Fótbolti
Íslandsvinurinn Jon Dahl Tomasson leggur skóna á hilluna Hollenskir fjölmiðlar greina frá því að sanski landsliðsframherjinn Jon Dahl Tomasson hafi lagt fótboltaskóna á hilluna og mun Tomasson greina frá ákvörðun sinni á fundi með fréttamönnum í dag. Tomasson á ættir að rekja til Íslands en hann er 34 ára gamall og hefur ekkert leikið með Feyenoord í Hollandi á þessu tímabili vegna meiðsla. Fótbolti 7.6.2011 12:30
Ashley Young líklega á leiðinni til Man Utd Ashley Young leikmaður Aston Villa mun að öllum líkindum ganga í raðir enska meistaraliðsins Manchester United í sumar. Samkvæmt frétt DailyMail er Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Man Utd tilbúinn að borga 20 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn eða sem nemur um 3,7 milljarða kr. Enski boltinn 7.6.2011 10:15
Zlatan Ibrahimovich með enn eitt gullkornið Zlatan Ibrahimovich, þarf ekki að berja í sig sjálfstraust á hverjum einasta degi, því hann fullyrðir að hann sé besti fótboltamaður heims. Nýjasta útspil sænska landsliðsframherjans hefur vakið mikla athygli og flestir fótboltasérfræðingar hafa einfaldlega hlegið þegar þeir hafa heyrt af þessari skoðun framherjans. Fótbolti 7.6.2011 09:30
Martin Jol tekur við Fulham Enska úrvalsdeildarliðið Fulham sem Eiður Smári Guðjohnsen lék með á síðustu leiktíð hefur ráðið Hollendinginn Martin Jol sem knattspyrnustjóra og tekur hann við af Mark Hughes. Jol gerir tveggja ára samning við Fulham en hann þekkir ensku úrvalsdeildina vel eftir að hafa verið knattspyrnustjóri hjá Tottenham. Jol, sem er 55 ára gamall, gerir tveggja ára samning við félagið. Enski boltinn 7.6.2011 09:00
Fylkismenn fögnuðu í Fossvoginum - myndir Fylkismenn menn fara í EM-fríið með tvo sigra í röð á bakinu eftir að þeir unnu 3-1 sigur á Víkingum í Víkinni í gærkvöldi. Fylkir verður því í hópi efstu liða deildarinnar þegar mótið hefst á nýjan leik í lok mánaðarins. Íslenski boltinn 7.6.2011 08:30
Fyrsti sigur Stjörnumanna á teppinu í sumar - myndir Mörk frá Garðari Jóhannssyni og Halldóri Orra Björnssyni með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik tryggðu Stjörnumönnum 2-1 sigur á Grindavík á teppinu í Garðabænum í gær. Íslenski boltinn 7.6.2011 08:00
Ólafur: Flottur leikur Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var ákaflega ánægður og stoltur af sínu liðið eftir glæsilegan 3-1 sigur á Víkingum í kvöld á Víkingsvellinum. Íslenski boltinn 6.6.2011 22:46
Jóhann Helgason: Menn stressaðir á boltann Jóhann Helgason var besti leikmaður Grindavíkur í 2-1 tapi gegn Stjörnunni í kvöld. Þrátt fyrir að hafa verið með vindinn í bakið allan síðari hálfleikinn í leit að marki tókst Grindvíkingum ekki að skapa sér nógu góð færi. Íslenski boltinn 6.6.2011 22:45
Andri: Mætum af krafti eftir frí Andri Marteinsson þjálfari Víkings var ekki í neinum vafa um það hver vendipunkturinn í tapinu gegn Fylki í kvöld var. Það var glæsimark Baldurs Bett aðeins mínútu eftir að Víkingar höfðu jafnað metin í upphafi seinni hálfleiks. Íslenski boltinn 6.6.2011 22:44
Daníel Laxdal: Kominn tími á þetta Daníel Laxdal fyrirliði Stjörnunnar fór fyrir sínum mönnum í Garðabænum í kvöld. Hann var sáttur með fyrsta sigurinn á heimavelli í sumar. Íslenski boltinn 6.6.2011 22:35
Staða HK versnar enn eftir tap á Selfossi - markalaust í Ólafsvík Selfyssingar fögnuðu langþráðum heimasigri í kvöld þegar þeir unnu 4-2 sigur á HK í 5. umferð 1. deildar karla. Selfyssingar höfðu ekki fengið stig í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum í sumar a móti Fjölni og ÍA en tryggðu sér mikilvægan sigur í kvöld. Íslenski boltinn 6.6.2011 22:19
Geir: Ólafur búinn að læra þessa hegðun af þeim stóru í útlöndum Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var í viðtali við Ásgeir Erlendsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann fór yfir gengi íslenska karlalandsliðsins og stöðu Ólafs Jóhannessonar, landsliðsþjálfara. Fótbolti 6.6.2011 19:55
Íranska kvennalandsliðinu meinað að spila vegna keppnisbúnings Möguleikar íranska kvennalandsliðsins í knattspyrnu að spila á ólympíuleikunum í London að ári virðast að litlu orðnir. Gengi liðsins í undankeppninni hefur verið með ágætum en það er keppnisbúningur landsliðsins sem alþjóða knattspyrnusambandið FIFA sættir sig ekki við. Fótbolti 6.6.2011 19:45
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með báðum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Íslenski boltinn 6.6.2011 19:00
