Messi með tvennu og forskot Börsunga 13 stig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi er kominn með 31 mark í spænsku úrvalsdeildinni.
Messi er kominn með 31 mark í spænsku úrvalsdeildinni. vísir/getty
Barcelona er komið með 13 stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Espanyol í Katalóníuslag í dag.

Lionel Messi skoraði bæði mörkin. Hann er langmarkahæstur í deildinni með 31 mark. Argentínumaðurinn hefur nú skorað 40 mörk eða meira í öllum keppnum tíu tímabil í röð.

Messi kom Barcelona yfir með marki beint úr aukaspyrnu á 70. mínútu. Hann bætti svo öðru marki við mínútu fyrir leikslok eftir skyndisókn og sendingu frá Malcolm.

Börsungar hafa unnið sex síðustu leiki sína en liðið stefnir hraðbyri að öðrum Spánarmeistaratitlinum í röð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira