Erlent

20 ár frá uppgjöf Sovétmanna í Afganistan

Rússar minntust þess í dag að 20 ár eru liðin frá því sovétmenn drógu her sinn til baka frá Afganistan. Blómsveigar voru lagðir að minnismerki hins óþekkta hermanns í Moskvu og uppgjafarhermenn minntust látinna félaga.

Erlent

Fórnarlamba skógareldanna minnst

Ástralar minntust í dag þeirra sem létu lífið í skógareldunum í síðustu viku. Minningarathafnir voru haldnar víða en 181 lét lífið í eldunum og vel á annað þúsund heimili eyðilögðust.

Erlent

Fimmtán létu lífið í bruna í Rússlandi

Fimmtán létu lífið og sjö voru fluttir á sjúkarhús eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi í suðurhluta Rússlands í nótt. Rúmlega eitt hundrað íbúar voru í húsinu þegar eldurinn kom upp.

Erlent

Tekur ekki sæti í stjórn undir forystu Netanyahus

Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels og leiðtogi Kadimaflokksins, lýsti því yfir á fundi flokksins í dag að verði hún ekki forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn mun flokkurinn taka sér stöðu í stjórnarandstöðu. Hún útilokaði þannig að mynduð verði ríkisstjórn undir forystu Benjamins Netanyahus, leiðtoga Likudbandalagsins, með Kadimaflokkinn innanborðs.

Erlent

Efnahagslægðin verður hugsanlega dýpri

Óttast er að efnahagslægðin sem nú gengur yfir heiminn verði mun dýpri en áður hefur verið spáð. Verulega hefur dregið úr eftirspurn og neyslu á síðustu mánuðum og allt bendir til þess að framundan sé tímabil verðhjöðnunar verði ekkert að gert.

Erlent

Áhrif loftslagsbreytinga verri en áður var talið

Loftlagsbreytingar á næstu 100 árum verða meiri og á áhrifin verri en hingað til hefur verið talið að mati vísindamannsins Chris Field, sérfræðings í loftlagsmálum. Þetta kom fram í máli hans á ráðstefnu um loftlagsbreytingar í Bandaríkjunum um helgina.

Erlent

Reyndu að smygla vörum til Gaza

Breska lögreglan upplýsti í morgun að hún hefði handtekið þrjá menn á föstudaginn grunaða um að tengjast hryðjuverkastarfssemi. Mennirnir reyndu að smygla vörum með bílalest sem var á leið til Gaza strandarinnar á vegum breskra góðgerðarsamtaka.

Erlent

Samskipti Tyrkja og Ísraela versna

Undanfarnar vikur hafa samskipti Tyrkja og Ísraela verið afar stirð eða allt eftir að Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í lok janúar eftir snörp orðaskipti við Simon Peres, forseta Ísraels. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands.

Erlent

Framhjól lét undan í lendingu

Betur fór en á horfðist þegar AVRO-146 flugvél breska flugfélagsins British Airways hlekktist á í lendingu á London City flugvellinum í gær. Framhjól flugvélarinnar lét undan í lendingu með þeim afleiðingum að vélin skall á flugbrautina.

Erlent

Vongóður um áhrif björgunarpakkans

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, er vongóður um að björgunarpakki upp á tæpa 790 milljarða dollara, sem Bandaríkjaþing samþykkti í gær, muni blása nýju lífi í bandarískan efnhag.

Erlent

Erindreki Obama fundaði með Karzai

Richard Holbrooke, erindreki ríkisstjórnar Baracks Obama í Afghanistan og Pakistan, fundaði í dag með Hamid Karzai, forseta Afhganistans. Þeir ræddu um stöðu mála í landinu og framtíðarsýn Karzai. Bæði Obama og Hillary Clinton, utanríkisráðherra, hafa gagnrýnt forsetann og látið opinberlega í ljós óánægju sína með hann.

Erlent

Ísraelar útliloka vopnhlé nema Shalit verði sleppt

Ráðamenn í Ísrael hafa ekki hug á að semja um vopnahlé við Hamassamtökin nema ísraelska hermanninum Gilad Shalit verði sleppt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ehud Olmert, fráfarandi forsætisráðherra Ísraels. Að undanförnu hefur verið unnið að samkomulagi um 18 mánaða vopnahlé á svæðinu.

Erlent

Ísing orsakaði hugsanlega flugslysið í New York

Ekki er útilokað að mikil ísing hafi valdið að því bandarísk farþegavél hrapaði á íbúðarhús í New York ríki á fimmtudaginn. Flugvélin,sem var að gerðinni Bombardier Dash átta 400 skall til jarðar á íbúðarhús í úthverfi Buffaloborgar síðastliðið fimmtudagsköld með þeim afleiðingum að fimmtíu létu lífið.

