Erlend sakamál

Fréttamynd

Mynd af sverði birt um hálf­tíma fyrir morðið

Um tuttugu og fimm mínútum áður en lögreglunni í nágrenni Fagersta barst tilkynning um að maður hefði ráðist á nemendur í Brinell-skólanum með sverð að vopni var mynd af sverði birt á TikTok-aðgangi. Aðgangurinn tengist undirmenningu á netinu sem snýst um dýrkun á fjöldamorðingjum og þeim sem gera skólaárásir.

Erlent
Fréttamynd

Heita milljónum til að leysa fjölda morða og manns­hvarfa

Forsvarsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hafa heitið 25 þúsund dala (um þrjár milljónir króna) lágmarksverðlaunum fyrir upplýsingar í málum tuga manna og kvenna af frumbyggjaættum sem hafa horfið eða verið myrt. Tæplega 1.500 slík mál voru óleyst í Bandaríkjunum í lok síðasta árs en ofbeldi hefur lengi leikið samfélög fólks af frumbyggjaættum vestanhafs grátt.

Erlent
Fréttamynd

Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Sví­þjóð nafn­greindur

Hinn átján ára gamli Liam Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en hann er grunaður um morð og tilraun til manndráps eftir að 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárás í Fagersta í Svíþjóð. Hann var sjálfur nemandi við skólann þar sem hann gekk berserksgang vopnaður sverði föstudaginn 22. ágúst.

Erlent
Fréttamynd

Sakamálið sem skekur Banda­ríkin

Réttarhöld yfir bandarískri konu, sem játað hefur að hafa myrt börnin sín þrjú, hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Mikill fjöldi fylgist með réttarhöldum í beinni útsendingu á degi hverjum og hefur málið hrundið af stað umræðu um fæðingarþunglyndi og fæðingarsturlun.

Innlent
Fréttamynd

Fyrr­verandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífs­tíðar­fangelsi

Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“

Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra United Healthcare, af dögum árið 2024, hefur játað sök í málinu á alríkisstigi. Mangione á yfir höfði sér ákærur bæði frá alríkisdómstóli og dómstólum New York-ríkis fyrir meint morð á forstjóra bandaríska tryggingafélagsins.

Erlent
Fréttamynd

Mangione sagður ætla að játa

Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra tryggingafélagsins UnitedHealthcare, af dögum, er sagður ætla að játa. Lögmenn hans hafa átt í viðræðum við alríkissaksóknara en játning á alríkissvæðinu gæti verið notuð til að fá ákærur New York-ríkis gegn hinum meinta morðingja felldar niður.

Erlent
Fréttamynd

Assad dæmdur til dauða í heima­landinu

Dómstóll í Sýrlandi dæmdi Bashar al-Assad, fyrrverandi forseta landsins, til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi að honum fjarstöddum í dag. Bróðir Assad og frændi hlutu sama dóm.

Erlent
Fréttamynd

Sonur Bidens segir náðunina ekki góða á­kvörðun

Hunter Biden, sonur fyrrverandi Bandaríkjaforseta Joe Biden, segir það ekki hafa verið góða ákvörðun fyrir Bandaríkin að faðir hans náðaði hann fyrir brot gegn vopna- og skattalögum. Það hafi neikvæð áhrif á arfleið Joe Biden.

Erlent
Fréttamynd

Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna

Bandarískur dómari hefur gert tæknifyrirtækinu Meta að greiða sekt upp á rúman hálfan milljarð Bandaríkjadollara fyrir að vara almenning ekki við áhættuna sem samfélagsmiðlar Meta kunna að hafa á börn. Þetta bætist við aðra sekt upp á hundruð milljóna dollara.

Erlent
Fréttamynd

Á­hrifa­valdur myrtur í beinni

Mexíkóskur áhrifavaldur var í vikunni myrtur í beinni útsendingu. Morðið varpar enn ljósi á ofbeldið í Mexíkó og skipulagða glæpastarfsemi, sem hefur teygt anga sína til áhrifavalda þar í landi. Talið er að morðið tengist áhrifamiklum glæpasamtökum.

Erlent
Fréttamynd

Kona stakk fjóra í Lundúnum

Kona er grunuð um að hafa stungið fjóra karlmenn í Lundúnum í dag. Umrædd kona, sem mun vera 47 ára gömul, hefur verið handtekin.

Erlent
Fréttamynd

Lýsti mikilli ör­væntingu áður en hún myrti börnin sín

Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik.

Erlent
Fréttamynd

Skila­boð send úr símanum í blekkingar­skyni

Gríska lögreglan hefur til rannsóknar andlát skoskrar konu sem fannst látin í ferðatösku í yfirgefinni byggingu í Aþenu. Grunur leikur á að einhver hafi haft umráð yfir farsíma hennar eftir andlátið og sent skilaboð til að villa um fyrir þeim sem leituðu hennar.

Erlent
Fréttamynd

„Hún drap börnin“

Kona sem sökuð er um að hafa myrt þrjú börn sín brast í grát í dómsal í Bandaríkjunum í gær, þegar hún og aðrir í dómsalnum hlustuðu á símtal fyrrverandi eiginmanns hennar til Neyðarlínunnar. Lindsay Clancy er sökuð um að hafa kyrkt fimm ára dóttur sína, þriggja ára son og átta mánaða son og er hún lömuð eftir að hafa reynt að svipta sig lífi í kjölfarið.

Erlent
Fréttamynd

Fölsk játning í formi lags

Lag í nafni bandaríska tónlistarmannsins D4vd, sem heitir réttu nafni David Anthony Burke, birtist á reikningi hans á streymisveitunni Apple Music á dögunum. Það að lag sé gefið út eitt og sér þarf ekki vera fréttnæmt, en það var svo í þessu tilfelli þar sem lagið var í raun játning á glæpum sem Burke er nú grunaður um að hafa framið.

Erlent
Fréttamynd

Southport-morðinginn fluttur á geð­deild

Maður sem myrti þrjár ungar stúlkur og stakk mörg önnur börn í hnífaárás í Southport Á Englandi árið 2024 hefur verið fluttur úr fangelsi og vistaður á geðdeild. Flutningarnir eiga engin áhrif að hafa á 52 ára dóm hans.

Erlent