Matvælastofnun

Fréttamynd

Sakar MAST um að ljóstra upp um stað­setningu skipa Hvals

Forstjóri Hvals hf. hefur sent Matvælastofnun fyrirspurn um það hvort eftirlitsskýrslur varðandi hvalveiði fyrirtækisins hafi verið afhentar þriðja aðila. Hann telur aðgerðarsinna á skipinu Bandero hafa nýtt skýrslurnar sem ógni öryggi starfsmanna Hvals og geri fyrirtækinu erfitt fyrir um veiðar á gjöfulum miðum.

Innlent
Fréttamynd

Klausturbleikjan fæst ekki lengur

Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sókn í gangi á lengd dauðastríðsins

Matvælastofnun rannsakar af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals. Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og leyfi Hvals afturkallað.

Innlent
Fréttamynd

Dræm lax­veiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“

Fyrstu laxveiðitölur sem berast eru þannig að hroll setur að veiðimönnum og þeim sem hafa með villta laxinn að gera. Guðni Guðbergsson er sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun og hann neitar að spá fyrir um laxveiðisumarið – segist aðeins spá ef spáin sé góð.

Innlent
Fréttamynd

Nóróveira í ostrum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Surasang frosnum ostrum sem Dai Phat flytur inn og selur í sinni verslun vegna nóvóveiru. 

Innlent
Fréttamynd

Allt eftir­lit mat­væla undir einni stofnun

Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, um nýja Stofnun atvinnuveganna var samþykkt á Alþingi í dag. Lögin munu taka gildi 1. janúar 2027 og þá mun stofnunin sömuleiðis taka til starfa. 

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opin­bert eftir­lit

Í grein hér á Vísi fjalla þeir Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ, Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um fyrirkomulag opinbers eftirlits . Þar lýsa þeir yfir stuðningi við þá hugmynd að eftirlit verði „samræmt“ með því að færa það frá sveitarfélögunum yfir til ríkisstofnanna.

Skoðun
Fréttamynd

Fleiri bitnir af hundunum

Tveir lausir Border Collie-hundar réðust á fólk við Reynisvatn í Grafarholti um helgina. Þá fóru í það minnsta tvö upp á slysadeild í kjölfar árásanna en nú hafa fleiri sögur sem hljóða svipað litið dagsins ljós. Fjöldi fólks hefur lýst áhyggjum af þessum hundum og hafa margir sagt eiganda þeirra vanhæfan. Mál þar sem hundar bitu fólk rötuðu inn á borð MAST um helgina og var á laugardaginn kallað á lögregluna vegna hundanna.

Innlent
Fréttamynd

„Bein­línis gengið í skrokk á fólki“

Matvælastofnun hefur ákveðið að kæra viðskiptavin vegna ógnandi hegðunar. Forstjórinn segir of algengt að starfsfólk verði fyrir hótunum í málum sem tengjast dýravelferð og að ákveðið hafi verið að leita til lögreglu til að tryggja betur öryggi þess. Dæmi séu um að ráðist hafi verið á starfsfólk með barefli.

Innlent
Fréttamynd

Hver er mál­svari dýranna?

Þegar umræðu um dýravelferð ber á góma í samfélaginu er oft fleygt því fram að hér séu annað hvort engir málsvarar dýra eða þá að sjálfskipaðir hópar þurfi að standa gegn yfirvöldum til að tryggja það að einhver tali rödd dýranna gagnvart andvaraleysi yfirvalda.

Skoðun
Fréttamynd

Enn ó­vissa um fram­tíð blóð­mera­halds: „Þetta er stórt og við­kvæmt mál“

Fagráð um velferð dýra komst ekki að samhljóma niðurstöðu um umsókn fyrirtækisins Ísteka um leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum. Tveir fulltrúar veittu neikvæða umsögn, tveir jákvæða. Auk þess sagðist yfirdýralæknir, formaður nefndarinnar, ekki geta veitt jákvæða umsögn og sagði skýringar Ísteka á samfélagslegum ávinningi ekki fullnægjandi.

Innlent
Fréttamynd

Kettir drápust á meðan eig­andinn var á ferða­lagi

Matvælastofnun fjarlægði ketti af heimili sem eigandi skildi eftir eina heima á meðan hann fór í margra vikna ferðalag erlendis. Nokkrir kattanna fundust dauðir. Stofnunin sektaði fjölda dýraeigenda fyrir vanbúnað og fjarlægði hund af heimili vegna vanrækslu.

Innlent
Fréttamynd

Fimm starfslokasamningar kostað Haf­ró 35 milljónir

Sautján starfslokasamningar hafa kostað atvinnuvegaráðuneytið og undirstofnanir þess rúmar 95 milljónir á undanförnum átta árum. Flestir starfslokasamningarnir hafa verið gerðir hjá Hafrannsóknarstofnun, alls fimm, á tímabilinu frá 2018 til 2025 sem kostað hafa stofnunina tæpar 35 milljónir.

Innlent
Fréttamynd

Laxar struku úr landeldi í Eyjum

Að minnsta kosti tveir laxar sluppu fyrir slysni úr landeldisstöð í Vestmannaeyjum og út í sjó. Ekki er útilokað að fleiri fiskar hafi sloppið.

Innlent
Fréttamynd

„Þessar fréttir ollu mér og fleirum van­líðan“

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, gagnrýnir vinnubrögð Matvælastofnunar í máli hundsins Úlfgríms en til stendur að aflífa hundinn. Hún segir fréttir af málinu hafa valdið sér vanlíðan og reiði. 

Innlent
Fréttamynd

MAST búið að snúa hnífnum

MAST hefur frestað fyrirhugaðri aflífun hundsins Úlfgríms um mánuð til að gefa eigenda hans færi á að sýna að hann hljóti viðeigandi meðferð. Í kjölfarið verður ákvörðunin endurskoðuð ef hann sýnir batamerki.

Innlent
Fréttamynd

Dagar Úffa mögu­lega taldir

Kona sem á hundi sínum líf sitt að þakka segist harmi slegin eftir að hafa fengið bréf frá Matvælastofnun þess efnis að aflífa eigi hundinn innan tveggja vikna vegna skorts á heilsu. Tveir dýralæknar hafi vottað heilsu Úlfgríms, eða Úffa eins og hann er kallaður.

Innlent
Fréttamynd

Vara við listeríu í rifnu grísakjöti

Listería fannst í svínakjötsrétti frá Ali og varar Matvælastofnun neytendur við þremur framleiðslulotum fyrirtækisins á vörunni. Um er að ræða rifið grísakjöt með BBQ-sósu frá framleiðandanum Síld og fiski ehf. en fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði.

Neytendur
  • «
  • 1
  • 2