Óskar: Sameiginleg ákvörðun stjórnar og leikmanns Kristinn Páll Teitsson skrifar 27. júlí 2015 10:00 Glenn í leik með ÍBV á Kópavogsvelli. Vísir/Stefán „
Þetta var sameiginleg ákvörðun stjórnar og leikmannsins að þetta væri farsælasta lausnin. Hann sá ekki fram á að fá að spila nægilega margar mínútur það sem eftir lifir tímabilsins,“ sagði Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, aðspurður að því hver aðdragandinn væri að því að Jonathan Glenn, markahæsti leikmaður liðsins hefði gengið til liðs við Breiðablik á láni út árið. Heimamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson gekk til liðs við ÍBV á dögunum ásamt spænska framherjanum Jose Enrique og óskaði Glenn því eftir því að fá að fara frá félaginu að sögn Óskars. Gunnar Heiðar fór meiddur af velli í gær en þrátt fyrir það var tekin ákvörðun um að samþykkja tilboð Kópavogsliðsins. „Þetta eru búnar að vera viðræður undanfarna daga og við héldum að þessu væri lokið en eftir leikinn í gær hafa þeir samband aftur og við komumst að samkomulagi,“ sagði Óskar sem staðfesti að ÍBV væri að skoða möguleikann á að bæta við sig leikmanni. „Það er eitthvað sem er í skoðun að fá til liðs við okkur einn leikmann.“ Óskar var ósáttur með spilamennskuna í gær í 0-3 tapi gegn Stjörnunni en framundan eru leikir gegn KR í undanúrslitum Borgunarbikarsins og gegn Fylki og Leikni í Pepsi deildinni. „Það vantaði sömu ákefð og leikmenn sýna þegar þeir eru að spila á Hásteinsvelli. Við erum bjartsýnir fyrir leikina sem eru framundan og vonandi verður spilamennskan betri.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Blikar leigja Glenn af ÍBV Knattspyrnudeild Breiðabliks og ÍBV hafa náð samkomulagi um leigu á framherjanum Jonathan Ricardo Glenn út þetta keppnistímabil. 26. júlí 2015 23:23 Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Sjá meira
Blikar leigja Glenn af ÍBV Knattspyrnudeild Breiðabliks og ÍBV hafa náð samkomulagi um leigu á framherjanum Jonathan Ricardo Glenn út þetta keppnistímabil. 26. júlí 2015 23:23
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings