Barcelona skaut United í kaf

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi fagnar í kvöld.
Messi fagnar í kvöld. vísir/getty
Barcelona er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir samanlagt 4-0 sigur á Manchester United í átta liða úrslitunum en Börsungar unnu síðari leikinn í kvöld, 3-0.

Það var ljóst frá upphafi að verkefnið yrði erfitt fyrir United en þeir byrjuðu þó af miklum krafti. Marcus Rashford skaut meðal annars í þverslánna eftir 38 sekúndur og það var kraftur í United.

Heimamenn skoruðu þó fyrsta markið. Ashley Young var alltof lengi að losa sig við boltann, hann féll fyrir Lionel Messi sem labbaði framhjá Fred áður en hann skrúfaði boltann skemmtilega í fjærhornið.







Sýningin hjá Messi var ekki hætt. Hann tvöfaldaði forystuna fyrir Barcelona fjórum mínútum síðar. Skot hans með hægri fæti virtist auðvelt fyrir David de Gea en það varð ekki raunin. Spánverjinn missti boltann undir sig og í netið.

Eftir það var ljóst hvort liðið myndi fara áfram í undanúrslitin en það var bara spurning hversu stór sigurinn myndi verða. Staðan 2-0 í hálfleik.

Þriðja og síðasta mark leiksins kom á 61. mínútu en þá skoraði Philippe Coutinho með frábæru skoti. öll þrjú mörk Börsunga komu því fyrir utan teiginn í kvöld. Lokatölur 3-0 sigur Barcelona og samanlagt 4-0.







Barcelona mætir annað hvort Liverpool eða Porto í undanúrslitunum en Liverpool leiðir 2-0 eftir fyrri viðureignina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira