Erlent
Aung San Suu Kyi sögð sjúk Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma (Myanmar), er í brýnni þörf fyrir læknisaðstoð í fangelsinu þar sem hún dvelur á meðan réttað er yfir henni. Þetta fullyrða samflokksmenn hennar. Erlent 30.5.2009 05:00
Fyrrum ráðherra víkur vegna útgjaldahneykslisins Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, segir að það hafi verið mistök hjá sér að láta breska þingið greiða af húsnæðisláni hans eftir að lánið var að fullu greitt upp. Hann hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri en hann hefur setið á þingi um árabil fyrir Verkamannaflokkinn. Erlent 29.5.2009 20:44
Þúsundir minntust fyrrum forseta S-Kóreu Tugir þúsunda komu saman á götum Seoul í dag og minntust Roh Moo-Hyun, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu, sem framdi sjálfsmorð fyrir rúmri viku. Forsetinn fyrrverandi var afar vel liðinn af fjölmörgum samlöndum sínum. Útför hans fór fram í dag og þar sagði Han Seung-soo, forsætisráðherra landsins, að Roh yrði meðal annars minnst fyrir að hafa barist fyrir mannréttindum og stéttlausu samfélagi. Erlent 29.5.2009 18:41
Segja Bandaríkjamenn standa að baki sprengjuárás í Íran Írönsk yfirvöld segja að Bandaríkjamenn hafi staðið að baki sprengjuárás í mosku í suð-austurhluta Írans í gærkvöldi. Minnst nítján féllu í árásinni og um sextíu særðust. Erlent 29.5.2009 12:26
„Ofurfangelsi“ í Colorado tekur hugsanlega við af Guantanamo Öryggisfangelsið í Florence í Colorado gæti orðið næsta prísund þeirra fanga sem nú dvelja í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Erlent 29.5.2009 08:11
Vítisenglar sagðir nota geðsjúka í skítverkin Vélhjólasamtökin Vítisenglar í Danmörku eru sögð beita andlega vanheilu fólki fyrir sig til að fremja gróf ofbeldisverk. Erlent 29.5.2009 07:25
Hvað á að gera við Norður-Kóreumenn? Bandarísk sendinefnd er nú á leið til Asíu til að ráðfæra sig við nokkra þjóðarleiðtoga þar, um hvað skuli eiginlega gera í málefnum Norður-Kóreumanna sem hafa allt á hornum sér þessa dagana og hóta Suður-Kóreumönnum og fleirum öllu illu. Erlent 29.5.2009 07:21
Rændu feðga dulbúnir sem pizzasendlar Ráðist var inn á heimili feðga í danska bænum Skibby laust eftir miðnætti í nótt, þeir bundnir og heimilið rænt verðmætum. Faðirinn er rúmlega fertugur en sonur hans fjögurra ára og voru ræningjarnir tveir. Erlent 29.5.2009 07:19
Bing er nýjasta leitarvél Microsoft Steve Ballmer, framkvæmdastjóri Microsoft, hleypti í gær af stokkunum tilraunaútgáfu nýrrar leitarvélar hugbúnaðarfyrirtækisins sem gengur undir nafninu Bing og er ætlað að verða eins konar keppinautur og jafnvel arftaki Google-leitarvélarinnar sem einnig er runnin undan rifjum Microsoft. Erlent 29.5.2009 07:18
Obama fundaði með Abbas í gær Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fund með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, þar sem þjóðhöfðingjarnir ræddu málefni Vesturbakkans. Erlent 29.5.2009 07:13
Eton-skólanum lokað vegna svínaflensu Hinn virti breski einkaskóli Eton verður lokaður næstu vikuna eftir að einn nemenda hans greindist með svínaflensu. Erlent 29.5.2009 07:10
Bandaríski bílarisinn GM endar í ríkiseigu Samkvæmt því sem lekið hefur út um drög að samkomulagi milli bandaríska fjármálaráðuneytisins og helstu lánardrottna bílarisans GM stefnir í að ríkið eignist yfir 70 prósent í endurreistu fyrirtæki eftir hraðgjaldþrot. Óljóst um örlög Opel. Erlent 29.5.2009 04:30
Fjögur börn sögð hafa farist Minnst fjórir létust í Hondúras í gær þegar sterkur jarðskjálfti, 7,1 á Richterkvarða, reið yfir undan ströndum Mið-Ameríkulandsins. Hús hrundu bæði í Hondúras og nágrannalandinu Belís og fólk allt til höfuðborgarinnar í Gvatemala flúði híbýli sín á náttfötunum. Erlent 29.5.2009 04:15
Fimmtán féllu í mosku í Íran Að minnsta kosti 15 manns biðu bana og meira en 50 særðust í sprengjuárás ódæðismanna á mosku í borginni Zahedan í suðausturhluta Írans í kvöld. Sprengja sprakk í moskunni þegar fjölmargir sjíta-múslimar voru þar við kvöldbænir. Erlent 28.5.2009 22:45
Vill að Ísraelar hætti við landtökubyggðir Barack Obama, Bandaríkjaforseti, ætlar að beita sér fyrir því að Ísraelar hætti við frekari framkvæmdir við landtökubyggðir á Vesturbakka Palestínu en þær eru afar umdeildar og stangast á við alþjóðalög. Obama fundaði með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í kvöld. Þar ræddu þær um leiðir til að koma á friði í heimshlutanum. Erlent 28.5.2009 21:59
