Fótbolti
Ronaldo æfur yfir fölsku viðtali í Sunday Mirror Portúgalski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Cristiano Ronaldo, er ekki sáttur við enska dagblaðið Sunday Mirror sem birti viðtal við hann s.l. sunnudag. Ronaldo skrifaði á Twitter samskiptasíðuna að viðtalið væri uppspuni frá rótum og hann hafi aldrei farið í viðtalið. Fótbolti 4.7.2011 19:45
Kolbeinn búinn að skrifa undir - fær treyju númer níu Kolbeinn Sigþórsson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við hollenska stórliðið Ajax Amsterdam. Kolbeinn sagði í samtali við Vísi fyrir stundu að draumur hans væri að rætast. Fótbolti 4.7.2011 16:13
Fjöldahandtökur í Tyrklandi vegna gruns um spillingu Það logar allt stafna á milli í knattspyrnuveröldinni í Tyrklandi eftir að upp komst um risastórt svindlmál sem tengist m.a. meistaraliðinu Fenerbahçe. Tyrkneska lögreglan gerði húsleit á tólf mismunandi stöðum samtímis víðsvegar um landið á sunnudaginn. Fótbolti 4.7.2011 16:00
Stórkostlegt mark í MLS-deildinni Líberíumaðurninn Darlington Nagbe skoraði stórglæsilegt mark fyrir lið sitt Portland Timbers gegn Sporting Kansas City. Markið dugði þó ekki til sigurs því Kansas vann leikinn 2-1. Fótbolti 4.7.2011 14:45
Gunnar: Höfum ekki fengið heimaleik í nokkur ár Gunnar Borgþórsson þjálfari kvennaliðs Vals var nokkuð sáttur við dráttinn en lið hans sækir Aftureldingu heim í undanúrslitum Valitor-bikarsins. Hann hefði þó kosið að fá heimaleik. Íslenski boltinn 4.7.2011 14:38
Petr Cech hefur áhyggjur af enskum markvörðum Petr Cech markvörður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu segir tímabært að Englendingar velti fyrir sér hvers vegna stór meirihluta markvarða deildarinnar séu erlendir. Hann segir vandamálið að öllum líkindum snúast um þjálfunaraðferðir. Enski boltinn 4.7.2011 14:15
Bjarni: Stóð eins og stafur í bók Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR vaknaði í nótt og honum var heitt. Hann hafði dreymt að KR hefði dregist gegn BÍ/Bolungarvík í bikarnum og leikið yrði fyrir vestan. Nú er draumurinn orðinn að staðreynd en liðin mætast á Torfnesvelli þann 28. júlí. Íslenski boltinn 4.7.2011 14:00
Guðjón: Líklega eins erfitt og það getur orðið Vestfirðingar taka á móti KR-ingum á heimavelli 28. júlí. Guðjón sá sjálfur um að draga mótherjana upp úr hattinum. Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur var nokkuð sáttur við dráttinn og lýsti honum að nokkru leyti sem draumadrætti. Íslenski boltinn 4.7.2011 13:50
Feðgarnir mætast fyrir vestan í bikarnum KR-ingar sækja BÍ/Bolungarvík heim í undanúrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu. Feðgarnir Guðjón Þórðarson þjálfari Vestfirðinga og Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR-inga munu því mætast. Í hinni viðureigninni tekur Þór á móti ÍBV. Íslenski boltinn 4.7.2011 12:26
Bikarmeistarar Vals fara í Mosfellsbæ Bikarmeistarar Vals í knattspyrnu sækja Aftureldingu heim í undanúrslitum Valitor-bikars kvenna í knattspyrnu. Í hinni viðureigninni tekur Fylkir á móti KR. Íslenski boltinn 4.7.2011 12:21
KR vann Keflavík í roki og rigningu - myndir KR-ingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi með 3-2 sigri á Keflavík. Leikurinn var hin mesta skemmtun þrátt fyrir að aðstæður til knattspyrnu hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á staðnum. Íslenski boltinn 4.7.2011 12:15
Gael Clichy á leið í læknisskoðun hjá Man City Franski bakvörðurinn Gael Clichy er á leið í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester City. Talið er að City og Arsenal hafi komist að samkomulagi um kaupverð í kringum sjö milljónir punda. Clichy á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal. Enski boltinn 4.7.2011 11:30
Ali Al Habsi á leið til Wigan Breskir fjölmiðlar greina frá því að markvörðurinn Ali Al Habsi sé á leið til Wigan frá Bolton. Talið er að kaupverðið nemi um 4 milljónum punda. Al Habsi sló í gegn hjá Wigan á síðasta tímabili þar sem hann var í láni. Enski boltinn 4.7.2011 10:45
39 ára markvörður hetja Ekvadora Marcelo Ramón Ferrero átti stórleik í marki Ekvador í markalausu jafntefli gegn Paragvæ. Í fyrri leik dagsins gerðu Brasilía og Venesúela einnig markalaust jafntefli. Þetta er í fyrsta sinn í 58 ár sem tveimur leikjum dagsins lýkur markalausum. Fótbolti 4.7.2011 10:15
