Fótbolti
Chelsea vann Bayern í vítakeppni | Drogba og Cech voru hetjur liðsins Chelsea vann Meistaradeildina í fyrsta sinn eftir að hafa unnið Bayern München 4-3 í vítakeppni á þeirra eigin heimavelli á Allianz Arena í München. Didier Drogba og Petr Cech voru hetjur Chelsea í þessum leik. Drogba tryggði Chelsea framlengingu með því að skora jöfnunarmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok og skoraði síðan úr síðustu spyrnunni í vítakeppninni. Petr Cech varði aftur á móti víti Arjen Robben í framlengingunni og tók síðan tvö víti Bæjara í vítakeppninni. Fótbolti 19.5.2012 18:15
Byrjunarliðin í München: Bertrand byrjar en Torres er á bekknum Jupp Heynckes, þjálfari Bayern og Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea hafa tilkynnt inn byrjunarliðin sín í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem hefst klukkan 18.45 á Allianz Arena í München. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19.5.2012 18:02
Cech: Ég mæti undirbúinn ef að það verður vítakeppni Petr Cech, tékkneski markvörðurinn hjá Chelsea, segist hafa unnið heimavinnu sína fyrir leikinn á móti Bayern München fari svo að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar endi í vítakeppni. Cech er viss um að Chelsea geti klárað leikinn í venjulegum leiktíma en hefur samt sem áður skoðað vel upptökur af vítum leikmanna Bayern. Fótbolti 19.5.2012 17:45
Vaz Te, hetja West Ham: West Ham er úrvalsdeildarklúbbur Ricardo Vaz Te tryggði West Ham sæti í ensku úrvalsdeildinni með því að skora sigurmarkið í úrslitaleik umspilsins á Wembley í dag en markið hans kom þremur mínútum fyrir leikslok. Markið hans Vaz Te er 90 milljón punda virði ef allt er tekið með. Enski boltinn 19.5.2012 16:41
Stóri Sam: Fyrsta sinn á tímabilinu þar sem við vinnum leik í lokin Sam Allardyce, stjóri West Ham, er orðinn úrvalsdeildarstjóri á nýjan leik eftir að hans menn unnu 2-1 sigur á Blackpool í úrslitaleik umspilsins um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni en spilað var á Wembley í dag. Það var Ricardo Vaz Te sem skoraði sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok. Enski boltinn 19.5.2012 16:32
Gömlu liðsfélagar Eggerts unnu skoska bikarinn Hearts tryggði sér skoska bikarinn í dag með ótrúlegum 5-1 sigri á Hibernian í úrslitaleik á Hampden Park en þarna voru tvö Edinborgarliðið að mætast. Eggert Gunnþór Jónsson lék með Hearts til áramóta þegar hann fór til enska liðsins Wolves. Hann náði því ekki að spila neinn bikarleik á tímabilinu. Fótbolti 19.5.2012 16:23
Grétar skorar áfram fyrir Reyni - KV byrjar afar vel í 2. deildinni Nýliðar KV, Knattspyrnufélags Vesturbæjar, byrja vel í 2. deild karla í fótbolta því þeir hafa unnið tvo fyrstu leiki sína með markatölunni 8-1. Reynismenn úr Sandgerði með Grétar Ólaf Hjartarson eru einnig með fullt hús eftir útisigur í Njarðvík í dag. Íslenski boltinn 19.5.2012 16:12
Þórsarar með fullt hús í 1. deildinni - Hjörtur hetja Víkinga Þórsarar byrja vel í 1. deildinni en þeir eru með fullt hús eftir tvær umferðir eftir 3-1 sigur á Þrótti á Akureyri í dag. Hjörtur Júlíus Hjartarson tryggði Víkingum 1-0 sigur á ÍR með marki á lokamínútu leiksins en þetta var bæði fyrsta mark og fyrsti sigur Víkinga undir stjórn Ólafs Þórðarsonar. Íslenski boltinn 19.5.2012 16:03
Ætlar Di Matteo að byrja með Ryan Bertrand í úrslitaleiknum í kvöld? Enskir fjölmiðlar spá því að Ryan Bertrand verði í byrjunarliði Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München í kvöld en þessi 22 ára strákur hefur aldrei spilað leik í Meistaradeildinni áður og lék aðeins 7 leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Fótbolti 19.5.2012 15:30
Drogba ekki tilbúinn að segja að þetta sé síðasti leikurinn hans Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur ekkert viljað tjá sig um hvort að úrslitaleikur Meistaradeildarinnar í München í kvöld, verði síðasta leikurinn hans með Chelsea. Drogba er orðinn 34 ára gamall, samningur hann við enska félagið rennur út í sumar og Chelsea hefur ekki viljað gera við hann tveggja ára samning eins og Drogba sækist eftir. Fótbolti 19.5.2012 14:00
Höddi Magg hitti stuðningsmenn Bayern og Chelsea í miðborg München Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, er staddur í München í Þýskalandi þar sem hann ætlar að fylgjast með úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikur Bayern München og Chelsea hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19.5.2012 13:32
Ole Gunnar tekur ekki við liði Aston Villa Ole Gunnar Solskjær hélt blaðamannafund í Molde í dag þar sem að hann tilkynnti norskum blaðamönnum að hann ætlaði ekki að taka við enska úrvalsdeildarliðinu Aston Villa heldur halda áfram sem þjálfari Molde. Enski boltinn 19.5.2012 13:01
Swansea þarf væntanlega að tvöfalda félagsmetið til að kaupa Gylfa Eins og kom fram í gær þá stefnir allt í það að Swansea City sé að ná samningum við þýska liðið Hoffenheim um kaup á íslenska landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni. Stjórnarmaðurinn Huw Jenkins eyddi síðustu dögum í Þýskalandi við að reyna að semja um kaupverð og velskir fjölmiðlar hafa sagt frá því að það sé stutt í að samningar náist. Enski boltinn 19.5.2012 12:30
Allardyce: Þessi leikur er stærri en leikurinn í München Sam Allardyce, stjóri West Ham, segir að úrslitaleikurinn í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni á Wembley í dag sé stærri leikur en leikur kvöldsins þar sem mætast Bayern München og Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 19.5.2012 12:00
Sir Alex fluttur á sjúkrahús The Sun segir frá því að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hafi verið fluttur á sjúkrahús í Glasgow í gærkvöldi eftir að hafa fengið svakalegar blóðnasir. Ferguson er orðinn sjötugur en hann var í Glasgow í tilefni af 40 ára afmælis sigurs Rangers í Evrópukeppni bikarhafa árið 1972. Enski boltinn 19.5.2012 11:30
Vaz Te skaut West Ham upp í úrvalsdeildina Ricardo Vaz Te tryggði West Ham 2-1 sigur á Blackpool í dag í úrslitaleik umspilsins um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sigurmarkið kom þremur mínútum fyrir leikslok. Vaz Te kom til West Ham í janúarglugganum og hefur raðað inn mörkum en ekkert þeirra var jafn mikilvægt og markið hans á Wembley í dag. Enski boltinn 19.5.2012 11:01
Búinn að verja víti sex sumur í röð Hannes Þór Halldórsson, markvörður Íslandsmeistara KR, var hetja sinna manna í 3. umferð Pepsi-deildar karla þegar hann varði víti frá Matt Garner í uppbótartíma og sá til þess að KR vann leikinn 3-2 og þar með sinn fyrsta deildarsigur í sumar. Íslenski boltinn 19.5.2012 08:00
Ronaldo um sig og Messi: Ekki hægt að bera saman Ferrari og Porsche Cristiano Ronaldo segir að það sé erfitt að bera tvo ólíka leikmenn saman eins og sig sjálfan og Lionel Messi hjá Barcelona. Þeir skoruðu saman 96 mörk í spænsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og eru í flestra huga tveir bestu knattspyrnumenn heims. Fótbolti 18.5.2012 23:30
