Erlent

Ísraelar áhyggjufullir vegna yfirlýsinga Abbas

Háttsettir embættismenn í Ísrael eru áhyggjufullir vegna nýlegra yfirlýsinga Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, um að bjóða sig ekki fram til endurkjörs í forsetakosningunum sem haldnar verða í janúar næstkomandi. Þeir telja að hugsanlegt brotthvarf Abbas muni koma til með að torvelda allar friðarviðræður á svæðinu.

Erlent

Seld strax eftir fæðingu

Eins árs gömul stúlka sem talið er að læknar hafi selt strax eftir fæðingu er nú komin aftur til móður sinnar í Mexíkóborg. Læknarnir sögðu móðurinni að stúlkan hefði látist skömmu eftir fæðingu.

Erlent

Obama segir þjóðina syrgja

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, vottaði í vikulegu ávarpi sínu í dag aðstandendum fórnarlambanna í skotárásinni í herstöðinni í Fort Hood samúð sína. Hann sagði bandarísku þjóðina alla syrgja og þá bar hann lof á viðbrögð hermenn og óbreytta borgara eftir skotárásina sem komu særðum til hjálpar.

Erlent

Byssumaður á sjúkrahúsi

Nidal Malik Hasan, majór í bandaríska hernum, var fluttur á sjúkrahús strax á fimmtudagskvöld eftir að hann hafði drepið þrettán manns og sært tugi annarra í herstöðinni Fort Wood í Texas.

Erlent

Óvissa um framhaldið hætti Abbas

Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, segir það ógna friðnum geri Mahmoud Abbas alvöru úr yfirlýsingum sínum um að bjóða sig ekki fram til næsta kjörtímabils.

Erlent

Brauðmylsna stöðvaði dómsdagsvélina

Einhver dýrasta vél sem hefur verið smíðuð í vísindaskyni bilaði á dögunum eftir að mávur missti brauðmola ofan í hana. Um er að ræða háþróaða vél sem kostar þúsundi milljarða og er ætlað að endurskapa aðstæður þegar stóri hvellur varð.

Erlent

Rannsaka dularfullann hármissi bjarna

Starfsmenn í dýragarðinum í Leipzig í Þýskalandi reyna nú að átta sig á því hversvegna suðurameríska birnan Dolores er að verða sköllótt. Birnan er ein af nokkrum birnum sem hafa misst öll hárin og minnir húð þeirra frekar á hrjúfa húðina á fílum.

Erlent

Skaut sex, myrti einn og fannst heima hjá mömmu

Verkfræðingurinn Jason S. Rodriguez var handtekinn í kvöld eftir að hann ruddist inn á skrifstofu í Orlando, Flórida í Bandaríkjunum, vopnaður byssu. Hann skaut sex manneskjur, ein lést af skotsárum sínum.

Erlent

Óhjákvæmilegt að Ísraelar ráðist á Íran

Hvorki Vesturlönd né Ísrael trúa því að kjarnorkuáætlun Íraks sé friðsamleg. Síðast í dag var uppýst að Íranar væru að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda til þess að setja í eldflaugar.

Erlent

Vilja útskýringar á tilraunum Írana

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur farið fram á að írönsk yfirvöld útskýri hvernig á því stendur að vísindamenn í Íran hafi verið að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda en allt bendir til þess að svo hafi verið.

Erlent

Grunað um tvö morð í janúar

Rússneska lögreglan hefur handtekið mann og konu sem grunuð eru um aðild að skotárás í Moskvu í janúar, þegar mannréttindalögmaðurinn Stanislav Merkelov og blaðakonan Anastasia Baburova voru myrt.

Erlent

Tölurnar sagðar niðurdrepandi

„Danska hagstofan hefur komið af stað mjög niður­drepandi umræðu vegna talna um fjölda gjaldþrota og nauðungar­uppboða,“ segir í frétt danska viðskiptablaðsins Børsen í gær.

Erlent

Árás vekur óhug Breta

„Hvers konar stríð er þetta?“ spurði breska dagblaðið Daily Mail í fyrirsögn á forsíðu í gær, daginn eftir að fimm breskir hermenn voru skotnir til bana í Afganistan. Árásarmennirnir voru afganskir lögreglumenn, sem tóku upp vopn sín þegar Bretarnir voru að hita sér te.

Erlent

Enn dælt fé í efnahagslífið

Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, ákváðu báðir að halda stýrivöxtum óbreyttum í gær. Á sama tíma héldu þeir áfram að dæla fjármagni inn í hagkerfið með ýmsu móti, svo sem til að liðka fyrir útlánavexti. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í einu prósenti. Vextir Englandsbanka eru hálft prósent.

Erlent

Fort Hood: Búið að bera kennsl á morðingjann

Skotmaðurinn sem hefur verið felldur eftir að hafa myrt 12 manns og sært yfir 30 í Fort Hood herstöðinni var sjálfur yfirmaður í hernum og hét Major Hassa Malik. Hann var skotinn þegar hann sjálfur skaut á hermenn sem biðu eftir að vera skráðir í flug til Íraks eða Afganistan. Sjálfur hefur Malik, samkvæmt Fox News, gagnrýnt herinn opinberlega.

Erlent

Kengúrur kvelja Ástrala

Það hefur ekki rignt í vesturhluta Queensland í marga mánuði og gróður er allur skrælnaður. Banhungruð kengúrugreyin flykkjast því inn í bæi á nóttunni þar sem þær nærast í görðum og á umferðareyjum og hvar sem er stingandi strá að finna.

Erlent

Abbas vill hætta -mikið áfall

Mahmoud Abbas forseti palestínumanna mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningum sem haldnar verða í janúar næstkomandi, að sögn aðstoðarmanna.

Erlent

Vilja svarta kassa í bíla

Evrópusambandið íhugar að setja reglur um að svokallaðir svartir kassar skuli settir í bíla. Þeir myndu gegna svipuðu hlutverki og flugritar í flugvélum en þaðan er nafnið svarti kassinn komið.

Erlent