Sport
Hrútafjarðará: Viðsnúningur í kjölfar rigninga Veiði 24.7.2012 15:43 Messi meiddur og missir af fyrsta leik Vilanova Tímabilið byrjar ekki alltof vel fyrir besta knattspyrnumann í heimi. Lionel Messi meiddist á kálfa á æfingu með Barcelona í gær og verður því ekki með liðinu í fyrsta leiknum undir stjórn Tito Vilanova. Vilanova tók eins og kunnugt er við liðinu af Pep Guardiola. Fótbolti 24.7.2012 15:15 Hörður: Pottur brotinn hjá KSÍ Hörður Magnússon var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum í X-inu í morgun. Þar var meðal annars komið inn á harkaleg ummæli sem Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA, lét falla á Facebook í gær. Íslenski boltinn 24.7.2012 14:19 Jesper Jensen á leið til ÍA Jesper Jensen er að öllu óbreyttu á leið til ÍA en hann kemur til landsins á morgun og mun gangast undir læknisskoðun á fimmtudaginn. Íslenski boltinn 24.7.2012 14:06 Snorri: Verð orðinn góður fyrir leikana Snorri Steinn Guðjónsson hefur ekki áhyggjur af því að hann muni ekki geta spilað með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum sem hefjast síðar í vikunni. Handbolti 24.7.2012 13:59 Brynjudalsá nálgast 100 laxa - stórlax í Víðidalsá Alls voru 84 laxar komnir á land í Brynjudalsá í gær. Fyrstu laxarnir eru komnir á land í Miðdalsá og stórlax veiddist í Víðidalsá. Um 50 laxar veiðast nú dag hvern í Ytri-Rangá. Veiði 24.7.2012 13:05 Ísland leikur æfingaleik við Króatíu á fimmtudag Ísland mætir Króatíu í lokuðum æfingaleik á fimmtudaginn en liðið mun halda utan til Lundúna í fyrramálið. Þetta staðfesti Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, við Vísi. Handbolti 24.7.2012 12:48 « ‹ ›
Svona lagði Gylfi upp markið fyrir Bale í nótt Gylfi Þór Sigurðsson og Gareth Bale eru strax byrjaðir að ná vel saman hjá Tottenham. Gylfi lagði upp mark fyrir Bale í 1-1 jafnteflisleik á móti Los Angeles Galaxy í nótt og hefur Gylfi því átt þátt í marki í fyrstu tveimur leikjum sínum í búningi Spurs. Enski boltinn 25.7.2012 12:30
Carmelo og LeBron í stuði í sigri á Spánverjum Bandaríska körfuboltalandsliðið sýndi styrk sinn í æfingaleik á móti Spáni í gærkvöldi en Bandaríkjamenn unnu þar öruggan 22 stiga sigur, 100-78, í uppgjöri liðanna sem mættust í úrslitaleiknum á síðustu Ólympíuleikum. Þetta var síðasti leikur liðanna fyrir Ólympíuleikana í London. Körfubolti 25.7.2012 11:45
Elliðaárnar yfir 600 laxa Veiðin í Elliðaánum fór yfir 600 laxa á morgunvaktinni í gær. Dálítið hefur hægt á veiðinni síðari hluta júlímánaðar eftir frábært gengi fram að því. Veiði 25.7.2012 11:15
Pepsi-mörkin: Þátturinn um 12. umferðina aðgengilegur á Vísi Fjallað var um 12. umferðina í Pepsi-deild karla í þættinum Pepsi-mörkin á Stöð 2 sport. Þátturinn er nú aðgengilegur í heild sinni á sjónvarpsvef Vísis. Hörur Magnússon, Tómas Ingi Tómason og Hjörvar Hafliðason fóru yfir gang mála. Íslenski boltinn 25.7.2012 10:37
Tottenham réttlætir fjarveru Bale á ÓL Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur komið Gareth Bale, til varnar en Bale hefur verið gagnrýndur fyrir að draga sig út úr Ólympíulandsliði Breta vegna meiðsla. Bale lék engu að síður í 73 mínútur og skoraði eitt mark í æfingaleik Tottenham gegn LA Galaxy í gærkvöld. Enski boltinn 25.7.2012 10:15
Gylfi lagði upp mark fyrir Tottenham gegn LA Galaxy Gylfi Sigurðsson lagði upp mark fyrir Tottenham í æfingaleik gegn bandaríska liðinun LA Galaxy sem fram fór í gær. Gareth Bale skoraði markið með góðum skalla á 17. mínútu eftir fyrirgjöf frá íslenska landsliðsmanninum. David Lopes jafnaði fyrir heimamenn undir lok fyrri hálfleiks. Enski boltinn 25.7.2012 09:58
