Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
1 2 3 4 5 6 … 9 ›
Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. Erlent 1.5.2026 00:02
Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Forráðamenn Knattspyrnusambands Íslands mættu á ársþing FIFA í Kanada í dag líkt og kollegar þeirra frá öllum öðrum löndum, fyrir utan Íran. Gianni Infantino, forseti FIFA, ítrekaði þó að Íranar yrðu með á HM í fótbolta í sumar. Fótbolti 30.4.2026 22:16
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. Erlent 30.4.2026 13:17
Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Yfirmönnum íranska knattspyrnusambandsins var vísað burt af landamæraeftirliti Kanada. Íran mun því ekki eiga fulltrúa á ársþingi FIFA sem fer þar fram um helgina. Fótbolti 30.4.2026 08:24
Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi. Erlent 30.4.2026 06:35
Áttu langt símtal Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma. Erlent 29.4.2026 18:32
Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína. Erlent 29.4.2026 13:45
Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu. Erlent 29.4.2026 09:50
Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Hið árlega pílagrímaflug Air Atlanta er komið á fulla ferð, þrátt fyrir að vera nærri áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Milli fimm- og sexhundruð starfsmenn félagsins koma að verkefninu að þessu sinni. Innlent 28.4.2026 18:48
Furstadæmin yfirgefa OPEC Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. Viðskipti erlent 28.4.2026 13:24
Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Þrátt fyrir að olíuverð hafi rokið upp og flutningaleiðir raskast eftir að Hormús-sundi var lokað af Írönum og Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran átti rússnesk ofursnekkja ekki í neinum vandræðum með að sigla í gegnum sundið um síðustu helgi. Erlent 28.4.2026 08:32
Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi. Erlent 28.4.2026 07:12
Trump segir komið að Írönum að hringja Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana. Erlent 26.4.2026 11:26
Segja engan fund á dagskrá Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad. Erlent 25.4.2026 08:21
Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Sérstakir erindrekar og samningamenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta halda til Pakistans í fyrramálið á fund með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans. Erlent 24.4.2026 19:17
Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi. Erlent 23.4.2026 22:38
Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað flotanum við Hormússund að skjóta á og sökkva hverjum báti sem leggur þar tundurdufl. Erlent 23.4.2026 13:46
Með lista yfir góða og slæma bandamenn Innan Hvíta hússins hefur hafa verið samdir listar um bandamenn sem forsvarsmönnum ríkisstjórnar Donalds Trump finnast vera góðir bandamenn annars vegar og slæmir bandamenn hins vegar. Til stendur að leita leiða til að refsa þeim bandamönnum Bandaríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins og sérstaklega þeim sem hafa ekki viljað standa við bak Bandaríkjamanna vegna stríðsins gegn Íran. Erlent 23.4.2026 12:01
Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Hermenn úr byltingarverði Íran tóku í dag yfir stjórn á tveimur skipum á Hormússundi og fylgdu þeim til hafnar í Íran. Þá varð þriðja skipið fyrir árás en Írönum tókst ekki að taka stjórn á því. Bandaríkjamenn meina enn öllum skipum að sigla til og frá Íran og Hormússundi er enn lokað. Erlent 22.4.2026 20:19
Framlengir vopnahléið og herkvína Donald Trump segist ekki ætla að skipa hernum að hefja á nýjan leik árásir á Íran þegar vopnahlé milli Bandaríkjamanna og Ísraela annars vegar og Írana hins vegar rennur sitt skeið á morgun. Hann segir að herkvínni gagnvart Íran verði þó haldið áfram. Erlent 21.4.2026 20:32
Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju. Erlent 21.4.2026 18:06
Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. Erlent 21.4.2026 07:21
Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag. Erlent 20.4.2026 06:47
Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. Erlent 19.4.2026 22:40
„Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Bandaríkjaforseti sakar Írani um brot á vopnahléssamkomulaginu eftir að Íranir skutu flutningaskip skömmu eftir að Hormússundi var lokað í gær. Fulltrúar Bandaríkjanna eru á leið til Pakistan til að halda áfram friðarsamkomulagi en vopnahléið rennur út eftir örfáa daga. Erlent 19.4.2026 14:29
Klukkan tifar og enn langt í land Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“ Erlent 19.4.2026 10:44
Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Knattspyrnukonurnar í íranska kvennalandsliðinu í fótbolta sem urðu eftir í Ástralíu eftir Asíubikar kvenna eru að hefja nýtt líf fjarri sviðsljósinu. Þær dreymir samt um að snúa aftur í fremstu röð í fótboltanum. Fótbolti 18.4.2026 23:17
Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Bandaríkjaforseti varar stjórnvöld í Íran við því að reyna að „kúga“ Bandaríkin með því að hætta við opnun Hormússunds. Yfirvöld í Teheran tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan tímabundið vopnahlé Íran og Bandaríkjanna væri í gildi. Erlent 18.4.2026 16:58
Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Tveir bátar Íranska byltingarvarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi. Erlent 18.4.2026 11:26
Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. Erlent 18.4.2026 08:46