Ólafur Karl lánaður til Noregs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2015 21:30 Ólafur Karl í leiknum gegn FH á mánudaginn. vísir/anton
Stjarnan hefur lánað Ólaf Karl Finsen til norska B-deildarliðsins Sandnes Ulf út tímabilið. Sandnes á svo forkaupsrétt á Ólafi þegar lánssamningurinn rennur út. Ólafur var einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar í fyrra þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Ólafur skoraði þá 11 mörk í 21 deildarleik, þ.á.m. bæði mörk Stjörnunnar í 2-1 sigrinum á FH í lokaumferðinni. Hann var einnig drjúgur í Evrópuleikjum Garðbæinga. Það hefur ekki gengið jafnvel í ár, hvorki hjá Ólafi né Stjörnunni sem er í 7. sæti Pepsi-deildarinnar með aðeins 20 stig eftir 16 leiki. Ólafur gerði þrjú mörk fyrir Stjörnuna í 16 deildarleikjum í sumar. Hjá Sandnes hittir Ólafur fyrir félaga sinn úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar í fyrra, markvörðinn Ingvar Jónsson, sem er á láni hjá félaginu frá Start. Sandnes er í 2. sæti norsku B-deildarinnar með 35 stig og á því góða möguleika á að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni eftir eins árs fjarveru.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Sjá meira