Svona úrslit munu ekki endurtaka sig Íslenska körfuboltalandsliðið átti fá svör á móti sterku Ólympíuliði Litháa í Vilníus í gærkvöldi en fyrirliðinn Hlynur Bæringsson er hvergi banginn og segir íslensku strákana staðráðna í að gera Evrópukeppnina að jákvæðu móti. Körfubolti 25.7.2012 07:00
Færri komust að en vildu Íslandsmótið í höggleik í golfi hefst á fimmtudaginn og fer mótið fram á Strandarvelli á Hellu að þessu sinni. Axel Bóasson úr Keili og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR hafa titla að verja á mótinu. Golf 25.7.2012 06:00
Tvöfaldur Skolli: Hvernig er best að leika Strandarvöll? Íslandsmótið í höggleik í golfi fer fram á Strandarvelli á Hellu. Keppni hefst fimmtudaginn 26. júlí og eru allir bestu kylfingar landsins á meðal keppenda. Logi Bergmann og Þorsteinn Hallgrímsson fóru yfir það hvernig best er að leika Strandarvöll í þættinum Tvöfaldur Skolli sem sýndur er á Stöð 2 sport. Golf 25.7.2012 00:00
Gylfi Þór og félagar mæta La Galaxy í nótt Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Tottenham Hotspur eru nú staddir í Bandaríkjunum þar sem þeir mæta LA Galaxy í æfingaleik í nótt. Gylfi verður væntanlega í byrjunarliði Tottenham í fyrsta sinn. Leikurinn fer fram í The Home Depot Center í Kaliforníu og hefst klukkan tvö að íslenskum tíma. Enski boltinn 24.7.2012 23:30
Inzaghi tekur við unglingaliði AC Milan Það verður ekkert að því að ítalski framherjinn Filippo Inzaghi semji við lið í Englandi því kappinn hefur samþykkt að taka við unglingaliði AC Milan. Inzaghi var einn af mörgum eldri leikmönnum AC Milan sem fengu ekki nýjan samning hjá félaginu. Fótbolti 24.7.2012 22:30
Stjörnukonur ekki búnir að segja sitt síðasta - myndir Stjarnan vann mikilvægan 3-2 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld og náði því að minnka forskot Þór/KA á toppnum í fimm stig. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok og hefur þar með skorað tíu deildarmörk í sumar. Íslenski boltinn 24.7.2012 22:07
KR-ingar töpuðu aftur á móti finnsku meisturunum - myndir Íslandsmeistarar KR eru úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 1-2 tap á móti HJK Helsinki í seinni leik liðanna á KR-vellinum í kvöld. KR-ingar áttu ekki mikla möguleika eftir 0-7 tap í fyrri leiknum í Finnlandi. Íslenski boltinn 24.7.2012 22:00
Blikakonur minnkuðu forskot Þor/KA - Elín Metta með þrennu Breiðablik og Valur unnu bæði góða útisigri í 11. umferð Pepsi-deild kvenna í kvöld. Blikakonur minnkuðu forskot Þór/KA á toppnum í fimm stig og Valskonur komust upp í fjórða sæti deildarinnar en þær nýttu sér þar óvænt tap ÍBV á móti FH í kvöld. Íslenski boltinn 24.7.2012 21:11
QPR búið að finna leið til að flýta endurkomu Joey Barton QPR er hugsanlega búið að finna leið til þess að fá vandræðagemlinginn Joey Barton fyrr til baka úr tólf leikja banninu sem miðjumaðurinn skapheiti var dæmdur í vegna framkomu sinnar í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar síðasta vor. Enski boltinn 24.7.2012 20:30
FH burstaði ÍBV aftur - Guðrún Jóna byrjar vel FH vann óvæntan 3-0 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna. ÍBV var tveimur sætum og átta stigum á undan FH fyrir leikinn en það hentar greinilega FH-stelpum vel að mæta Eyjaliðinu því FH vann fyrri leikinn 4-1. Íslenski boltinn 24.7.2012 20:14
Harpa tryggði Stjörnunni mikilvægan sigur Harpa Þorsteinsdóttir tryggði Íslandsmeisturum Stjörnunnar þrjú mikilvæg stig í toppbaráttu Pepsi-deildar kvenna í kvöld þegar hún skoraði sigurmarkið á móti Fylki átta mínútum fyrir leikslok. Stjarnan vann leikinn 3-2 og er því eins og Breiðablik fimm stigum á eftir toppliði Þór/KA. Íslenski boltinn 24.7.2012 19:15
