Erlent

Lokkuðu ólögráða stúlkur í hópkynlíf með áfengi

Hópur nýsjálenskra unglingspilta sem kallar sig "The Roast Busters“ hefur fengið stúlkur undir lögaldri til lags við sig með því að gefa þeim áfengi. Þeir lýsa aðförunum á opinni Facebook síðu sem þeir hafa haldið úti í um tvö ár.

Erlent

150 hermenn dæmdir til dauða í Bangladesh

Dómstóll í Bangladesh dæmdi í morgun að minnsta kosti hundrað og fimmtíu hermenn til dauða vegna uppreisnar sem gerð var á landamærastöð árið 2009. Rúmlega hundrað og fimmtíu hermenn til viðbótar fengu lífstíðardóma auk þess sem tugir óbreyttra borgara voru dæmdir fyrir að aðild sína að uppreisninni. Hermennirnir gerðu uppreisn til að mótmæla lélegum launum í hernum og áður en yfir lauk lágu sjötíu og fjórir í valnum, flest allir þeirra voru yfirmenn.

Erlent

Myrti þrjá í Noregi

Maður um þrítugt myrti þrjár manneskjur um borð í rútu sem var á leið á milli norsku bæjanna Ardal og Tyin í Sognsfirði í vesturhluta landsins um kvöldmatarleitið í gær. Þau sem létust voru nítján ára gömul stúlka og tveir menn á sextugsaldri og var annar þeirra rútubílstjórinn og hinn sænskur ríkisborgari.

Erlent

Fjörutíu prósent Sýrlendinga eru hjálparþurfi

Rúmlega níu milljónir Sýrlendinga, eða um fjörutíu prósent landsmanna, þurfa nú nauðsynlega á utanaðkomandi hjálparaðstoð að halda. Þetta fullyrðir yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, Valerie Amos.

Erlent

Breyting gagnast ekki erfiðum nemendum

Jan Björklund, menntamálaráðherra Svíþjóðar, hyggst leggja til breytingar á lögum þannig að sameiginlegt inntökukerfi verði fyrir sjálfstæða grunnskóla og grunnskóla sveitarfélaganna.

Erlent

1.500 listaverk sem nasistar rændu fundin

Listaverkin 1.500 sem talið er að hafi verið gerð upptæk af Nasistum hafa fundist í München í Þýskalandi. Talið er að meðal verkana séu málverk eftir Matisse, Picasso, og Chagall.

Erlent

„Ameríski draumurinn orðinn að martröð“

Yfir fimmtíu þekktir einstaklingar í Þýskalandi vilja að bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden fái pólitískt hæli í landinu. Í grein sem þeir skrifa í þýska blaðið Der Spiegel í dag segir að nú sé kominn tími til að Þjóðverjar hjálpi Snowden sem upplýsti heimsbyggðina um umfangsmiklar njósnir Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna.

Erlent

Viðbúnaður í Kaíró

Gríðarlegur viðbúnaður er nú í Kaíró höfuðborg Egyptalands en nú í morgunsárið eru að hefjast réttarhöld yfir Mohammed Morsi.

Erlent

Baneitraðar köngulær á ferð

Bresk fjölskylda neyddist á dögunum til þess að yfirgefa heimili sitt eftir að í ljós kom að baneitraðar brasilískar köngulær höfðu smyglað sér inn í húsið í bananaknippi.

Erlent

Hafna beiðni Snowden um sakaruppgjöf

Hvíta húsið og yfirmenn njósnanefnda í bandaríska þinginu segja að beiðni fyrrum NSA starfsmannins og uppljóstrarans, Edward Snowden, um sakaruppgjöf verði hafnað.

Erlent

Sagði frá staðsetningu Bin Laden árið 2003

Bandaríkjamaður hefur farið fram á 25 milljónir dala í fundalaun frá bandarísku alríkislögreglunni [FBI] fyrir ábendingu sem á að hafa leitt til þess að Osama Bin Laden fannst og var drepinn árið 2011.

Erlent