Erlent

Ráðuneytið of viðamikið

Karen Jespersen, ráðherra velferðarmála í Danmörku, hefur dregið sig í hlé þar sem of margir og mismunandi málaflokkar heyra undir ráðuneytið. Þetta hefur hún tilkynnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, að sögn Berlingske Tidende.

Erlent

Táragasi beitt

Lögregla beitti í gær táragasi til að dreifa grjótkösturum í liði mótmælenda, sem safnast hafa til Strassborgar við landamæri Frakklands og Þýskalands í tilefni af leiðtogafundi NATO sem þar fer nú fram.

Erlent

Lögreglan drap 13 skæruliða

Yfirvöld á Srí Lanka segja að lögreglumenn hafi ráðist gegn hópi Tamíltígra og drepið þrettán þeirra í skotbardaga sem braust út í austurhluta landsins í gær.

Erlent

Ekki fallið frá máli Króata

Dómari hjá stríðsglæpadómstólnum í Haag hefur hafnað því að falla frá máli er snýr að þremur króatískum hershöfðingjum sem eru sakaðir um að hafa myrt, ofsótt og hrakið Serba úr Króatíu árið 1995.

Erlent

Obama efnir kosningaloforð varðandi Kúbu

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hyggst efna eitt af kosningaloforðum sínum og afnema höft á fjármagnsflutningi og ferðaleyfi fjölskyldna til Kúbu. Hann mun þó ekki afnema 47 ára gamalt viðskiptabann Bandaríkjmanna. Frá þessu er greint í Wall Street Journal.

Erlent

Árásarmaðurinn sagður dáinn

Byssumaðurinn sem drap að minnsta kosti þrettán í bænum Binghamton í New York ríki í dag er sagður dáinn. Enn eru fregnir af atburðarásinni óljósar. Heimildir herma að maðurinn hafi verið einn af verki en um stund var talið að árásarmennirnir væru fleiri en tveir.

Erlent

Rasmussen gefur formlega kost á sér

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, gaf í dag formlega kost á sér í embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hann nýtur stuðnings Evrópuveldanna og Bandaríkjanna. Tyrkir eru alfarið á móti því að hann taki við embættinu og gæti það tafið ákvörðun fram á mitt sumar.

Erlent

Ekki sofa í vinnunni

Hlaðmaður hjá bandaríska flugfélaginu JetBlue vaknaði upp við vondan draum þegar hreyflar vélarinnar sem var að fara frá New York til Boston voru ræstir.

Erlent

Ekki með blæju í strætó

Danskur lagaprófessor segir að strætisvagnafyrirtæki séu í fullum rétti til að vísa frá múslimakonum sem hylja andlit sitt með blæju ef þær hafa keypt sér afsláttarkort með mynd.

Erlent

Mikil öryggisgæsla á NATO fundi

Mikil öryggisgæsla er í Strassborg í Frakklandi vegna leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem hefst þar í dag. Ástandið í Afganistan, samskiptin við Rússa og val á nýjum framkvæmdastjóra eru helstu málin á þessum sextíu ára afmælisfundi.

Erlent

Rannsakar stríðsglæpi í Gaza-stríðinu

Sameinuðu þjóðirnar hafa falið suður afríska dómaranum Richard Goldstone að rannsaka hvort ísrelskir hermenn og liðsmenn Hamas-samtakanna hafi framið stríðsglæpi í stríðinu á Gaza um áramótin.

Erlent

BBC sektað fyrir frámunalegan dónaskap

Breska fjölmiðlaeftirlitið hefur sektað BBC um 150 þúsund sterlingspund fyrir frámunalega dónaleg símtöl í einum af útvarpsþáttum stöðvarinnar. Sektin er um 26 milljónir króna.

Erlent

Madonna fær ekki að ættleiða

Dómstóll í Malawi hefur synjað poppstjörnunni Madonnu um leyfi til þess að ættleiða fjögurra ára telpu. Ríkisstjórn landsins hafði áður lýst stuðningi við söngkonuna.

Erlent

Stjórnandi kókaínhrings tekinn í Mexíkó

Lögregla í Mexíkó hefur handsamað einn af stærstu fíkniefnabarónum landsins, Vicente Carrillo Leyva, sem stjórnar hinum alræmda Juarez-eiturlyfjahring. Leyva var að skokka í almenningsgarði í Mexíkóborg þegar til hans sást og sérsveit lögreglu hafði hendur í hári hans.

Erlent

Listsköpun úr líkamsleifum

Af moldu ertu kominn, að moldu skaltu aftur verða. Eða málverki. Breska listakonan Val Thompson notar ösku sem orðið hefur til við líkbrennslu til að töfra fram hin fegurstu listaverk.

Erlent

Klám í Hvíta húsinu

Blaðamenn sem ætluðu sér að hringja í Hvíta húsið í gær og taka þátt í blaðamannafundi með Hillary Clinton utanríkisráðherra og þjóðaröryggisráðgjafanum Jim Jones fengu allt önnur svör en þeir áttu von á.

Erlent

Skyndibitastaðir reyna að glæða viðskiptin

Bandarískir skyndibitastaðir gera nú allt hvað þeir geta til að laða til sín viðskiptavini. Lækkað verð, minni og ódýrari réttir og ýmiss konar tilboð er meðal þeirrar tækni sem staðirnir beita til að glæða viðskiptin en bandarískur almenningur borðar nú í æ ríkari mæli heima hjá sér fremur en að eyða peningum í skyndibita.

Erlent

Blagojevich ákærður

Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, hefur verið ákærður fyrir 16 lögbrot, þar á meðal spillingu og fjárkúgun, en hann er auk annars grunaður um að hafa boðið öldungadeildarþingsæti Baracks Obama til sölu eftir að Obama lét af þingmennsku til að taka við embætti Bandaríkjaforseta.

Erlent

Spennan eykst vegna tilraunaskots

Enn eykst spennan milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna en fyrrnefnda ríkið undirbýr nú í óða önn tilraunaskot langdrægrar eldflaugar í óþökk Bandaríkjanna og margra nágrannaríkja sinna.

Erlent