Erlent

Utanríkisráðherra Rússa fagnað sem hetju í Rússlandi

Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands var fagnað sem þjóðhetju af stuðningsmönnum Assads Sýrlandsforseta þegar Lavrov kom til landsins í dag. Þúsundir veifuðu sýrlenskum og rússneskum fánum á götum höfuðborgarinnar Damaskus en Lavrov kom til borgarinnar til viðræðna við Assad forseta.

Erlent

Ríkisstjórnin hrökklast frá

Ríkisstjórn Rúmeníu hefur sagt af sér vegna mikillar ólgu og mótmæla undanfarnar vikur. Aðhaldsaðgerðir að kröfu AGS og EBS eru óvinsælar.

Erlent

Sprengjum rigndi á Homs

Stjórnarherinn í Sýrlandi gerði öflugar sprengjuárásir á borgina Homs í Sýrlandi í gær, þar sem harðir bardagar við uppreisnarmenn hafa staðið yfir undanfarna daga. Þetta eru hörðustu árásir stríðsins til þessa.

Erlent

Handleggirnir geta sagt til um sjúkdóma

Mishár blóðþrýstingur í handleggjum fólks getur verið merki um sjúkdóma í æðakerfinu samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var við Exeter-háskóla í Bretlandi.

Erlent

Yfirvöld í Íran banna Simpson

Yfirvöld í Íran hafa nú bannað leikföng af bandarísku þáttaröðinni Simpson og er nu bannað að selja eða eiga slík leikföng í landinu. Það er þó í lagi að eiga Superman og Spiderman.

Erlent

Slær í gegn á Youtube

Borðtennispilturinn Jamie hefur fengið gríðarlega mikla athygli á veraldarvefnum síðustu daga. En í myndskeiði sem birt var á myndbandasíðunni Youtube.com sést hann sitja á borðtennisborði og faðir hans dælir í hann kúlum sem hann slær af miklum krafti. Ekki fylgir sögunni hversu gamall Jamie er en hann er eflaust eins til tveggja ára.

Erlent

Auka þvinganir gegn Íran

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ákvað í dag að allar eigur íranska ríkisins í Bandaríkjunum skuli frystar. Þannig hefur Obama sett harðari þvinganir á írönsk stjórnvöld, þar með talið seðlabankann.

Erlent

Bandaríska sendiráðinu í Sýrlandi lokað

Bandaríkjamenn hafa lokað sendiráði sínu í Sýrlandi þar sem ekkert lát virðist vera á óöldinni sem þar ríkir. CNN fréttastofan hefur eftir starfsmanni utanríkisráðueytisins að sýrlensk yfirvöld hafi neitað að verða við óskum um aukna öryggisgæslu við sendiráðið og því hafi verið ákveðið að senda allt starfsliðið heim.

Erlent

Mona Lisa á tvíburasystur

Viðgerðir á málverki af Monu Lisu, sem hefur árum saman verið geymt á Prado-listasafninu í Madrid, leiddu í ljós að það var málað á sama tíma og hið fræga verk Leonardo da Vincis. Áður var talið að málverkið væri eftirgerð af verki da Vincis, en nú þykir ljóst að nemandi hans hafi málað mynd af sömu fyrirsætu um leið og meistarinn málaði sitt verk, og nemandinn þá haft vinnubrögð da Vincis til hliðsjónar.

Erlent

Árásum á Homs haldið áfram

Stjórnarherinn í Sýrlandi hefur í dag haldið áfram árásum á borgina Homs og fleiri borgir sem hafa verið vígi mótmælenda í landinu síðustu mánuði. Að minnsta kosti fimmtíu hafa fallið í Homs í dag að því er Sky fréttastofan hefur eftir mótmælendum í borginni. Árás hersins er viðamikil og hafa hermennn látið til skarar skríða í tólf hverfum á sama tíma.