Erlent

Björgunarpakki Obama samþykktur

Bandaríkjaþing samþykkti í nótt frumvarp Baracks Obama, Bandaríkjarforseta, um tæplega 790 milljarða dollara björgunarpakka fyrir efnhagslífið þar vestra.

Erlent

Brúðkaupsgestir féllu í Afganistan

Þrjátíu brúðkaupsgestir létu lífið, þar á meðal konur og börn, þegar herþotur á vegum NATO gerðu loftárásir á þorpið Ali Mardan í Afganistan í morgun.

Erlent

Ákærður fyrir íkveikju í Ástralíu

Ástralska lögreglan hefur ákært þrjátíu og níu ára mann fyrir að hafa kveikt viljandi elda í kjarrlendi í austurhluta Viktoríufylkis í Ástralíu. Sá eldur varð minnst tuttugu og einum að bana.

Erlent

Beresovskí segir Rússa hafa þvegið peninga á Íslandi

Rússneskir auðmenn hliðhollir Pútín forsætisráðherra Rússlands hafa stundað peningaþvætti á Íslandi og í reynd keypt landið með illa fengnu fé sínu. Þetta fullyrðir Boris Beresovskí, landflótta rússneskur auðmaður og svarinn óvinur Pútíns forsætisráðherra Rússlands. Íslensk stjórnvöld vísa þessu á bug.

Erlent

Starbucks tekur upp skyndikaffi

Starbucks-kaffihúsakeðjan mun frá og með næsta þriðjudegi selja skyndikaffi í bréfum til að mæta kröfum neytenda um ódýrari kaffidrykki.

Erlent

Kókaín og heróín aldrei ódýrara í Bretlandi

Kókaín og heróín hafa hríðfallið í verði í Bretlandi og eru efnin nú ódýrari en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins um stöðu fíkniefnamála og greinir skýrslan frá því að síðasta áratug hafi verð efnanna lækkað um nær helming.

Erlent

Tæplega 50 fórust í flugslysi í New York

Tæplega 50 manns sem voru um borð í farþegaflugi Continental-flugfélagsins eru látnir eftir að vél félagsins skall niður á íbúðarhús og sprakk í loft upp í úthverfi borgarinnar Buffalo í New York-ríki í nótt.

Erlent

Tsvangirai forsætisráðherra

Robert Mugabe Sim­babveforseti skipaði á miðvikudag erkikeppinaut sinn, Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra nýrrar þjóðstjórnar. Þykja þetta mikil tímamót eftir nær þrjátíu ára óslitna valdatíð Mugabe, sem einkum og sér í lagi hin síðari ár hefur einkennst af algeru geðþótta-einræði með tilheyrandi kúgun og misbeitingu valds.

Erlent

Lokaafgreiðsla þingsins í dag

Efnahagsráðstafanir Baracks Obama Bandaríkjaforseta eru að ljúka ferð sinni í gegnum Bandaríkjaþing. Lokaatkvæðagreiðsla verður væntanlega í dag og þá fer frumvarpið til forsetans til staðfestingar.

Erlent

Gefur ekki upp hug sinn strax

Avigdor Lieberman, leiðtogi ísraelska hægriflokksins Yisrael Beiteinu, sagðist hafa gert upp hug sinn varðandi það, hvort hann vilji heldur sitja í stjórn með Tzipi Livni, leiðtoga Kadima, eða Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likud. Hins vegar vill hann ekki gefa upp afstöðu sína strax.

Erlent

Fyrsti áreksturinn í geimnum

Fyrsti áreksturinn í geimnum varð á miðvikudaginn þegar bandarískur og rússneskur gervihnöttur rákust saman á ógnarhraða og splundruðust. Áreksturinn varð í um 800 kílómetra hæð yfir freðmýrum Síberíu.

Erlent

Tveir menn grunaðir um að kveikja elda í Ástralíu

Tveir menn eru í haldi lögreglu í Ástralíu, grunaðir um að hafa kveikt hluta þeirra ótalmörgu kjarrelda sem valdið hafa mikilli eyðileggingu á suðausturströnd landsins síðustu daga og orðið meira en 180 manns að bana. Slökkvilið berst enn harðvítuglega við eldana en veður er nú heldur svalara en áður. Hitinn komst upp í allt að 45 gráður dagana áður en kviknaði í.

Erlent