Kosningar 2006

Fréttamynd

D-listinn sigurvegari á Tálknafirði

Sjálfstæðisflokkurinn á Tálknafirði hlaut tæp 60% atkvæða og þrjá fulltrúa af fimm í hreppsnefnd. T-listinn eða Tálknafjarðarlistinn hlaut rúm 36% atkvæða og 2 fulltrúa kjörna.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitar flokkanna mættu snemma að kjósa

Hátt í áttatíu og sexþúsund manns eru á kjörskrá í Reykjavík. Hægt er að kjósa á þrettán stöðum og voru kjörstaðir opnaðir klukkan níu í morgun og verður þeim ekki lokað fyrr en klukkan tíu í kvöld. Kjörsókn var fremur dræm framan af degi.

Innlent
Fréttamynd

Kraftlistinn sigraði með 9 atkvæða mun

K-listinn eða Kraftlistinn í Arnarneshreppi sigraði M-lista, Málefnalistann naumlega en talningu í Arnarneshreppi er lokið. Kraftlistinn hlaut 61 atkvæði og 3 fulltrúa í sveitarstjórn en Málefnalistinn hlaut 52 atkvæði og 2 fultlrúa.

Innlent
Fréttamynd

Minni kjörsókn í Reykjavík en árið 2002

38,22% kjósenda í Reykjavík höfðu greitt atkvæði klukkan 16 samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn. Í kosningunum 2002 höfðu 42,71% sem voru á kjörskrá, greitt atkvæði á sama tíma.

Innlent
Fréttamynd

Frambjóðendur voru sjálfir við vinnu í kjördeild

Frambjóðendur Framsóknar og Sjálfstæðisflokks voru sjálfir við vinnu í kjördeild á Hofsósi í morgun. Ásdís Ármannsdóttir formaður kjörstjórnar sagði í samtali við NFS að hún hefði fengið fregnir af þessu um hádegisbil og kallaði inn varamenn í kjörstjórn strax. Það er með öllu ólöglegt að frambjóðendur vinni sjálfir í kjördeildum.

Innlent
Fréttamynd

17,5 prósent búin að kjósa

Sautján og hálft prósent reykvískra kjósenda hafði greitt atkvæði á kjörstað klukkan eitt. Mest var kjörsóknin í Hlíðaskóla og Breiðagerðisskóla, tæpt 21 prósent, en áberandi minnst í Klébergsskóla, aðeins rúm ellefu prósent.

Innlent
Fréttamynd

Kjósa snemma og það sama og áður

Íbúar á dvalarheimilum aldraðra hafa sennilega fengið vænni skammt af kosningaáróðri en flestir aðrir. Óvíst er þó að það hafi skilað sér sem skyldi því þeir heimilismenn Hrafnistu sem NFS ræddi við í morgun kusu það sama og þeir höfðu gert hingað til.

Innlent
Fréttamynd

Kjörsókn dræmari en fyrir fjórum árum

Nú klukkan tólf höfðu 11,92 prósent kjósenda á kjörskrá í Reykjavík kosið. Á sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosningum höfðu 14,06 prósent kjósenda greitt atkvæði.

Innlent
Fréttamynd

Margt að varast í kosningum

Það er ýmislegt sem gott er að hafa í huga þegar gengið er til kosninga í dag. Þannig getur það til dæmis varðað sekt að gera sér upp sjónleysi til að fá aðstoð á kjörstað. Menn geta jafnvel lent í fangelsi fari þeir ekki rétt að öllum reglum.

Innlent
Fréttamynd

Kjörfundur er víðast hafinn

Sveitarstjórnakosningar hófust stundvíslega klukkan níu í morgun. Í Reykjavík fór atkvæðagreiðsla rólega af stað en á Akureyri var biðröð við Oddeyrarskóla þegar kjörstaður þar var opnaður klukkan níu.

Innlent
Fréttamynd

Elsti kjósandinn er 108 ára

Elsti kjósandinn í sveitarstjórnarkosningunum á morgun er 108 ára en um sextán þúsund og fimm hundruð manns mega kjósa í fyrsta sinn.

Innlent
Fréttamynd

Yfir tíu þúsund hafa þegar kosið

Yfir tíu þúsund manns hafa kosið utankjörfundar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hjá Sýslumannsembættinu í Reykjavík. Þetta eru mun fleiri en kusu alls utankjörfundar fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar.

