Erlent
Þjóðarráðið vann í Suður-Afríku Afríska þjóðarráðið vinnur góðan sigur í þingkosningunum sem fram fóru í Suður-Afríku í gær. Búið er að telja áttatíu prósent atkvæða og hefur Þjóðarráðið fengið sextíu og fjögur prósent þeirra. Erlent 23.4.2009 09:57
Vrúmmm Danskir stjórnmálamenn krefjast þess nú að löggjafanum verði gert auðveldara að svipta menn ökuréttindum vegna hraðaksturs. Erlent 23.4.2009 09:54
Ökumönnum mótorhjóla bannað að hafa með sér farþega Yfirvöld í Guatemala hafa bannað ökumönnum mótorhjóla að hafa með sér farþega. Mótorhjól eru eitt helsta verkfæri glæpagengja í landinu. Erlent 22.4.2009 13:30
Skildu börnin sín eftir á pizzastað Ítalska lögreglan leitar nú að þýsku pari sem skildi þrjú börn sín eftir á pizzastað um síðustu helgi. Börnin eru átta mánaða tveggja ára og fjögurra ára. Starfsfólk veitingastaðarins höfðu samband við lögregluna eftir að foreldrarnir fóru út til þess að fá sér sígarettu og komu ekki aftur. Erlent 22.4.2009 12:46
Tamíl tígrar innikróaðir Útlit er fyrir að komið sé að endalokum Tamíl tígra á Sri Lanka. Her þeirra er innikróaður á nokkurra ferkílómetra svæði í norðurhluta landsins. Erlent 22.4.2009 12:37
Barn fann gleymda byssu og skaut sig í höfuðið Tólf ára gamall drengur í Flórída liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hann fann skammbyssu, sem foreldrar hans höfðu gleymt að þau ættu, og skaut sig í höfuðið af slysni. Byssan var í skókassa inni í skáp og hafði verið þar síðan fjölskyldan flutti fyrir nokkrum árum. Erlent 22.4.2009 08:26
Ferrari-safn í smíðum í Modena Hinir nafntoguðu sportbílar, sem bera nafn hönnuðarins Enzo Ferrari og gera það gott jafnt í Formúla 1-kappakstrinum sem á götum úti um gervallan heiminn, eru nú um það bil að fá safn reist til heiðurs sér og sögu sinni í Modena þar sem Ferrari fæddist árið 1898. Erlent 22.4.2009 08:10
Krikketáhugamenn í hungurverkfalli Hundruð vistmanna í fangelsi í indversku borginni Kolkata eru í hungurverkfalli eftir að yfirvöld neituðu þeim um sjónvarpstæki til að horfa á stórmót í krikket sem fram fer í Suður-Afríku um helgina en Indverjar senda landslið sitt á mótið. Erlent 22.4.2009 08:08
Vinnustaðaárásir vandamál í Bandaríkjunum Farið er að grípa til sérstakra aðgerða á sumum bandarískum vinnustöðum af ótta við hefndaraðgerðir fólks sem sagt hefur verið upp störfum. Erlent 22.4.2009 07:18
Herinn áfram á götum í Mexíkó Mexíkósk yfirvöld hafa ákveðið að her landsins verði í viðbragðsstöðu á götum helstu borga landsins allt til ársins 2013 til að berjast gegn fíkniefnabarónum en átök þeirra, meðal annars í borginni Ciudad Juarez, hafa kostað um 2.000 manns lífið á þessu ári. Erlent 22.4.2009 07:16
Fjöldi sjórána tvöfaldast milli ára Árásum sjóræningja á skip á hafi úti hefur fjölgað svo að nánast er um tvöföldun að ræða miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt tölum Alþjóðasiglingastofnunarinnar. Erlent 22.4.2009 07:13
Khodorkovsky ákærður á ný Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky kveðst sýkn saka í nýju dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn honum fyrir fjársvik þegar hann gegndi forstjórastöðu rússneska olíurisans Yukos. Erlent 22.4.2009 07:10
Dani á áttræðisaldri ákærður fyrir kynferðisbrot Danskur karlmaður á áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður i fjögurra vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa misnotað unga stúlku kynferðislega, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Silkeborg. Maðurinn er í einangrun og lögreglan vill ekki tjá sig um málið við fjölmiðla í Danmörku. Þó þykir ljóst að maðurinn hafi brotið gegn stúlkunni bæði áður og eftir en að hún varð 15 ára gömul. Erlent 22.4.2009 00:12
Samstaða þrátt fyrir ræðu Íransforseta Umdeild drög að lokaályktun á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma var samþykkt í dag einróma án breytinga og það þó ráðstefnunni í Genf í Sviss ljúki ekki fyrr en á föstudaginn. Lokayfirlýsingin staðfestir umdeilda yfirlýsingu af fyrri ráðstefnu sem haldin var í Durban í Suður-Afríku 2001. Erlent 21.4.2009 16:27
Sjóræningi leiddur fyrir dómara í New York Sómalski unglingurinn Abdiwali Abdiqadir Muse var í dag leiddur fyrir dómara í New York til að svara ákæru um sjórán. Muse er eini eftirlifandi sjóræninginn sem úr hópi sem tók bandaríska skipstjórann Richard Phillips í gíslingu undan strönd Sómalíu fyrr í mánuðinum eftir að sjóræningjunum mistókst að ræna flutningaskipinu Maersk Alabama. Erlent 21.4.2009 15:56