Liverpool ræður nýjan þjálfara Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur tilkynnt um ráðningu Englendingsins Kevin Keen í þjálfarateymi félagsins. Keen hefur undanfarin ár starfað við þjálfun hjá West Ham og stýrði liðinu í lokaleik síðasta tímabils eftir að Avram Grant var rekinn. Enski boltinn 4.7.2011 09:18
Dregið í undanúrslit Valitor-bikarsins í hádeginu Dregið verður í undanúrslit í Valitor-bikarsins í knattspyrnu í hádeginu í dag. Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli og hefst klukkan 12. Íslenski boltinn 4.7.2011 09:06
Kolbeinn skrifar undir hjá stórliði Ajax í dag Íslenska ungstirnið, Kolbeinn Sigþórsson, skrifar í dag undir í fjögurra ára samning við hollensku meistarana í Ajax, en Kolbeinn hefur verið á mála hjá hollenska félaginu, AZ Alkmaar, síðan árið 2007 og staðið sig vonum framar. Fótbolti 4.7.2011 07:00
ÍBV skreið í undanúrslit - myndir Pepsi-deildarlið ÍBV vann nauman sigur á 1. deildarliði Fjölnis, 1-2, er liðin mættust í átta liða úrslitum Valitor-bikars karla í Grafarvoginum í gær. Íslenski boltinn 4.7.2011 06:00
Bjarni: Höfðum yfirhöndina allan leikinn "Þetta var hörkuleikur og sennilega frábær skemmtun,“ sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, eftir leikinn. Íslenski boltinn 3.7.2011 22:51
Willum: Strákarnir eiga hrós skilið "Þetta var frábær leikur og við fengum óskabyrjun sem við náum ekki að nýta okkur,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, í kvöld. Íslenski boltinn 3.7.2011 22:44
Baldur: Ég var stressaður fyrir þennan leik "Þetta er frábært og mér líður gríðarlega vel,“ sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. Íslenski boltinn 3.7.2011 22:37
Markalaust jafntefli hjá Brasilíu Stóru þjóðirnar byrja ekkert allt of vel á Copa America. Heimamenn í Argentínu urðu að sætta sig við jafntefli gegn Bólivíu í fyrsta leik og í kvöld urðu Brasilíumenn einnig að sætta sig við jafntefli. Fótbolti 3.7.2011 21:03
Heimir: Við spiluðum aldrei sem lið í dag Heimi Hallgrímssyni, þjálfara ÍBV, var létt eftir sigurinn á Fjölni í dag í átta liða úrslitum Valitor-bikars karla. Hans menn voru ekki með hugann við verkefnið en sluppu með skrekkinn. Íslenski boltinn 3.7.2011 20:34
Ásmundur: Þeir fengu ódýrt víti Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var ekki sáttur við vítið sem Þóroddur Hjaltalín dæmdi á hans menn í dag. Úr því komust Eyjamenn yfir og þeir unnu að lokum leikinn, 1-2. Íslenski boltinn 3.7.2011 20:30
Messi fær á sig mikla gagnrýni Lionel Messi, leikmaður argentínska landsliðsins, fær heldur betur að heyra það í fjölmiðlum ytra fyrir frammistöðu sína í opnunarleik mótsins þegar Argentína rétt svo náði að bjarga jafnteflinu gegn Bólivíu á föstudagskvöld. Fótbolti 3.7.2011 18:30
Kemur Valbuena í stað Nasri? Arsenal er þegar farið að leita að eftirmanni Samir Nasri sem virðist vera á förum frá félaginu. Fjölmiðlar greina frá því í dag að Arsenal ætli sér að kaupa Mathieu Valbuena í stað Nasri. Enski boltinn 3.7.2011 18:00
Yeung mun áfram styðja fjárhagslega við Birmingham Carson Yeung, aðaleigandi enska knattspyrnufélagsins Birmingham, mun halda áfram að styðja fárhagslega á bakvið félagið þrátt fyrir að honum hafi verið stefnt í fimm liðum fyrir peningaþvott í Hong Kong. Enski boltinn 3.7.2011 16:45
Luis Garcia genginn til liðs við Puebla Knattspyrnumaðirinn, Luis Garcia, hefur samið við mexíkóska liðið Puebla til eins árs, en leikmaðurinn var áður hjá Panathinaikos í Grikklandi. Fótbolti 3.7.2011 16:00
Bikarævintýri BÍ/Bolungarvíkur heldur áfram Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í BÍ/Bolungarvík halda áfram að fara á kostum í Valitor-bikarnum. BÍ er komið í undanúrslit í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir 3-2 sigur á Þrótti á Torfnesvelli í dag. Íslenski boltinn 3.7.2011 15:52
Shaun Wright-Phillips á leiðinni til Wigan Formaður knattspyrnufélagsins Wigan Athletic, Dave Whelan, hefur staðfest að liðið ætli sér að klófesta Shaun Wright-Phillips frá Manchester City fyrir næsta tímabil. Enski boltinn 3.7.2011 15:06