Innlent
Fréttamynd

Kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna misvísandi

Kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru misvísandi. Í tveimur af þremur þeim nýjustu nær Sjálfstæðisflokkurinn ekki meirihluta í borginni og í þeirri þriðju er meirihluti flokksins mjög tæpur.

Innlent
Fréttamynd

Könnun á fylgi flokka á Álftanesi

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði skoðanakönnun fyrir íbúasamtökin Betri Byggð á Álftanesi, um fylgi stjórnmálaflokka á Álftanesi vegna bæjarstjórnakosninga í vor. Könnunin fór fram dagana 17. til 18. maí og stuðst var við 600 manna úrtak íbúa Álftanes 18 ára og eldri. Svarhlutfall í könnuninni var um 60%.

Innlent
Fréttamynd

Ekki móður á lokasprettinum

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar, segist síður en svo móður á lokasprettinum í kosningabaráttunni, þrátt fyrir að hún hafi í raun staðið hjá honum frá því í haust. Hann ræsti í dag unga sem aldna í árlegu Breiðholtshlaupi, í hverfinu þar sem hann hefur búið í liðlega aldarfjórðung.

Innlent
Fréttamynd

Lengsta kosningasjónvarp Íslandssögunnar

NFS verður með lengsta samfellda kosningasjónvarp í Íslandssögunni um helgina þegar sent verður samfleytt út í þrjátíu og fjórar klukkustundir, frá laugardagsmorgni til sunnudagskvölds.

Innlent
Fréttamynd

Endurgreiðsla fasteignagjalda gæti talist kosningaráróður

Endurgreiðsla á hluta fasteignagjalda í Kópavogi og Mosfellsbæ nú rétt fyrir kosningar gæti talist óleyfilegur kosningaáróður eða kosningaspjöll. Því halda Vinstri grænir í Kópavogi í það minnsta fram og í dag kærðu þeir endurgreiðslu bæjarins til yfirkjörstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn fær hreinan meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn er með rúmlega 47 prósenta fylgi og fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir NFS. Björn Ingi Hrafnsson oddviti Framsóknarflokks nær ekki kjöri samkvæmt könnuninni.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að yfirkjörstjórn stöðvi kosningaspjöll

Vinstri- grænir í Kópavogi hafa farið fram á það við yfirkjörstjórn bæjarins að skoðað verði hvort útsendar ávísanir frá bæjarsjóði sem sendar voru íbúum fjölbýla sem endrugreiðsla á fasteignagjöldum, brjóti í bága við 92. grein laga um sveitarstjórnakosningar. Krefjast Vinstri grænir þess að yfirkjörstjórn komi þegar saman og stöðvi yfirstandandi kosningaspjöll í Kópavogi að því að segir orðrétt í bréfi þeirra til yfirkjörstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi

Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn.

Innlent
Fréttamynd

Áhorfendur virkjaðir í kosningasjónvarpi

Áhorfendur kosningasjónvarps NFS, Stöðvar 2 og tengdra miðla verða virkjaðir á laugardagskvöld þegar þeir geta sent myndir og myndskeið af kosningavökum og -partíum víðs vegar um land. Það eina sem þarf til er farsími með myndavél.

Innlent
Fréttamynd

Læknirinn og frambjóðandinn á gamla vinnustaðnum

Læknirinn og frambjóðandinn Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar, heimsótti í dag sinn gamla vinnustað Landspítalann, til að kynna stefnumál flokksins. Sjálfur segist hann sakna gamla starfsins en er ekki viss um að það fái mikinn tíma með fram borgarstjórastarfinu.

Innlent
Fréttamynd

Margir hafa kosið utankjörfundar

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninganna hefur gengið vel um mest allt land. Um hádegi voru tæplega 7.000 manns búnir að kjósa í Laugardalshöllinni þar sem utankjörfundarkosning Sýslumannsembættisins í Reykjavík fer fram.

Innlent
Fréttamynd

D-listi á móti rekstri opinberra leikskóla?

Þrír frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru á móti rekstri opinberra leikskóla og opinberum framlögum til menningar- og menntamála. Þessu heldur frambjóðandi Samfylkingarinnar í borginni fram.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi.

Innlent