Þjálfari Bayern: Drogba er ekki bara góður leikmaður, líka frábær leikari Jupp Heynckes, þjálfari Bayern München, hrósaði Didier Drogba ekki bara fyrir knattspyrnuhæfileika heldur einnig fyrr leikarahæfileika á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Bayern og Chelsea í Meistaradeildinni sem fer fram í München á morgun. Fótbolti 18.5.2012 22:45
Villas-Boas í viðtal hjá Liverpool | Laudrup vill koma Enskir fjölmiðar fjalla áfram mikið um leit Liverpool að eftirmanni Kenny Dalglish. Daninn Michael Laudrup hefur nú verið orðaður við starfið. Enski boltinn 18.5.2012 22:18
Kicker: Swansea bauð 1,5 milljarða í Gylfa Þýska blaðið Kicker greindi frá því í kvöld að Swansea hafi boðið Hoffenheim níu milljónir evra, tæpan einn og hálfan milljarð króna, í Gylfa Þór Sigurðsson. Enski boltinn 18.5.2012 22:08
Sevilla hefur áhuga á Aroni Einari Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hefur úrvalsdeildarfélagið Sevilla áhuga á að klófesta íslenska landsliðsmanninn Aron Einar Gunnarsson. Enski boltinn 18.5.2012 21:51
Swansea nálægt því að ná samningum við Hoffenheim Samkvæmt fjölmiðlum í Wales er Swansea á góðri leið með að semja við þýska liðið Hoffenheim um kaupverð á Gylfa Þór Sigurðssyni. Enski boltinn 18.5.2012 20:58
Hamann: Bayern mun ekki ráða við Drogba Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Bayern München, Liverpool og þýska landsliðsins, spáir því að Chelsea vinni Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun og ástæðan fyrir því sé Didier Drogba. Fótbolti 18.5.2012 20:30
Nýliðar FH skelltu Eyjastúlkum Óvænt úrslit áttu sér stað í Pepsi-deild kvenna en þá gerðu FH-ingar sér lítið fyrir og unnu 4-1 sigur á ÍBV. Íslenski boltinn 18.5.2012 20:12
Pepsi-mörkin extra: Kjartan Henry kennir Hjörvari hvernig á að taka víti Kjartan Henry Finnbogason er markahæsti leikmaður Pepsideildar karla að loknum þremur umferðum. Framherjinn úr KR skoraði þrennu í 3-2 sigri gegn ÍBV í síðustu umferð og öll mörkin skoraði hann úr vítaspyrnum. Hann er sá fyrsti sem nær slíkri þrennu í efstu deild. Hjörvar Hafliðason knattspyrnusérfræðingur Stöðvar 2 sport brá sér í Frostaskjólið og fékk Kjartan til þess að fara yfir það hvernig best er að taka vítaspyrnur. Íslenski boltinn 18.5.2012 18:15
Framtíð Hazard: City og United funda bæði með Lille í næstu viku Framtíð Eden Hazard ræðst væntanlega í næstu viku eftir að forráðamenn Lille hafa fundað með bæði Manchester City og Manchester United en ensku stórliðin ætla að berjast um þennan efnilega Belga. Lille vill ekki ræða við Manchester-félögin fyrr en eftir lokaleik tímabilsins sem er nú um helgina. Enski boltinn 18.5.2012 17:45
Valur og Stjarnan komust á blað Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Íslandsmeistarar Stjörnunnar og bikarmeistarar Vals unnu þá fyrstu sigra sína á tímabilinu. Íslenski boltinn 18.5.2012 17:41
Park: Ég vil klára ferilinn hjá United Það bendir flest til þess að Ji-Sung Park sé á leiðinni frá Manchester United þótt að hann vilji sjálfur spila áfram með liðinu. Park á eitt ár eftir af samningi sínum en nýjustu sögusagnirnar eru að hann verði skiptimynt í kaupum United á Sjinji Kagawa hjá Dortmund. Enski boltinn 18.5.2012 17:00
Leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer fram á Villa Park Leikur Englandsmeistara Manchester City og bikarmeistara Chelsea um Samfélagsskjöldinn í haust mun ekki fara fram á Wembley heldur á Villa Park í Birmingham. Leikurinn á að fara fram 12. ágúst eða daginn eftir að úrslitaleikurinn í fótboltakeppni Ólympíuleikanna fer fram á Wembley. Enski boltinn 18.5.2012 16:15
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn