Erlent

Schwarzenegger lýsir yfir neyðarástandi

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, lýsti í dag yfir neyðarástandi í ríkinu vegna svínaflensunnar. Stjórnvöld neyðist til að grípa til ráðstafana til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.

Erlent

Örlagarík myndataka yfir New York

Talsmenn Hvíta hússins hafa beðist velvirðingar á því sem margir íbúar á Manhattan í New York töldu vera yfirvofandi hryðjuverkaárás þegar þota af gerðinni Boeing 747 flaug lágflug yfir borginni í gær með tvær F-16-orrustuþotur á eftir sér.

Erlent

Ný vefsíða býr fólk undir atvinnuviðtöl

Hvað myndirðu gera við 100 jólatré í júlí, hvenær máttu skrökva og ef þú værir morgunkorn, hvaða tegund af því værirðu? Varla eiga margir von á því að þurfa að finna svör við ráðgátum á borð við þessar í atvinnuviðtölum en aðstandendur vefsíðunnar glassdoor.com telja það hins vegar ákaflega líklegt.

Erlent

Sögufrægt flugskýli liggur undir skemmdum

Flugskýlið, sem hýsti sprengjuflugvélina Enola Gay, þá sem flaug með kjarnorkusprengju og varpaði henni á japönsku borgina Hiroshima í ágúst 1945, er meðal þeirra sögufrægu minja í Bandaríkjunum sem eru í hvað mestri hættu á að eyðileggjast vegna vanrækslu og slælegs viðhalds.

Erlent

Segist hafa yfirheyrt fanga í mesta bróðerni

Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur nú teflt fram einum liðsmanni sínum sem fullyrðir að hann hafi náð viðamiklum upplýsingum upp úr liðsmanni hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda án þess að beita til þess vafasamari aðferðum en að ræða við manninn um daginn og veginn.

Erlent

Er bin Laden allur?

Osama bin Laden gæti verið látinn. Þetta segir Asif Ali Zardari, forseti Pakistans, og bendir á það, máli sínu til stuðnings, að hvorki hafi sést né heyrst til al-Qaeda-leiðtogans síðan Al Jazeera-sjónvarpsstöðin sendi út hljóðupptöku af rödd hans í mars.

Erlent

Tugþúsundir tamíla innikróaðar

Stjórnvöld á Srí Lanka sögðu í gær að herinn myndi hætta þegar í stað loft- og stórskotaliðsárásum á síðustu vígi Tamíltígra. Með þessari ákvörðun var stjórnin að bregðast við miklum þrýstingi alþjóðasamfélagsins um að hlífa óbreyttum borgurum á átakasvæðinu.

Erlent

Þrír féllu í átökum við Kúrda

Skotbardagi braust út í gær á götum Istanbúl milli lögreglu og herskárra Kúrda. Bardaginn stóð í klukkustund og að honum loknum lágu þrír í valnum. Einn hinna látnu var lögreglumaður, annar Kúrdi og sá þriðji saklaus vegfarandi. Auk þess særðust átta aðrir.

Erlent

Átökin í Afganistan og Pakistan ógna stöðugleikanum

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að átökin og óróleikinn í landamærahéruðum Afganistans og Pakistans ógna stöðugleikanum í Pakistan og heimshlutanum. Vesturlönd hafa síðustu misseri haft áhyggjur af auknum umsvifum Talibana við og í Pakistan.

Erlent

Aukinn viðbúnaðar vegna svínaflensu - komin til Bretlands

Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, hefur aukið viðbúnað sinn vegna farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins í Mexíkó. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað úr þriðja stigi í það fjórða en stigin eru alls sex. Faraldurinn hefur breiðst út og hefur nú fyrsta tilfellið verið greint í Bretlandi.

Erlent

Hvað er þessi svínaflensa?

Svínaflensa er smitandi öndunarsjúkdómur sem herjar yfirleitt á svín og orsakast af týpu af inflúensuveiru. Reglulega gengur um faraldur í svínum. Margar ólíkar gerðir eru til af sjúkdómnum og sú gerð sem núna gengur á milli er svokölluð H1N1 týpan.

Erlent

Ofsóttum borgarstjóra veitt hæli í Perú

Stjórnvöld í Perú hafa veitt stjórnarandstæðingnum og borgarstjóra Maracaibo-borgar í Venesúela, Manuel Rosales, pólitískt hæli. Hann á yfir höfði sér ákæru í heimalandinu sínu vegna meintrar spillingar. Sjálfur segist Rosales vera ofsóttur af Hugo Chavez, forseta landsins, og fylgismönnum hans. Jafnframt segir hann allar ásakanir um spillingu vera tilhæfulausar.

Erlent

Markaðsfræðiprófessor skaut þrennt til bana

Lögregla í Georgia í Bandaríkjunum leitar nú að tæplega sextugum prófessor í markaðsfræði við ríkisháskólann þar, George Zinkhan, en hann er grunaður um að hafa skotið eiginkonu sína til bana á laugardaginn auk tveggja annarra.

Erlent

Farsíminn nánast líffæri hjá Bandaríkjamönnum

Þegar rætt var við rúmlega eitt þúsund Bandaríkjamenn og þeir beðnir um að gera grein fyrir því hvaða tækja og tóla þeir vildu síst vera án kenndi ýmissa grasa en forsvarsmenn Pew Research Center, sem gerði könnunina, eru sammála um það að farsíminn sé það tæki sem hafi dalað hvað minnst í vinsældum og náð að halda toppsætinu í svipuðum könnunum allar götur síðan 2006.

Erlent

Rændi verslanir og náðist á flótta

Lögregla í Kaupmannahöfn hafði hendur í hári ræningja eftir töluverðan eltingarleik á föstudaginn en maðurinn forðaði sér á bíl eftir að hafa ógnað afgreiðslumanni í verslun með hníf.

Erlent

Yfir 100 látnir úr svínaflensu í Mexíkó

Tala látinna úr svínaflensu í Mexíkó er komin upp í 103. Sóttvarnaryfirvöld hér á landi ákveða í dag hvernig brugðist verður við vá vegna flensunnar. Allir Íslendingar, sem nú eru staddir í Mexíkó, verða skoðaðir við heimkomuna en eftir því sem næst verður komist eru þeir allir við góða heilsu.

Erlent

Boða vopnahlé

Uppreisnarmenn tamil-tígra, sem barist hafa við stjórnarher Srí Lanka í norðausturhluta landsins, lýstu einhliða yfir vopnahléi í gærdag.

Erlent

Parið var orðið peningalaust

Börnin þrjú, sem þýskt par skildi eftir á veitingastað á Ítalíu fyrir viku, komu heim til Þýskalands á föstudaginn. Þau eru í umsjón móðurforeldra sinna og undir eftirliti þýskra barnaverndaryfirvalda.

Erlent

Mikill áhugi erlendra fjölmiðla

Fjölmiðlar um allan heim hafa í morgun fjallað um úrslit Alþingiskosninganna í gær. Breska ríkisútvarpið BBC segir mið- og vinstriflokka hafa unnið afgerandi sigur í kosningunum í gær. Vitnað er í formann Sjálfstæðisflokksins sem segir að flokkurinn hafi tapað í þetta sinn en muni sigra síðar.

Erlent

Fleiri greinast með svínaflensu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti í gærkvöldi yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegn svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum.

Erlent