.

Erlent

Obama og Bush funda í dag

Barack Obama, næsti forseti Bandaríkjanna, mun í dag funda með George Bush forseta í Hvíta húsinu og er heimsóknin talin eiga sér stað óvenjufljótt eftir kosningar.

Erlent