Umfjöllun: Fylkir áfram á góðri siglingu Fylkir gerði góða ferð á Víkingsvöll í kvöld þar sem liðið lagði heimamenn í Víking sannfærandi 3-1. Fylkir var betra liðið nær allan leikinn og þegar Víkingar komu sér inn í hann með jöfnunarmarki svöruðu gestirnir jafnharðan í tvígang og gerðu út um leikinn. Íslenski boltinn 6.6.2011 19:00
Leikur Stjörnunnar og Grindavíkur í Boltavarpi Vísis Leikur Stjörnunnar og Grindavíkur verður í beinni lýsingu á Boltavarpi Vísis í kvöld. Það er Valtýr Björn Valtýsson sem mun lýsa leiknum. Íslenski boltinn 6.6.2011 18:30
Ancelotti ætlar að læra af öðrum þjálfurum Carlo Ancelotti fyrrverandi þjálfari Chelsea ætlar að taka sér ársleyfi frá þjálfarastörfum. Hann ætlar að nota tímann til þess að heimsækja aðra knattspyrnuþjálfara. Enski boltinn 6.6.2011 17:45
O'Hara til Wolves fyrir 5 milljónir punda Enski miðvallarleikmaðurinn Jamie O'Hara hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Wolves frá Tottenham. O'Hara skrifaði undir fjögurra ára samning við Wolves en hann var á láni hjá liðinu í vetur. Kaupverðið er fimm miljónir punda. Enski boltinn 6.6.2011 17:15
Jón Guðni spilar með Fram á morgun "Ég var með nokkur tilboð líka frá Norðurlöndunum en ekkert sem var að heilla mig. Að fara hingað er fínt næsta skref fyrir mig," sagði Jón Guðni Fjóluson sem í dag skrifaði undir samning við belgíska úrvalsdeildarfélagið Germinal Beerschot. Íslenski boltinn 6.6.2011 16:01
Hiddink mun virða samning sinn við Tyrki Umboðsmaður Guus Hiddink, þjálfara tyrkneska landsliðsins í knattspyrnu, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að þjálfarinn sé á leiðinni til Chelsea. Talsmaður tyrkneska knattspyrnusambandsins, Turker Tozar, er sama sinnis. Fótbolti 6.6.2011 15:52
Bayern vill kaupa Boateng Svo gæti farið að Jerome Boateng snúi aftur í þýska boltann eftir skamma viðveru í enska boltanum hjá Man. City. Forráðamenn FC Bayern eru bjartsýnir á að geta keypt leikmanninn þó svo City sé ekkert allt of æst í að selja. Enski boltinn 6.6.2011 14:30
Jón Guðni búinn að semja við lið í Belgíu Framarar urðu fyrir miklu áfalli í dag þegar lykilmaður liðsins, Jón Guðni Fjóluson, skrifaði undir þriggja ára samning við belgíska félagið Germinal Beerschot. Samningurinn gildir frá og með 1. júlí næstkomandi. Jón Guðni mun væntanlega spila með Fram þar til hann fer út. Íslenski boltinn 6.6.2011 13:55
Umfjöllun: Fyrsti sigur Stjörnunnar í Garðabæ í sumar Stjörnumenn fögnuðu fyrsta heimasigri sínum í sumar þegar þeir unnu 2-1 sigur á Grindavík í 7. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Stjarnan er þar með komið með 11 stig en Stjörnumenn fóru upp í fjórða sætið með því að krækja í þessi þrjú stig. Íslenski boltinn 6.6.2011 13:20
Emerton hugar að heimför Ástralinn Brett Emerton hefur ákveðið að enda feril sinn í heimalandinu. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Blackburn Rovers. Hinn 32 ára gamli Emerton er sterklega orðaður við FC Sydney. Enski boltinn 6.6.2011 13:15
Young vill spila með þeim bestu Það er afar fátt sem bendir til þess að vængmaðurinn Ashley Young verði áfram í herbúðum Aston Villa á næstu leiktíð. Young sjálfur segist vilja spila með þeim bestu. Enski boltinn 6.6.2011 12:45
Allt annað að sjá Rooney eftir hárígræðsluna Það verður ekki annað sagt um Wayne Rooney en að hann taki á skallavandamálum sínum af auðmýkt. Rooney fór í hárígræðslumeðferð í síðustu viku og skammast sín ekkert fyrir það. Enski boltinn 6.6.2011 11:07
Bendtner ætlar að yfirgefa Arsenal Danski framherjinn Nicklas Bendtner hefur staðfest að hann sé meira en tilbúinn að yfirgefa herbúðir Arsenal í sumar. Enski boltinn 6.6.2011 10:45
Hiddink nálgast Chelsea Knattspyrnusamband Tyrklands staðfesti í morgun að Hollendingurinn Guus Hiddink væri væntanlega á förum frá þeim til þess að taka við Chelsea. Enski boltinn 6.6.2011 10:15
Warner hættur við að gera allt brjálað Jack Warner, varaforseti FIFA, er hættur við að birta viðkvæma tölvupósta frá Sepp Blatter, forseta FIFA. Warner segir lagalegar ástæður liggja að baki ákvörðun sinni. Fótbolti 6.6.2011 09:30
Utan vallar: Er Ólafur okkar gæfu smiður? Þegar Ísland situr á botni síns riðils með eitt stig af fimmtán mögulegum og með landsliðsþjálfara sem hefur unnið einn mótsleik af fimmtán síðan hann tók við, er eðlilegt að spyrja hvort hann sé rétti maðurinn til að finna lausnir á þeim erfiðleikum sem steðja að liðinu. Fótbolti 6.6.2011 06:00