Erlent

Græddu andlit á manneskju

Sjúkrahús í Boston hefur grætt andlit á manneskju og er talið að þetta sé önnur aðgerð þessarar tegundar sem framkvæmd er í öllum heiminum. Á alfræðiorðavefnum wikipedia kemur fram að andlitságræðslur séu enn á tilraunastigi. Þær eru hugsaðar fyrir fólk sem hefur sár í andliti vegna áfalla, bruna eða sjúkdóma.

Erlent

Á þriðja tug létu krossfesta sig á Filippseyjum

Á þriðja tug manna létu krossfesta sig á Filippseyjum í morgun til að minnast pínu frelsarans. Á meðfylgjandi myndum sést hvar Ástralinn John Michael er negldur á kross í borginni Bulacan, skammt frá Manila. Michael, sem er 33 ára, lét krossfesta sig ásamt þremur filippeyskum karlmönnum og einni konu.

Erlent

Forseti Georgíu bregst við mótmælum

Mikael Sjakasvílí, forseti Georgíu, hefur óskað eftir fundi með leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu. Fjölmenn mótmæli gegn forsetanum héldu áfram í höfuðborginni Tíblísí í gær, annan daginn í röð. Krafist er afsagnar Sjakasvílís vegna einræðistilburða. Hann er einnig gagnrýndur fyrir að hafa leitt þjóðina í styrjöld við Rússa í fyrra með hörmulegum afleiðingum. Sjakasvílís segist vilja ræða við mótmælendur en hann ætli ekki að segja af sér.

Erlent

Maersk Alabama á leið til Kenýa

Bandaríska flutningaskipið Maersk Alabama er nú á leiðinni til Kenýa eftir að sómölskum sjóræningjum mistókst að ná skipinu á sitt vald. Þeir tóku hinsvegar skipstjórann Richard Philips höndum, en samkvæmt fréttavef BBC þá bauðst hann til þess að fara með þeim gegn því að áhöfinin fengi að sigla áfram.

Erlent

Pyntingafangelsum CIA lokað

Hinum hrollvekjandi leynifangelsum sem bandaríska ríkisstjórnin starfrækti víðsvegar um hin vanþróaða heim, hefur verið lokað, samkvæmt yfirmanni bandarísku leyniþjónustunnar.Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Erlent

Svínsleg meðferð

Flest dauðsföll bandarískra hermanna í Afganistan verða þegar þeir lenda á vegasprengjum í brynvögnum sínum.

Erlent

Sagði af sér vegna glappaskots

Aðstoðarlögreglustjóri Scotland Yard í Bretlandi sagði í morgun af sér eftir glappaskot sem talið er að hafi orðið til að flýta aðgerð gegn grunuðum al-Kaída liðum í Bretlandi.

Erlent

Niðurskurður boðaður á Írlandi

Fjármálaráðherra Írlands hefur kynnt harkalegar aðgerðir til þess að koma efnahag landsins á réttan kjöl. Hann boðar bæði niðurskurð og skattahækkanir.

Erlent

Hvað er eldsneytisfærslufræðingur?

Nýstárlegum heitum yfir gamalgróin störf er ætlað að laða fólk í atvinnuleit að þeim, eftir því sem markaðsrannsóknarfyrirtækið OnePoll hefur fundið út.

Erlent

Rændu peningaflutningabíl í Slagelse

Þrír vopnaðir menn rændu peningaflutningabíl í Slagelse í Danmörku í gærkvöldi. Bíllinn beið við bakdyr stórmarkaðar en þar var verið að sækja peninga til að flytja í bankahólf.

Erlent

Obama heimsótti hermenn í Írak

Barack Obama Bandaríkjaforseti heimsótti hermenn sína í Baghdad, höfuðborg Íraks, í gær á leið sinni frá Tyrklandi og lauk þar með átta daga ferðalagi sínu sem hófst á G20-ráðstefnunni í London í síðustu viku.

Erlent

250 látnir eftir skjálftann á Ítalíu

Tvö hundruð og fimmtíu manns hafa nú fundist látnir eftir jarðskjálftann í Abruzzo-héraðinu á Mið-Ítalíu í fyrradag. Björgunarmenn héldu áfram leit í húsarústum í nótt í köldu veðri á meðan þúsundir heimilislausra höfðust við í tjaldbúðum sem komið hefur verið upp á íþróttavöllum og öðrum bersvæðum.