150 þúsund almennir borgarar innlyksa Uppreisnarmenn Tamíl Tígra á Srí Lanka saka stjórnarher landsins um að hafa varpað sprengjum á almenna borgara í sókn sinni í norðurhluta landsins. Stjórnvöld neita því og segja tígrana skjóta á borgara sem reyni að flýja átakasvæðið. Erlent 21.4.2009 12:28
ESB vill draga umtalsvert úr fiskveiðum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur að draga þurfi umtalsvert úr fiskveiðum á hafsvæði ESB. Þannig verði tryggt að fiskveiðar verði sjálfbærar. Fækka þurfi skipum og bátum, draga úr fjárstuðningi til greinarinnar og herða refsingar fyrir brot. Erlent 21.4.2009 12:19
Bretar draga úr hraðanum Hraðatakmarkanir á svokölluðum A-vegum í Bretlandi verða brátt færðar niður í 75 kílómetra hraða á klukkustund en það er þáttur í þeirri viðleitni Breta að fækka banaslysum í umferðinni um þriðjung. Erlent 21.4.2009 09:08
Mikil átök í Kenýa í nótt Mikil átök brutust út í Kenýa í nótt á milli íbúa í miðhluta landsins og glæpaklíku sem kallar sig Mungiki. 24 eru látnir í það minnsta og þrír alvarlegag slasaðir að því er yfirvöld í höfuðborginni Nairobi segja. Erlent 21.4.2009 08:59
CIA í lykilhlutverki við að vernda Bandaríkin Barack Obama Bandaríkjaforseti ítrekaði við starfsmenn leyniþjónustunnar CIA að stofnunin væri í lykilhlutverki við að vernda landið þegar hann heimsótti höfuðstöðvar CIA í gær. Erlent 21.4.2009 08:55
Tamíl Tígrar saka herinn um árásir á borgara Talsmenn Tamíl Tígranna á Sri Lanka ásaka stjórnarherinn um að hafa gert loftárásir á óbreytta borgara á meðan herinn sótti fram á norðurhluta eyjarinnar. Stjórnvöld neita ásökunum og segja á móti að Tígrarnir sjálfir hafi skotið á almenna borgara. Erlent 21.4.2009 08:49
Sólin óvenjuróleg Ótrúlegt en satt. Sólin hefur sjaldan eða aldrei látið jafnlítið fyrir sér fara og nú velta furðu lostnir vísindamenn því fyrir sér hvort það sé líka kreppa á sólinni. Erlent 21.4.2009 08:30
Sjóræningjar færa sig upp á skaftið Sómalskir sjóræningjar hafa sleppt tankskipinu Stolt Strenght og allri áhöfn skipsins en um borð voru 23 skipverjar. Skipinu var rænt seint á síðasta ári þegar skipið var á leið til Indlands með kemísk efni. Erlent 21.4.2009 08:21
Kínverski flotinn sýnir styrk sinn Kínverski flotinn mun sýna fram á vaxandi styrk sinn á mikilli sýningu í tilefni af 60 ára afmæli flotans. Á sýningunni munu Kívnverjar sýna herskipaflota sinn og kjarnorkukafbáta. Kínverski aðmírállinn Wu Shengli segir að sýningunni sé ætlað að sýna styrk kínverska flotans og aukið hlutverk hans við að gæta friðar í heiminum. Erlent 21.4.2009 07:38
Obama róar liðsmenn CIA Barack Obama Bandaríkjaforseti ítrekaði við starfsmenn leyniþjónustunnar CIA að stofnunin væri í lykilhlutverki við að vernda landið, þegar hann heimsótti höfuðstöðvar CIA í gær. Erlent 21.4.2009 07:37
Yfirgáfu salinn undir ræðu forseta Írans Fjölmargir sendifulltrúar gengu fyrir stundu út af fundi á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma sem haldin er í Genf í Sviss. Þetta gerðist undir ræðu Mahmouds Ahmadinejads forseta Írans. Erlent 20.4.2009 13:44
Ísraelar æfir Sameinuðu þjóðunum Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna harmar hve mörg ríki heims hafi ákveðið að sniðganga ráðstefnu um kynþáttamisrétti sem hófst í Genf í Sviss í morgun. Forseti Írans verður á ráðstefnunni og óttast margir að hann muni nota ráðstefnuna sem vettvang fyrir gyðingahatur. Erlent 20.4.2009 12:20
Flugræninginn á Jamaíku gafst upp Jamaískur karlmaður sem tók áhöfn kanadískrar farþegaflugvélar í gíslingu í Montego-flóa á Jamaíku í nótt gafst upp nú skömmu fyrir fréttir. Jamaísk yfirvöld segja manninn rétt rúmlega tvítugan og eiga við andlega erfiðleika að stríða. Maðurinn réðst um borð í flugvélina og rændi verðmætum af farþegum. Síðan sleppti hann þeim en hélt eftir sex áhafnarmeðlimum í gíslinu. Hann krafðist þess að flogið yrði með hann til Kúbu. Hann sleppti gíslunum sex nú rétt í þessu og gaf sig fram við lögreglu. Engan sakaði. Erlent 20.4.2009 12:13
Harmar að ríki sniðganga ráðstefnu SÞ Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, harmar hve mörg ríki hyggist sniðganga ráðstefnu um kynþáttamisrétti sem hefst í Sviss í dag en talið er að ráðstefnan sé fyrir fram farin í vaskinn. Erlent 20.4.2009 08:44
Tíu ár frá Columbine-morðunum Þess er nú minnst í bænum Littleton í Colorado að 10 ár eru í dag liðin síðan þeir Eric Harris og Dylan Klebold mættu í Columbine-framhaldsskólann þar í bænum gráir fyrir járnum og skutu til bana 12 samnemendur sína og einn kennara auk þess að særa 23. Erlent 20.4.2009 08:34