Leikskólar

Fréttamynd

Barn­laus leik­skóli

Sigrún Grétarsdóttir, leikskólastjóri í Hólaborg í Breiðholti í Reykjavík, var mætt til vinnu snemma í morgun en lágmarksopnun var í öllum leikskólum borgarinnar og mælst var til þess að fólk kæmi ekki með börnin nema nauðsyn væri.

Innlent
Fréttamynd

Skóla­haldi ekki af­lýst en raskanir boðaðar

Biðlað er til foreldra á höfuðborgarsvæðinu að hafa börn sín heima meðan óveður ríður yfir landshlutann. Töluvert rask verður á skólastarfi en skólar og leikskólar verða opnir til þess að framlínustarfsmenn geti sinnt störfum sínum. 

Veður
Fréttamynd

Taka á­kvörðun um skóla­hald síð­degis

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Fjölga plássum og breyta nafni eins leik­skóla

Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. 

Innlent
Fréttamynd

Harmi slegin vegna fjölda til­kynninga af leik­skólum

Barnamálaráðherra segir ljóst að bregðast þurfi við holskeflu mála sem hafa komið upp nýverið þar sem starfsmenn leikskóla eru sakaðir um brot gegn börnum. Ráðherrann segist í áfalli vegna fjöldans en sex mál á jafnmörgum leikskólum hafa komið upp undanfarið ár.

Innlent
Fréttamynd

Starfs­maður leik­skóla rekinn vegna at­viks en for­eldrar ekki látnir vita

Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp en foreldrar voru ekki látnir vita. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Bærinn hefur óskað eftir því að rannsókn verði hafin á ný.

Innlent
Fréttamynd

Minnir á að flest kyn­ferðis­brotin eigi sér stað á heimilinu

Meint brot gegn barni á Krakkakoti á Álftanesi sem barnayfirvöldum í Garðabæ var tilkynnt um í síðustu viku er komið inn á borð lögreglu. Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir eðlilegt að fjöldi frétta um meint brot á leikskólum veki ugg en segir börn alltaf þurfa að njóta vafans.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sökuðu meint kyn­ferðis­brot á leik­skóla

Lögreglan á Suðurlandi hafði til rannsóknar tilkynningu um meint kynferðisbrot á leikskólanum á Flúðum fyrr á árinu. Enginn er með réttarstöðu sakbornings en starfsmanni var vikið úr starfi meðan á rannsókninni stóð.

Innlent
Fréttamynd

Þegar bið­listinn víkur fyrir tíma­bundnum lausnum

Umræða um leikskólapláss fyrir börn hælisleitenda hefur að miklu leyti verið sett fram sem siðferðislegt próf á samúð. Það er skiljanlegt, en það er ekki nægjanlegt. Þegar opinber þjónusta sem nú þegar er sprungin og því nauðsynlegt að ræða forgangsröðun af raunsæi og sanngirni.

Skoðun
Fréttamynd

Gert að rann­saka tvö mál betur en gefa ekkert upp

Embætti Héraðssaksóknara gefur ekkert upp um stöðuna á rannsókn mála tveggja barna á leikskólanum Múlaborg, sem Ríkissaksóknari gerði embættinu að taka til meðferðar á ný. Starfsmaður á leikskólanum hefur verið ákærður fyrir að nauðga einu barni tvívegis.

Innlent
Fréttamynd

Kópavogsleiðin er merki­legt fyrir­bæri

Kópavogsleiðin er svolítið merkilegt fyrirbæri. Ég finn mig knúna til að tjá mig um hana og hvernig hún reynist mér, einstæðri móður tveggja stúlkna sem eru í leikskóla annars vegar og grunnskóla hins vegar.

Skoðun
Fréttamynd

Já­kvæð á­hrif Kópavogsleiðarinnar

Umræða um leikskólamál hefur verið lífleg undanfarið og Kópavogsleiðin sérstaklega til umræðu. Skoðanir eru skiptar, eins og eðlilegt er þegar gerðar eru breytingar á mikilvægu samfélagskerfi.

Skoðun
Fréttamynd

Þó­nokkuð margir búnir að stytta leikskóla­vist á föstu­dögum

Fimmtán prósent foreldra eða forráðafólks leikskólabarna í Reykjavík hafa breytt dvalartíma barna sinna vegna innleiðingar Reykjavíkurleiðarinnar. Skrifstofustjóri á leikskólasviði Reykjavíkurborgar segir marga stytta dvalartíma á föstudögum. Það sé ánægjulegt hversu margir hafa þegar brugðist við.

Innlent
Fréttamynd

Opið bréf frá leikskólastjórnendum í Kópa­vogi

Kæri bæjarstjóri og bæjarstjórn í Kópavogi, takk fyrir að hlusta á ákall okkar leikskólastjórnenda og annarra hagsmunaaðila leikskóla og bregðast við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Hafa til sunnu­dags að breyta dvalar­tíma upp á nýju gjöldin

Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík verða að breyta dvalartíma barna sinna fyrir miðnætti á sunnudag vilji þau að greiðsluseðill í apríl taki mið af breyttri gjaldskrá. Sviðsstjóri á skóla- og frístundasviði segir borgina vinna að því að finna aðrar leiðir og ekki sé þörf á panikki. Umsóknarkerfið verður fryst á mánudag í sex vikur vegna „stóru innritunarinnar“ fyrir haustið.

Innlent
Fréttamynd

Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skóla­kerfinu

Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis.

Innlent
Fréttamynd

Reykjavíkurleiðin - ný nálgun að betri leik­skóla

Undanfarna níu mánuði hef ég tekið þátt í vinnu stýrihóps sem hafði það megin hlutverk að koma með umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla og samtímis standa vörð um faglegt leiksksólastarf og setja öryggi barna í forgang.

Skoðun
Fréttamynd

Einn leik­skóli inn, annar út og starf­semin á flakki milli húsa

Þrátt fyrir boðaðar úrbætur með Reykjavíkurmódelinu svokallaða í leikskólamálum þarf meira til að leysa úr húsnæðis- og mönnunarvanda að sögn leikskólastjórnenda. Fréttastofa leit við á þremur leikskólum í dag þar sem flutningar standa yfir, ýmist vegna eftirleiks af völdum myglu eða yfirvofandi þakviðgerða. 

Innlent
Fréttamynd

Jötunheimar á Sel­fossi verður tólf deilda leik­skóli

Framkvæmdir standa nú yfir á fullum krafti við byggingu nýs leikskóla á Selfossi en skólinn, sem er sex deilda í dag verður tólf deilda og þar með stærsti 12 deilda leikskóli landsins undir sama þaki. Fulltrúar leikskólabarnanna hjálpuðu fullorðna fólkinu við að taka fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni.

Innlent
Fréttamynd

Hætta að rukka for­eldra fyrir leik­skóla­pláss í Ölfusi

Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. 

Innlent