Pelosi vill að Kínverjar beiti sér í málefnum N-Kóreu Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fordæmir kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna. Jafnframt hvetur hún ráðamenn í Kína til að beita áhrifum sínum og fá Norður-Kóreumenn til að láta af tilraunum sínum með skammdrægar eldflaugar. Erlent 28.5.2009 21:08
Mannskæðar sprengjuárásir í Pakistan Að minnsta kosti tíu eru látnir og hið minnsta 70 eru slasaðir eftir tvær sprengjuárásir í borginni Peshawar sem er í norðausturhluta Pakistans. Tvær sprengjur sprungu á markaði í miðbæ borgarinnar og þar er talið að sex einstaklingar hafi fallið. Á sama tíma sprengdi karlmaður með sprengjubelti sig í loft upp við starfsstöð hersins í útjaðri borgarinnar og þar munu að minnsta kosti fjórir hafa dáið. Erlent 28.5.2009 18:01
Að minnsta kosti fjórir látnir í Hondúras Nú er ljóst að fjögur börn eru látin í kjölfar jarðskjálfta úti fyrir ströndum Hondúras í Mið-Ameríku. Skjálftinn var 7,1 á Richter kvarðanum og óttast hjálparstarfsmenn á svæðinu að tala látinna eigi eftir að hækka. Erlent 28.5.2009 14:48
Öflugur skjálfti undan ströndum Hondúras Öflugur jarðskjálfti, 7,1 á Richter-kvarða reið yfir undan ströndum Hondúras í morgun. Upptök skjálftans eru um 64 kílómetra undan ströndum landsins og var hann á tiltölulega grunnu dýpi að því er landfræðistofnun Bandaríkjanna segir. Fylgst er með því hvort skjálftanum fylgi flóðbylgja. Engar fréttir hafa borist af tjóni af völdum skjálftans en hann fannst greinilega í Hondúras og í Gvatemala. Erlent 28.5.2009 10:19
Sjálfsvíg aldrei fleiri í Japan Sjálfsvígum fjölgar nú sem aldrei fyrr í Japan en rúmlega eitt hundrað manns styttu sér aldur þar í landi í apríl. Sjálfsmorðstíðni Japana hefur lengi verið ein sú hæsta í þróuðum löndum og mælist nú 24 tilfelli á hverja 100.000 íbúa landsins. Erlent 28.5.2009 08:31
Skart rappara hríðfellur í verði Harðnandi árferði gerir það að verkum að rapptónlistarmenn draga nú úr gullskreytingum sínum og bera jafnvel gerviskartgripi. Erlent 28.5.2009 08:14
Nautgripaþjófum vex fiskur um hrygg vestra Þegar hjónin Chrissy og Benny Pinckard risu úr rekkju í smábæ nokkrum í Alabama fyrr í vor og fóru á stjá kom í ljós að tvö verðlaunanaut í eigu þeirra voru horfin. Erlent 28.5.2009 08:11
Skotinn í brjóstið í Kaupmannahöfn Tuttugu og sex ára gamall maður liggur á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn eftir að hafa verið skotinn í brjóstið í Sydhavn skömmu eftir miðnætti í nótt. Erlent 28.5.2009 08:09
Felldu 34 talibana í Pakistan Hersveitir NATO létu til skarar skríða ásamt afgönskum lögreglumönnum í nótt og drápu 34 talibana í árás á þorp í suðausturhluta Pakistans. Erlent 28.5.2009 07:32
Bandaríkin nálgast jafnvægi Jafnvægi er að komast á bandarískt efnahagslíf eftir erfiðasta krepputímabil í áratugi. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði fjáröflunarsamkomu Demókrataflokksins í gær. Erlent 28.5.2009 07:30
John Yettaw í vitnastúkuna Bandaríkjamaðurinn John Yettaw, sem heimsótti stjórnarandstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi á Búrma í stofufangelsi hennar, kom fyrir rétt í gær og bar vitni í réttarhöldunum yfir henni. Erlent 28.5.2009 07:25
Vopnahlé Kóreumanna frá 1953 úr sögunni Norður-Kóreumenn slitu í dag vopnahléi sínu gagnvart Suður-Kóreu sem staðið hefur allar götur síðan Kóreustríðinu lauk árið 1953. Erlent 28.5.2009 07:23
Fundu nærri 700 kíló af kóki Franskir tollverðir lögðu hald á 684 kíló af kókaíni við reglubundið eftirlit í flutningabíl sem var að koma frá Spáni. Tollayfirvöld í Frakklandi segja að þetta sé einn stærsti fíkniefnafundur í þeirra sögu. Talið er að verðmæti fíkniefnanna nemi 4600 milljónum íslenskra króna. Tveir voru handteknir, grunaðir um að tengjast smyglinu, en ekki hefur verið upplýst um það hverjir þeir eru eða af hvaða þjóðerni. Erlent 27.5.2009 23:12
Norðmönnum barst sprengjuhótun í Kenía Norska sendiráðinu í Naírobí í Kenía barst í dag sprengjuhótun frá hreyfingu sem tengist al-Qaeda, eftir því sem kenískir fjölmiðlar greina frá. Erlent 27.5.2009 20:41
Norður-Kóreumenn hóta öllu illu Norður-Kóreumenn hóta að ráðast á nágranna sína í suðri eftir að þeir síðarnefndu ákváðu að taka þátt í því með Bandaríkjamönnum að leita í skipum á leið til Norður-Kóreu sem grunur leikur á að flytji efni eða hluti í kjarnavopn til landsins. Erlent 27.5.2009 08:47