Erlent

Hermenn fögnuðu Obama í óvæntri heimsókn til Íraks

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, kom í dag í óvænta heimsókn til Bagdads, höfuðborgar Íraks. Bandarískir hermenn fögnuðu forseta sínum innilega við komu hans til landsins. Þetta var fyrsta heimsókn Obama til Íraks eftir að hann var kjörinn forseti.

Erlent

Óttast vansköpuð börn vegna lyfjagjafar

Tíu stúlkur sem fengu mikið af róandi lyfjum í athvarfi bresku kirkjunnar á sjöunda og áttunda áratugnum hafa fætt vansköpuð börn. Óttast er að eins fari um hundruð annarra stúlkna.

Erlent

Tala látinna komin í 207

Enn eru að finnast lík í húsarústum á Ítalíu og eru þau nú orðin yfir 200 talsins. Það er einnig búið að bjarga tugum manna og leit heldur áfram. Snarpur eftirskjálfti reið yfir í dag.

Erlent

Tveir látnir eftir skotárás í Þýskalandi

Tveir eru látnir hið minnsta eftir skotárás í dómshúsi í Þýskalandi í morgun. Talið er að byssumaðurinn sem virðist hafa skotið á fólk af handahófi hafi í kjölfarið svipt sig lífi. Ekkert er vitað að svo stöddu um ástæður árásarinnar en aðeins er um mánuður liðinn síðan sautján ára gamall drengur myrti 15 í bænum Winnenden.

Erlent

Öflugur eftirskjálfti á Ítalíu

Öflugur eftirskjálfti reið yfir fyrir stundu á ítalíu á sama svæði og varð illa úti í öflugum jarðskjálfta í fyrrinótt þar sem 180 manns létust. Eftirskjálftans varð vart í höfuðborginni Róm sem er í um 100 kílómetra fjarlægð frá upptökum skjálftans.

Erlent

Nýtt klámhneyksli í breska innanríkisráðuneytinu

Sjaldan er ein báran stök segir hið fornkveðna og það virðist rætast sem aldrei fyrr hjá Jacqui Smith innanríkisráðherra þessa dagana. Eftir að upp komst um greiðslur þeirra hjónanna fyrir klámmyndir fyrir aðeins nokkrum dögum hefur nýtt mál nú litið dagsins ljós sem snertir sjálfa heimasíðu innanríkisráðuneytisins.

Erlent

Fjögurra leitað eftir skotbardaga í Kaupmannahöfn

Fjórir menn eru eftirlýstir af lögreglunni í Kaupmannahöfn eftir að til skotbardaga kom við Hans Knudsens-torgið laust fyrir miðnætti í gærkvöldi. Vitni segja að sex til átta skotum hafi verið hleypt af og nokkrir menn hafi sést forða sér af staðnum á hlaupum. Lögregla fann tóm skothylki á vettvangi en segir ekki ljóst hvort nokkur hafi orðið fyrir skoti.

Erlent

Verja minna fé til eldflaugavarna

Fjárhagsáætlun Bandaríkjahers gerir ráð fyrir að minna fé verði varið til eldflaugavarna og dýrari varnarmála en meiru eytt í aðgerðir gegn uppreisnarmönnum í Írak og Afganistan.

Erlent

Sjóræningjar náðu bresku flutningaskipi

Sómalskir sjóræningjar á Aden-flóa náðu í gær bresku gámaflutningaskipi á sitt vald og er þar um að ræða fimmta skipið sem rænt er á innan við tveimur sólarhringum. Skipið heitir Malaspina Castle, er í eigu Breta en gert út af ítölsku flutningafyrirtæki.

Erlent

Fórnarlömb skjálftans á Ítalíu tæplega 180

Nú er ljóst að um 180 manns hafa týnt lífi í jarðskjálftanum á Ítalíu í fyrrinótt. Björgunarmenn halda áfram leit í rústum og eru þúsundir þeirra við störf á hamfarasvæðinu þar sem rigning og kuldi hamla aðgerðum þó að einhverju leyti.

Erlent

Allir vilja hjálpa

„Ég heyri í þyrlunum, björgunarsveitir héðan eru að leggja af stað til að hjálpa til á jarðskjálftasvæðinu,“ segir Fífa Larsen í samtali við Fréttablaðið. Fífa, sem búsett er í héraðinu Friuli í norðausturhluta Ítalíu, segir fólk ekki tala um annað en jarðskjálftann og fylgjast grannt með tíðindum. „Hér í Friuli vilja allir hjálpa til því fólki er enn í fersku minni hjálpsemi fólks eftir mjög harðan og mannskæðan jarðskjálfta sem hér varð á áttunda áratugnum.“

Erlent