Erlent

Óttast um hundruð þorpsbúa á Sri Lanka

Að minnsta kosti átta eru látnir og óttast er að hundruð hafi grafist undir mikilli aurskriðu sem féll á þorp á Sri Lanka á miðvikudag. Að minnsta kosti 140 heimili lentu undir skriðunni og er talið að þrjú til fimmhundruð manna sé saknað. Lítið var hægt að leita í rústum þorpsins í gær sökum veðurs en óttast var að fleiri skriður gætu fallið.

Erlent

Klamydía ógnar stofni kóalabjarna

Klamydía er orðið að viðvarandi vandamál meðal kóalabjarna og er nú farin að ógna stofninum til viðbótar við að stöðugt er verið að þrengja að náttúrulegum heimkynnum þeirra.

Erlent

Er mjólk góð?

Svo virðist sem mikil mjólkurdrykkja dragi ekki úr beinþynningu og líkum á beinbrotum, ef marka má nýja grein í hinu virta læknariti British Medical Journal. Rannsókn var framkvæmd í Svíþjóð og leiddi hún í ljós að konur sem drukku fleiri en þrjú mjólkurglös á dag voru í raun líklegri til þess að brjóta í sér beinin en þær sem drukku minna en þrjú glös.

Erlent

Nýsjálendingar ætla að kjósa um fánann

Nýsjálendingar hafa ákveðið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2016 þar sem kosið verður um hvort þjóðin breyti fána sínum. Nefnd nokkurra valinkunnra Nýsjálendinga hefur þegar verið sett á laggirnar og er henni ætlað að koma með nokkrar tilllögur að nýjum fána, en málið hefur verið mikið í umræðunni í landinu síðustu misserin.

Erlent

Líflátshótanir vegna innflytjendalöggjafar

Líflátshótanir hafa að undanförnu borist innanríkisráðuneytinu í Austurríki vegna innflytjendalöggjafar landsins. Hótanirnar beinast að Jóhönnu Mikl-Leitner innanríkisráðherra Austurríkis auk fimmtíu annarra stjórnmálamanna.

Erlent