Sport

Stefán Rafn: Mér leið rosalega vel

Stefán Rafn Sigurmannsson er ánægður með að hafa fengið að spila með Íslandi á stórmóti í handbolta. Hann skoraði fimm mörk í sextán marka sigri Íslands á Síle.

Handbolti

Helena stigahæst í sigri Good Angels

Helena Sverrisdóttir var stigahæst hjá liði Good Angels Kosice þegar nýkrýndir bikarmeistarar í Slóvakíu unnu 17 stiga sigur á Samorin, 73-56, í lokaumferð úrvalsdeildar slóvakíska kvennakörfuboltans. Good Angels Kosice vann alla 18 leiki sína í deildinni en Samorin er í 3. sætinu.

Körfubolti

United hafði betur í risaslagnum gegn Liverpool

Manchester United lagði Liverpool að velli 2-1 í viðureign liðanna á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. United hefur tíu stiga forskot á grannana í City á toppi deildarinnar en City mætir Arsenal síðar í dag.

Enski boltinn

HM 2013 | Aron: Gerum þær kröfur að vinna þetta lið

"Við þurfum að koma okkur upp á hestinn að nýju og sýna okkar rétta andlit gegn Síle. Þeir léku vel gegn Makedóníu. Við erum búnir að kortleggja Síle og sáum nokkra leiki með þeim fyrir þetta mót, æfingaleik gegn Spáni m.a,“ sagði Aron Kristjánsson þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta í gær þegar hann var spurður um næstu mótherja Íslands á HM – lið Síle sem Ísland mætir kl. ,14:45 í dag í Sevilla á Spáni.

Handbolti

HM 2013 | Óvíst hvort Róbert verði með gegn Síle

Róbert Gunnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, meiddist í baki í leiknum gegn Rússum í gær í Sevilla. Óvíst er með þátttöku Róberts í leiknum gegn Síle í dag, sem hefst kl. 14.45. Aron Kristjánsson þjálfari íslenska landsliðsins sagði í gær að sjúkrateymi íslenska landsliðsins myndi taka ákvörðun um framhaldið og það kæmi í ljós rétt fyrir leik í dag hvort Róbert yrði með.

Handbolti

HM 2013 | Ætlum okkur sigur – annað væri skandall

Það var frekar þungt yfir fyrirliða íslenska landsliðsins handbolta í gær þegar hann var inntur eftir því hvernig liðið myndi takast á við næsta leik gegn Síle. Ísland mætir Síle kl. 14:45 í dag en Sílemenn komu flestum á óvart í gær þegar liðið stóð vel í sterku liði Makedóníu sem landaði frekar naumum sigri, 30-28. Guðjón Valur Sigurðsson var allt annað en ánægður með sitt framlag í 30-25 tapleiknum gegn Rússum. Og það tók hann um það bil tíu sekúndur að svara því sem hann var spurður um Síle-leikinn.

Handbolti

HM 2013: Ég lét þá fífla mig hvað eftir annað

"Við spiluðum ekki nóg vel og vörnin hjá Rússunum var ekkert sérstök. Ég lét þá fífla mig hvað eftir annað og ég er alls ekki sáttur við minn leik,“ sagði Aron Pálmarsson leikmaður íslenska landsliðsins eftir 30-25 tap liðsins gegn Rússum á HM á Spáni. Aron skoraði 6 mörk en skotnýting hans hefur oft verið betri, alls 18 skot.

Handbolti

HM 2013: Getum ekki vælt og grenjað tap í fyrsta leik á stórmóti

"Ég er mjög svekktur með þetta tap en ég leyfi mér að vera svekktur í svona klukkutíma og þá er þetta búið. Við getum ekki vælt og grenjað tap í fyrsta leik á stórmóti – það er ekki góður grunnur til að byggja á fyrir næsta leik sem er strax á morgun gegn Síle,“ sagði Sverre Jakobsson leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta eftir 30-25 tap liðsins gegn Rússum á HM á Spáni í kvöld.

Handbolti