Umfjöllun og viðtöl: KR - HJK Helsinki 1-2 | KR-ingar úr leik KR-ingar eru úr leik í Evrópukeppninni eftir 1-2 tap á KR-vellinum fyrir finnsku meisturunum í HJK Helsinki í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar. Finnarnir unnu fyrri leikinn 7-0 og þar með 9-1 samanlagt. Emil Atlason skoraði eina mark KR þegar hann minnkaði muninn 17 mínútum fyrir leikslok. Íslenski boltinn 24.7.2012 18:30
Strákarnir töpuðu stórt á móti Ólympíuliði Litháa Íslenska karlalandsliðið í körfubolta átti fá svör á móti Ólympíuliði Litháa í æfingaleik í Siemens-höllinni í Vilinius í kvöld. Litháen var komið 20 stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann og vann leikinn á endanum með 50 stigum, 101-51. Körfubolti 24.7.2012 18:07
Eiður Smári búinn að ganga frá starfslokasamningi við AEK Gríska félagið AEK Aþena tilkynnti það á heimasíðu sinni í kvöld að félagið væri búið að semja um starfslok við íslenska landsliðsmanninn Eið Smára Guðjohnsen. Eiður Smári var aðeins búinn að vera í eitt ár hjá félaginu en missti af meiri hluta tímabilsins eftir að hafa fótbrotnað í október. Fótbolti 24.7.2012 17:17
Zlatan ætlar sér að taka tíuna af Nene Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic ætlar sér að fá tíuna hjá franska liðinu Paris Saint-Germain þótt að það sé treyjunúmer Nene, einnar aðalstjörnu liðsins. Það er því ekki enn ljóst í hvaða treyju Zlatan spilar hjá sínu nýja félagi á þessu tímabili. Fótbolti 24.7.2012 17:00
Arsenal-maður tekinn á teppið fyrir twitter-skrif Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur kært Arsenal-manninn Emmanuel Frimpong fyrir skrif hans inn á twitter-síðu sína um helgina. Frimpong brást illa við skilaboðum Tottenham-stuðningsmanns inn á twitter-síðu sinni og svaraði honum í reiðikasti. Frimpong tók ummæli sín fljótlega út af síðu sinni en það var of seint. Enski boltinn 24.7.2012 16:30
Enginn Drogba á móti Manchester United? Didier Drogba missir hugsanlega af leik Shanghai Shenhua og Manchester United á morgun vegna meiðsla en margir höfðu beðið spenntir eftir því að sjá Drogba glíma við United-vörnina með nýju kínversku liðsfélögunum sínum. Enski boltinn 24.7.2012 16:00
Messi meiddur og missir af fyrsta leik Vilanova Tímabilið byrjar ekki alltof vel fyrir besta knattspyrnumann í heimi. Lionel Messi meiddist á kálfa á æfingu með Barcelona í gær og verður því ekki með liðinu í fyrsta leiknum undir stjórn Tito Vilanova. Vilanova tók eins og kunnugt er við liðinu af Pep Guardiola. Fótbolti 24.7.2012 15:15
Hörður: Pottur brotinn hjá KSÍ Hörður Magnússon var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum í X-inu í morgun. Þar var meðal annars komið inn á harkaleg ummæli sem Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA, lét falla á Facebook í gær. Íslenski boltinn 24.7.2012 14:19
Jesper Jensen á leið til ÍA Jesper Jensen er að öllu óbreyttu á leið til ÍA en hann kemur til landsins á morgun og mun gangast undir læknisskoðun á fimmtudaginn. Íslenski boltinn 24.7.2012 14:06
Snorri: Verð orðinn góður fyrir leikana Snorri Steinn Guðjónsson hefur ekki áhyggjur af því að hann muni ekki geta spilað með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum sem hefjast síðar í vikunni. Handbolti 24.7.2012 13:59
Brynjudalsá nálgast 100 laxa - stórlax í Víðidalsá Alls voru 84 laxar komnir á land í Brynjudalsá í gær. Fyrstu laxarnir eru komnir á land í Miðdalsá og stórlax veiddist í Víðidalsá. Um 50 laxar veiðast nú dag hvern í Ytri-Rangá. Veiði 24.7.2012 13:05
Ísland leikur æfingaleik við Króatíu á fimmtudag Ísland mætir Króatíu í lokuðum æfingaleik á fimmtudaginn en liðið mun halda utan til Lundúna í fyrramálið. Þetta staðfesti Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, við Vísi. Handbolti 24.7.2012 12:48
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti