Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2026 09:58 Ein hjáleiðin fyrir olíu sem Írakar hafa fundið er að senda mikið magn af henni til strenudr Miðjarðarhafsins í Sýrlandi á fjölda olíuflutningabíla. AP/Baderkhan Ahmad Flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum og um Hormússund er nærri því sem það var áður en stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst í febrúar. Klerkastjórnin í Íran virðist vera að missa tökin á sundinu og þar með getuna til að beita efnahagslegum þrýstingi á Bandaríkjamenn, á sama tíma og herkví Bandaríkjanna gegn Íran hefur leitt til þess að Íran flytur varla dropa af olíu eða jarðgasi úr landi.
Þetta hefur ýtt undir vangaveltur um að klerkastjórnin muni reyna að stigmagna átökin til að efla stöðu sína í viðræðum við Bandaríkjamenn. Það gæti verið gert með auknum dróna- og eldflaugaárásum á olíuframleiðsluinnviði nágranna sinna eða með árásum á herafla Bandaríkjanna á svæðinu. Í frétt Wall Street Journal segir að Bandaríkjamenn hafi fylgt fjölda olíuflutningaskipa gegnum Hormússund að undanförnu og útflutningur um aðrar leiðir hafi einnig færst í aukana. Haft er eftir greiningaraðilum að í síðustu viku hafi heildarflæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum verið um áttatíu prósent af því sem það var áður en stríðið hófst. Í þessum mánuði hefur flæðið frá Sádi-Arabíu, Írak og Sameinuðu arabísku furstadæmunum verið um þrettán milljónir tunna á dag. Fyrir stríð var það um nítján milljónir tunna á dag. Viðkvæmt ástand Þrátt fyrir þessa þróun eru hagkerfi heimsins enn viðkvæm gagnvart frekari truflunum á olíuflæði, þar sem búið er að ganga verulega á birgðir víða um heim. Nýjar árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuleiðslur í Mið-Austurlöndum gætu breytt stöðunni hratt aftur til hins verra. Sjá einnig: Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Í frétt Reuters er bent á að þrátt fyrir þetta aukna olíuflæði frá Mið-Austurlöndum hafi olíuverð hækkað áfram. Að hluta til sé það vegna þess hve viðkvæmt núverandi ástand sé, hve litlar olíubirgðir séu til og hve lítið þurfi til að setja hlutina í uppnám aftur. Þá er haft eftir sérfræðingi að núverandi kerfi sem notað sé til að flytja olíuna sé flóknara og kostnaðarsamara en það sem var notað fyrir stríð. Til að mynda þurfi að flytja mikið af olíuafurðum milli skipa út á sjó og það spili inn í hærra olíuverð. Tunnan af Brent-hráolíu, sem er gjarnan notuð sem heimsviðmiðið, kostaði þegar þetta var skrifað rétt tæplega 105 dali. Hún var í kringum sextíu dali fyrir stríðið. Tekjulind klerkastjórnarinnar uppurin Samhliða þessu hefur olíuflutningur frá Íran dregist gífurlega saman vegna herkvíar Bandaríkjamanna um landið. Engum olíuflutningaskipum er hleypt til eða frá Íran. Áður en Íran var sett í herkví hafði klerkastjórnin komið fyrir umfangsmiklum birgðum af olíu og jarðgasi utan landamæra ríkisins, til að selja til annarra ríkja eins og Kína. Þær birgðir eru taldar vera að klárast alveg á næstu vikum. Sjá einnig: Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Þannig er klerkastjórnin líkleg til að missa sína allra mikilvægustu tekjulind en efnahagsástandið í Íran er verulega slæmt fyrir. Viðræður milli klerkastjórnarinnar og Bandaríkjamanna hafa haldið áfram. Trump hafnaði þó um helgina nýjasta tilboði klerkastjórnarinnar um leið að friði og hafa fjölmiðlar vestanhafs eftir ráðgjöfum hans að forsetinn búist við því að hefja aftur árásir á Íran eftir þingkosningarnar í nóvember.
Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Sjá meira