Íslenski boltinn

Jesper Jensen á leið til ÍA

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jensen í leik með Stjörnunni í fyrra.
Jensen í leik með Stjörnunni í fyrra. Mynd/Anton
Jesper Jensen er að öllu óbreyttu á leið til ÍA en hann kemur til landsins á morgun og mun gangast undir læknisskoðun á fimmtudaginn.

Þetta staðfesti Þórður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar ÍA, í samtali við Vísi í dag.

Jensen var hjá Stjörnunni í fyrra en sleit krossband í hné á miðju tímabili.

Ef Jensen gengur til liðs við ÍA verður það góður liðsstyrkur til Skagamanna sem hafa misst Mark Doninger til Stjörnuna, sem og Gary Martin til KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×