Erlent
Myrtur af syni sínum í Írak Þrítugur Íraki, Abdul-Halim Hameed, skaut fimmtugan föður sinn þar sem hann svaf í rúmi sínu í fyrrinótt. Ástæðan var sú að faðirin vildi ekki segja upp starfi sínu, en hann starfaði sem verktaki og þýðandi fyrir bandríska herinn í Írak. Erlent 19.6.2010 00:45
Ungur drengur lést þegar hann reyndi að bjarga bróður sínum Hinn átta ára gamli, Tyanthony Duckette, lést í dag þegar hann reyndi að bjarga sautján mánaða gömlum bróðir sínum úr brennandi húsi í Queens í New York. Erlent 18.6.2010 21:50
Blúsbræðurnir fá blessun kaþólikka Kvikmyndin Blúsbræðurnir (Blues Brothers) hefur hlotið náð og blessun Vatíkansins fyrir traust og kristileg gildi samkvæmt opinberu dagblaði Vatíkansins. Þar með er kvikmyndin komin í hóp kristilegra meistaraverka eins og The Ten Commandments, Jesus of Nazareth, og jólahugvekjunnar, It's a Wonderful Life. Erlent 18.6.2010 21:40
Rannsaka ásakanir um gróft ofbeldi breskra landamæravarða Flóttamannaaðstoð Sameinuðu Þjóðanna rannsaka nú ásakanir á hendur breskra landamæravarða um að hafa flutt 42 Íraka frá Bretlandi til Íraks með ofbeldi fyrr í vikunni. Erlent 18.6.2010 20:30
Brúðkaupsæði í Svíþjóð Sænska þjóðin bíður með öndina í hálsinum eftir morgundeginum, en þá gengur einkaþjálfarinn Daníel Westling að eiga heitkonu sína, Viktoríu Krónprinsessu. Íslensku forsetahjónin héldu utan til brúðkaupsins í morgun. Erlent 18.6.2010 12:51
Leiddur fyrir aftökusveit í Utah Bandaríkjamaðurinn Ronnie Lee Gardner var í nótt tekinn af lífi í Utah ríki. Hann var skotinn til bana af aftökusveit. Gardner var 49 ára gamall og hann hafði dvalið á dauðadeild í 25 ár fyrir að myrða lögfræðing árið 1985 þegar hann reyndi að flýja úr dómshúsi í Utah þar sem réttað var yfir honum vegna annars morðs. Hann var leiddur fyrir aftökusveit og skotinn en fimm sjálfboðaliðar úr lögreglunni framkvæmdu aftökuna. Erlent 18.6.2010 12:35
Kjarnorkuver áfram opin í Svíþjóð Sænska þingið samþykkti í nótt að heimila endurnýjun kjarnakljúfa í kjarnorkuverum í landinu. Um kúvendingu er að ræða. Erlent 18.6.2010 08:21
Hringdi í sjúkrasamlagið og frétti að hann væri dauður Breskum krabbameinssjúklingi var nýverið meinað að leita sér aðstoðar þegar hann reyndi að panta sér tíma hjá sérfræðingi. Ástæðan var sú að hann átti að vera látinn. Svo fullyrti að minnsta kosti starfsmaður breska sjúkrasamlagsins þegar fyrrverandi flutningabílstjórinn Alan Campbell ætlaði að panta sér tíma eftir að hann kenndi sér meins í hálsi. Erlent 18.6.2010 08:11
Brúðkaupið kostar um 330 milljónir Tignir gestir streyma til Stokkhólms þar sem haldið verður konunglegt brúðkaup á morgun. Viktoría krónprinsessa og einkaþjálfari hennar, Daniel Westling, hyggjast ganga í það heilaga í Dómkirkjunni, sem nýbúið er að gera lagfæringar á. Erlent 18.6.2010 08:08
Danny Boyle og Stephen Daldry stýra opnunarhátíðinni Bresku leikstjórarnir Danny Boyle og Stephen Daldry hafa verið ráðnir sem listrænir stjórnendur opnunarhátíðar Ólympíuleikanna í London 2012. Daldry var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir kvikmyndirnar Billy Elliot, The Hours og The Reader - og Boyle leikstýrði Slumdog Millionaire sem hlaut átta Óskarsverðlaun fyrir tveimur árum. Boyle segist ekki hafa getað hafnað boðinu og líti fullur tilhlökkunar til næstu tveggja ára. Daldry og Boyle fá 40 milljónir punda eða 7,6 milljarða króna til ráðstöfunar vegna opnunarhátíðarinnar. Erlent 18.6.2010 08:00
Vargöld í Mexíkó: Lögreglumenn pyntaðir og drepnir Sjö háttsettum mexíkóskum lögreglumönnum hefur að undanförnu verið rænt af heimilum sínum, þeir pyntaðir og að lokum myrtir. Glæpaklíkur bera ábyrgð á morðunum en á líkunum hafa fundist skilaboð frá klíkunum. Erlent 18.6.2010 07:47
Yfir 1800 manns látnir í Kirgistan Yfir 1800 manns hafa fallið í Kirgistan síðustu daga, þetta kemur fram á vefsíðu rússnesku fréttastofunnar RIA-Novotsti. Haft er eftir ónefndum leyniþjónustumanni að ýmsar ástæður kunni að liggja að baki þess að yfirvöld í landinu gefi upp aðra tölu, sem er um það bil tíu sinnum lægri. Erlent 17.6.2010 22:00
Hillary Clinton: Til hamingju með daginn Íslendingar - myndband Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óskar Íslendingum til hamingju með Þjóðhátíðardaginn á vef utanríkisráðuneytsins. „Til hamingju með Þjóðhátíðardaginn Ísland," segir hún. Erlent 17.6.2010 10:26
Samkynhneigðir bíða niðurstöðu dómstóla í Kaliforníu Búist er við niðurstöðu dómstóla í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum um hjónaband samkynhneigðra á næstu dögum eða vikum. Réttarhöldin snúast um hvort dómstólar muni afnema bann við hjónaböndum samkynhneigðra sem kjósendur ríkisins samþykktu í eins konar þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir tæpum tveimur árum. Erlent 17.6.2010 09:49
Fréttaskýring: Leiðtogaráðið tekur umsókn Íslands fyrir Hvað tekur nú við í aðildarumsókn Ísland að ESB? Leiðtogaráð Evrópusambandsins samþykkir að öllum líkindum aðildarviðræður við Ísland á fundi sínum í dag. Þá fer af stað ferli, sem getur staðið hátt í tvö ár eða jafnvel lengur. Erlent 17.6.2010 05:15
Óttast að flóðin kostuðu tugi manns lífið Óttast var í gær að flóðin í sunnanverðu Frakklandi hafi kostað meira en þrjátíu manns lífið. Vitað var um nítján dauðsföll síðdegis, en að auki var að minnsta kosti tólf manns saknað. Erlent 17.6.2010 01:00
Ellefu létust í flóðum í Frakklandi - margra saknað Allt að ellefu eru látnir eftir mikil flóð í Suðaustur-Frakklandi í gær. Miklar rigningar hafa verið í fjallahéruðunum fyrir ofan frönsku rívíeruna síðasta sólarhring og hafa mörg þorp og bæir orðið illa úti í flóðum af þeirra völdum. Yfirvöld í héraðinu segja að um mestu vatnavexti sé að ræða í áratug. Erlent 16.6.2010 12:13
Myrtir fyrir að horfa á HM Öfgasinnaðir múslimar í Afríkuríkinu Sómalíu hóta almennum borgurum í landinu ofbeldi og opinberri hýðingu horfi þeir á heimsmeistaramótið í fótbolta. Um helgina voru tveir menn myrtir fyrir að horfa á leik Argentínu og Nígeríu. Hinir herskáu múslimar vísa til laga sem gilda í hluta landsins en samkvæmt þeim er notkun tölvuleikja og áhorf á íþróttir í sjónvarpi á almannafæri stranglega bönnuð. Erlent 16.6.2010 08:21
Harðir jarðskjálftar í Indónesíu Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir að þrír öflugir jarðskjálftar riðu yfir austurhluta Indónesíu á fjórða tímanum í nótt að íslenskum tíma. Stærsti jarðskjálftinn var 7,1 á Richter. Í kjölfarið var gefin var út flóðaviðvörun en henni hefur verið aflétt, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins. Eftir fyrsta jarðskjálftann fylgdu tveir aðrir sem voru af stærðargráðunni 6,4 og 6,3 á Richter. Erlent 16.6.2010 08:16
