Sport Tvö mörk Börsunga á síðustu mínútunum - með 11 stiga forskot á Real Það tók Barcelona-menn 86 mínútur að finna leiðina framhjá Tono, markverði Granada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Xavi skoraði markið á 87. mínútu og Granada-liðið skoraði síðan sjálfsmark í uppbótartíma. Barcalona vann því leikinn 2-0 og er með fullt hús á toppnum eftir fyrstu fimm umferðirnar. Fótbolti 22.9.2012 19:30 Atli Ævar með fimm mörk í sigri SönderjyskE SönderjyskE er að byrja ágætlega í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta og hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. SönderjyskE vann 31-29 heimasigur á TMS Ringsted í dag. Handbolti 22.9.2012 19:11 Arna Sif með flottan leik í sigri á SönderjyskE Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk fyrir Aalborg DH í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann fjögurra marka heimasigur á SönderjyskE, 31-27. Þetta var langþráður sigur hjá Álaborgarliðinu því liðið var stigalaust fyrir leikinn. Handbolti 22.9.2012 19:02 Van der Vaart lagði upp tvö þegar HSV vann meistara Dortmund Hollendingurinn Rafael van der Vaart lagði upp tvö mörk fyrir Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 3-2 heimasigur á meisturum Borussia Dortmund. Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-Min skoraði tvö mörk fyrir HSV í leiknum. Bayern München komst aftur í toppsætið eftir 2-0 útisigur á Schalke 04. Fótbolti 22.9.2012 18:45 Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna. Körfubolti 22.9.2012 18:15 Maldonado ætlar sækja stig í fyrsta sinn síðan á Spáni Formúla 1 22.9.2012 17:41
Tvö mörk Börsunga á síðustu mínútunum - með 11 stiga forskot á Real Það tók Barcelona-menn 86 mínútur að finna leiðina framhjá Tono, markverði Granada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Xavi skoraði markið á 87. mínútu og Granada-liðið skoraði síðan sjálfsmark í uppbótartíma. Barcalona vann því leikinn 2-0 og er með fullt hús á toppnum eftir fyrstu fimm umferðirnar. Fótbolti 22.9.2012 19:30
Atli Ævar með fimm mörk í sigri SönderjyskE SönderjyskE er að byrja ágætlega í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta og hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. SönderjyskE vann 31-29 heimasigur á TMS Ringsted í dag. Handbolti 22.9.2012 19:11
Arna Sif með flottan leik í sigri á SönderjyskE Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk fyrir Aalborg DH í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann fjögurra marka heimasigur á SönderjyskE, 31-27. Þetta var langþráður sigur hjá Álaborgarliðinu því liðið var stigalaust fyrir leikinn. Handbolti 22.9.2012 19:02
Van der Vaart lagði upp tvö þegar HSV vann meistara Dortmund Hollendingurinn Rafael van der Vaart lagði upp tvö mörk fyrir Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 3-2 heimasigur á meisturum Borussia Dortmund. Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-Min skoraði tvö mörk fyrir HSV í leiknum. Bayern München komst aftur í toppsætið eftir 2-0 útisigur á Schalke 04. Fótbolti 22.9.2012 18:45
Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna. Körfubolti 22.9.2012 18:15
Verður Grafarholtsvelli lokað í tvö ár? Grafarholtsvöllur er einn allra vinsælasti golfvöllur landsins og það er ekki auðvelt að tryggja sér rástíma á vellinum enda margir kylfingar í Golfklúbbi Reykjavíkur. Svo gæti farið að enginn fái að spila á vellinum í allt að 24 mánuði. Kylfingur segir frá því að ein af tillögum frá Framtíðarnefnd Grafarholts sé að loka vellinum í tvö ár á meðan fara fram endurbætur á vellinum. Golf 22.9.2012 17:00
Keflavík fær til sína eina bestu þriggja stiga skyttuna í sögu bandaríska háskólaboltans Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við bandaríska bakvörðinn Jessica Jenkins um að leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabili. Jessica er 22 ára bakvörður sem er nýútskrifuð úr St. Bonaventure háskólanum og lék við góðan orðstýr í NCAA háskólaboltanum. Körfubolti 22.9.2012 16:30
Leiknismenn björguðu sér með þriðja sigrinum í röð | Völsungur og KF koma upp Lokaumferðin í 1. deild karla í fótbolta fór fram í dag og þar réðst hvaða lið féll út 1. deildinni með ÍR. Leiknismenn björguðu sæti sínu á kostnað Hattarmanna. Þá var einnig spiluð síðasta umferðin í 2. deild karla og eftir mikla dramatík er það ljóst að það verða Völsungur og KF sem taka sæti ÍR og Hattar. Íslenski boltinn 22.9.2012 16:00
Aron Einar og Björn Bergmann skoruðu báðir Cardiff tókst ekki að að að landa þremur stigum á móti Crystal Palace í ensku b-deildinni í dag þrátt fyrir að komast í 2-0 í fyrri hálfleiknum. Cardiff átti með sigri möguleika að komast upp að hlið Brighton & Hove Albion á toppi ensku b-deildarinnar en tapaði leiknum 2-3. Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Wolves. Enski boltinn 22.9.2012 15:45
HK vann sannfærandi sigur á Stjörnunni HK-konur komu á óvart í fyrstu umferð N1 deildar kvenna í handbolta með því að vinna sexmarka sigur á Stjörnunni, 25-19, í Digarnesi í dag en Stjörnuliðinu var spáð mun betra gengi en HK í vetur. Handbolti 22.9.2012 15:20
Jose Mourinho: Chelsea mun sakna Drogba í vetur Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid og fyrrum stjóri Chelsea, er viss um að Chelsea-liðið munu sakna Didier Drogba mikið á þessu tímabili. Fílabeinsstrendingurinn lék sinn síðasta leik með Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor og samdi síðan við kínverska liðið Shanghai Shenhua. Enski boltinn 22.9.2012 15:15
Lewis Hamilton á ráspól í Singapúr McLaren-ökuþórinn Lewis Hamilton ræsir fremstur í singapúrska kappakstrinum á morgun. Hann ók hraðast um götubrautina í Singapúr í tímatökum í dag. Pastor Maldonado á Williams var næst fljótastur. Formúla 1 22.9.2012 14:16
Keflavíkurkonur fá að vera á heimavelli í úrslitaleiknum Körfuknattleiksamband tilkynnti á heimasíðu sinni að úrslitaleikur Lengjubikars kvenna fari fram í Toyota-höllinni í Keflavík á fimmtudaginn í næstu viku, þann 27. september. Þrjú lið sóttu um að halda úrslitaleikinn og ákvað stjórn KKÍ að fela Keflavík umsjónina með leiknum. Körfubolti 22.9.2012 14:15
Ashley Cole skoraði sigurmark Chelsea rétt fyrir leikslok Vinstri bakvörðurinn Ashley Cole skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Chelsea á Stoke á Brúnni í ensku úrvalsdeildinni í dag en sigurinn skilar Chelsea-liðinu þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar. Enski boltinn 22.9.2012 13:30
Nýliðar Eintracht Frankfurt slá í gegn í þýsku deildinni Eintracht Frankfurt er með þriggja stiga forskot í þýsku úrvalsdeildinni eftir 2-1 sigur á Nurnberg í gærkvöldi en liðið er búið að vinna fjóra fyrstu leiki sína á tímabilinu. Frankfurt er með þremur stigum meira en Bayern München sem spilar sinn leik í dag. Fótbolti 22.9.2012 13:15
Lífsbaráttulaugardagur: Leiknir og Höttur berjast fyrir lífi sínu í 1. deildinni Lokaumferðir 1. deildar og 2. deildar karla í fótbolta fara fram í dag og þar kemur í ljós hvaða lið fylgir ÍR niður úr 1. deildinni og hvaða tvö lið munu koma upp úr 2. deildinni í staðinn. Leiknir og Höttur berjast fyrir lífi sínu í 1. deild en fjögur lið eiga enn von um að tryggja sér sæti í 1. deildinni. Íslenski boltinn 22.9.2012 12:45
Saga stangveiða: Fnjóská - hin dásamlega afrétt “Síðastliðna viku hefi ég verið að athuga Fnjóská með hinum enska veiðimanni, Mr. Fortescue, sem leigir hana. Áin hefir verið alfriðuð í 6 ár og auk þess dálítill partur af sjónum báðum megin [við ósa]. Þá var einnig í upphafi friðunartímabilsins gerður fiskvegur upp yfir Laufásfossa. Árangurinn af þessari aðgerð á ánni og 6 ára friðun, er alveg stórkostlegur og mörgum sinnum meiri en bjartsýnustu kunnáttumenn þorðu að vona.” Veiði 22.9.2012 12:41
Fjölmennasta kvennadeildin í þrettán ár hefst í dag Fyrsta umferðin í N1 deild kvenna í handbolta fer fram í dag þegar fimm leikir verða spilaðir. Ellefu lið eru í deildinni og verða tíu á ferðinni í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan tímabilið 1999-2000 eða í þrettán ár, sem svo mörg lið eru í úrvalsdeild kvenna. Handbolti 22.9.2012 12:15
Íslensku landsliðskonurnar í tapliðum í sænsku deildinni Íslendingaliðin Kristianstad og Örebro töpuðu bæði leikjum sínum í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag en þetta voru fyrstu leikirnir í sænsku úrvalsdeildinni eftir landsleikjahlé. Fótbolti 22.9.2012 11:45
Róbert, Ásgeir og félagar í Parísarliðinu búnir að vinna tvo fyrstu leikina Línumaðurinn Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk úr þremur skotum þegar Paris Handball vann 31-27 útisigur á Pays D'Aix UC HB í gær í 2. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Paris Handball var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18-14. Handbolti 22.9.2012 11:45
N1 deild kvenna í handbolta: Létt hjá Fram en enn léttara hjá Val Valur og Fram er spáð besta genginu í N1 deild kvenna í handbolta í vetur eins og undanfarin ár og bæði lið unnu sannfærandi útisigra í fyrstu umferð deildarinnar í dag. Handbolti 22.9.2012 11:41
Everton vann Swansea 3-0 í Wales og fór upp í 2. sætið Everton-menn sóttu þrjú stig til Wales með því að vinna Swansea 3-0 í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni og komust fyrir vikið upp í annað sætið deildarinnar. Leikurinn var afar fjörugur allan tímann og mikil skemmtun fyrir þá sem á horfðu en Swansea lék reyndar manni færri síðustu 32 mínútur leiksins. Á endanum var það hreinlega ótrúlegt að mörkin í þessum leik urðu bara þrjú. Enski boltinn 22.9.2012 11:15
Bréf Sir Alex Ferguson til stuðningsmanna Manchester United Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur skrifað bréf sem allir stuðningsmenn félagsins fá sem mæta á leikinn á móti Liverpool á Anfield á morgun. Sir Alex biðlar þar til stuðningsmannanna að virða viðkvæma og tilfinningamikla stund hjá erkifjendunum í Liverpool. Enski boltinn 22.9.2012 11:00
Sigurður Ragnar: Eigum helmingsmöguleika Stelpurnar okkar þurfa að fara Krýsuvíkurleiðina á EM 2013 en það varð ljóst er liðið tapaði gegn Noregi ytra í vikunni. Þær þurfa að fara í umspil til þess að komast inn á mótið og var dregið í það í gær. Þar dróst Ísland gegn sterku liði Úkraínu. Leikirnir fara fram í lok október og á Ísland seinni leikinn heima. Fótbolti 22.9.2012 09:00
Verður stríð eða friður? Loftið verður örugglega lævi blandið á Anfield á morgun er Liverpool tekur á móti Man. Utd. Þetta er fyrsti heimaleikur Liverpool síðan skýrslan um Hillsborough kom út og einnig í fyrsta skipti sem Patrice Evra snýr aftur á Anfield eftir uppákomuna með Luis Suarez í fyrra. Enski boltinn 22.9.2012 08:00
Southampton skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik | Öll úrslitin í enska boltanum Nýliðar Southampton unnu sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili þegar þeir unnu 3-1 sigur á Aston Villa. West Bromwich og Fulham unnu líka leiki sína í dag. Enski boltinn 22.9.2012 00:01
Ronaldo grennir sig í brasilískum sjónvarpsþætti Hinn brasilíski Ronaldo hefur oft verið kallaður feiti Ronaldo til þess að aðgreina hann frá portúgalska nafna sínum. Fótbolti 21.9.2012 23:30
Búið að opna glæsilegan heimavöll Brooklyn Nets Rússneski milljarðamæringurinn Mikhail Prokhorov klippti í gær á borðann á nýjum heimavelli Brooklyn Nets sem heitir Barclays Center og er stórglæsilegur. Körfubolti 21.9.2012 22:45
Camoranesi þarf að borga háar skaðabætur fyrir 18 ára gamla tæklingu Argentínumaðurinn Mauro Camoranesi hefur verið dæmdur til að greiða rúmlega átta milljónir íslenskra króna í skaðabætur fyrir afar ljóta tæklingu í leik í argentínsku b-deildinni árið 1994. Fótbolti 21.9.2012 22:00