Erlent

Breivik segir gjörðir sínar ekki vera refsiverðar

Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Útey og Osló, neitar því að gjörðir hans séu refisverðar. Þetta sagði hann þegar að hann mætti fyrir rétt í Osló í dag. Hann var færður í dómhúsið í handjárnum í fylgd tveggja lögreglumanna. Eins og kunnugt er, gengst Breivik við því að hafa orðið 77 manns að bana þann 22. júlí síðastliðinn.

Erlent

Eyjafjallajökull fyrir Evrópudómstólinn

Evrópudómstóllinn í Lúxemborg mun í þessari viku fella úrskurð í mikilvægu máli sem snýst um viðskiptavin Ryanair flugfélagsins og bætur henni til handa. Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 spilar stóra rullu í málinu en niðurstaða dómstólsins gæti haft gríðarleg áhrif á flugrekstur í framtíðinni komi til þess að lofthelgi verði lokað sökum náttúruhamfara á borð við eldgos.

Erlent

Fyrrverandi hjákona Kennedys leysir frá skjóðunni

Mimi Alford, ein af fyrrverandi hjákonum John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur birt nýjar upplýsingar um samband þeirra í bók sem hún skrifaði. Útdrættir úr bókinni, sem ber titilinn Once Upon a Secret, eða Gamalt leyndarmál, lýsa náum kynnar Alford og forsetans þegar hún var lærlingur í Hvíta húsinu. Í bókinni lýsir hún líka viðbrögðum forsetans þegar Patrick, sonur hans lést. Í bókinni er jafnframt fjallað um sögusagnir um lyfjaneyslu forsetans. Samkvæmt frásögn Alford stóð samband hennar við forsetann yfir í átján mánuði.

Erlent

Forsætisráðherra Rúmeníu segir af sér

Emil Boc forsætisráðherra Rúmeníu hefur sagt af sér. Í yfirlýsingu segir hann að með því vonist hann til að lægja öldurnar sem risið hafa vegna hagræðingar og niðurskurðar stjórnar hans á fjármálum hins opinbera.

Erlent

Sauli Niinisto hreppti hnossið

Sauli Niinisto, íhaldssamur Evrópusinni, bar sigur úr býtum í seinni umferð forsetakosninganna í Finnlandi í gær. Hann fékk 63 prósent atkvæða og tekur því við af Tarja Halonen, sem gegnt hefur embættinu í tvö kjörtímabil, samtals tólf ár, við miklar vinsældir.

Erlent

Löggur flytja vegna hótana

Allir 2.500 lögreglumennirnir í landamæraborginni Ciudad Juarez í Mexíkó hafa verið fluttir frá heimilum sínum vegna hótana frá glæpahópum.

Erlent

Sex líffæri grædd í litla stúlku

Níu ára gömul stúlka frá Maine í Bandaríkjunum er á batavegi eftir að hafa gengist undir sexfalda líffæraígræðslu vegna krabbameins. Hún er að öllum líkindum fyrsta manneskjan til að fá vélinda grætt í sig.

Erlent

Innilokuð þorp vegna fannkófs

Þyrlur voru notaðar til að koma mat og öðrum nauðsynjum til þorpa á fjalllendum svæðum Bosníu, þar sem fannfergi hefur lokað öllum landvegum.

Erlent

Segir neitun Rússa skrípaleik

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur „vini lýðræðislegs Sýrlands“ til þess að standa saman gegn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta.

Erlent

Grísku stjórnarflokkarnir ósammála um aðgerðir

Þrátt fyrir að vera í kapphlaupi við tímann hafa grísku stjórnarflokkarnir ekki getað komið sér saman um viðbrögð við kröfum frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um enn harðari aðhaldsaðgerðir.

Erlent

Ísbjarnarhúnn vekur lukku í Toronto

Fjögurra mánaða gamall ísbjarnarhúnn var kynntur fyrir gestum dýragarðsins í Toronto í fyrsta sinn í gær. Húnninn hefur verið í lokaður frá umheiminum frá því að móðir hans yfirgaf hann.

Erlent