Hóta að beita hernum Norður-Kóreumenn hóta að beita hervaldi ákveði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að refsa þeim fyrir að sökkva herskipi sunnanmanna fyrr á þessu ári. Erlent 16.6.2010 07:22
Ræningjarnir játa Þrír menn hafa játað að hafa ráðist þungvopnaðir inn á hótel í Berlín í mars og rænt þaðan vinningsfé á pókermóti. Ránið vakti talsverða athygli þar sem það var framið um hábjartan dag og fjölmargir þátttakendur voru á mótinu. Á annan tug manna meiddust en flestir þeirra voru starfsmenn hótelsins. Erlent 16.6.2010 07:17
Gafst upp og sleppti gíslum Maður vopnaður skotvopni, líklega skammbyssu, hélt viðskiptavinum og starfsmönnum H&M fataverslunar í Leipzig í Þýskalandi í gíslingu í nokkrar klukkustundir í gær. Erlent 16.6.2010 01:15
Fólk innlyksa á landamærum Að minnsta kosti nokkur hundruð manns hafa látið lífið í óeirðum í suðurhluta Kirgisistans síðustu daga, að mati Rauða krossins. Æ fleiri fréttir berast af því að ýtt hafi verið undir átökin beinlínis til þess að koma bráðabirgðastjórn landsins frá völdum. Erlent 16.6.2010 01:00
Ætlaði að leita bin Laden uppi Bandaríkjamaður, vopnaður skammbyssu og 102 sentimetra löngu sverði, fannst einn á ferð í skógi í norðvestanverðu Pakistan á sunnudag. Erlent 16.6.2010 00:30
Írar reka ísraelska erindreka úr landi vegna Dubai-morðsins Írsk yfirvöld hafa rekið ísraelska erindreka úr landinu vegna fölsunar á vegabréfum í nafni þjóðarinnar þegar ísraelska leyniþjónustan á að hafa tekið leiðtoga Hamas af lífi í Dubai í byrjun árs. Erlent 15.6.2010 20:55
Dæmdur fyrir að sofa hjá konum vegna umferðarlagabrota Breski lögreglumaðurinn Jamie Slater var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota aðstöðu sína og sofa hjá og bjóða konum kynlíf sem hann stöðvaði vegna umferðalagabrota. Erlent 15.6.2010 19:49
Hernum einum um að kenna í Londonderry Ný skýrsla hefur leitt í ljós að allir þeir sem féllu fyrir byssukúlum breskra hermanna í Londonderry á Norður-Írlandi árið 1972 voru saklausir og breska hernum er einum um að kenna hvernig fór. Erlent 15.6.2010 15:28
Palin dreymir um að hitta Járnfrúna Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkana í síðustu forsetakosningum, dreymir um að hitta Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sem Palin segir að sé átrúnaðargoðið hennar og ein helsta fyrirmynd hennar. Samband Thatcher, eða Járnfrúarinnar eins og hún er oft kölluð, og Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, er skýrt dæmi um hið sérstaka samband milli Bandaríkjanna og Bretlands, að mati Palin. Hún greinir frá því á samskiptasíðunni Facebook að henni hafi nýverið verið boðið til Bretlands. Palin vonist til að hitta Thatcher í þeirri ferð. Erlent 15.6.2010 08:40
Má stunda lækningar þrátt fyrir ákæru um manndráp Lækni Michaels Jackson sem ákærður var fyrir manndráp af gáleysi vegna andláts popparans er frjálst að stunda lækningar. Erlent 15.6.2010 07:59
Öryggisráðið fjallar um deiluna á Kóreuskaga Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjallar nú deilu Norður- og Suður-Kóreu en bæði ríkin hafa lagt fram gögn máli sínu til stuðnings. Erlent 15.6.2010 07:56