Líknardráp

Dánaraðstoð: Er læknastéttin hrædd við að vera ekki með nógu góð rök?
Undanfarin ár hefur því oft verið haldið fram að umræðan um dánaraðstoð sé ekki nægjanleg og þurfi að aukast. Um það má auðvitað deila. Lífsvirðing tók nýlega saman allt sem hefur komið fram í miðlum undanfarin ár eða frá 1989; greinar í hinum ýmsu fjölmiðlum, ritgerðir úr háskóla á Skemmunni, umræður á Alþingi, skrif í Læknablaðinu o.fl.

Læknafélagið leggst gegn skoðanakönnun um dánaraðstoð
Læknafélag Íslands telur umræðu um dánaraðstoð hafa verið einhliða og bjagaða. Félagið geti ekki stutt þingsályktunartillögu um gerð skoðanakönnunar meðal heilbrigðisstarfsfólks um afstöðu þeirra til dánaraðstoðar.

Dánaraðstoð: Hugtakanotkun skiptir máli
Í yfirlýsingu á heimasíðu Læknafélags Íslands gagnrýna starfsmenn líknarráðgjafarteymis Landspítala (LSH) skýrslu heilbrigðisráðherra um dánaraðstoð sem birt var 4. september sl. Formaður Læknafélags Íslands, Reynir Arngrímsson, tekur undir athugasemdir þeirra og krefst þess að skýrslan verði dregin til baka og innihald hennar leiðrétt.

Spánn fjórða Evrópuríkið til að lögleiða dánaraðstoð
Spænska þingið samþykkti í dag að heimila dánaraðstoð og líknardráp hjá sjúklingum sem glímt hafa við ólæknandi sjúkdóma til að gefa þeim möguleika á að binda enda á þjáningar sínar. Spánn verður þar með sjöunda ríki heims til að lögleiða dánaraðstoð og það fjórða í Evrópu.

Að lifa og deyja með reisn - svargrein
Þann 30. janúar sl. birtist grein á visir.is sem ber heitið Að lifa og deyja með reisn. Greinina rita 5 læknar og hjúkrunarfræðingar, þær Kristín Lára Ólafsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Vigdís Hallgrímsdóttir og Vilhelmína Haraldsdóttir.

Að lifa og deyja með reisn
Í vikunni birtu fimm norræn félög um dánaraðstoð yfirlýsingu þar sem þau hvetja ríkisstjórnir á Norðurlöndum til að grípa til ráðstafana svo íbúar landanna hafi með löglegum hætti val um að fá læknisfræðilega aðstoð við að deyja.

Mega gefa heilabiluðum sljóvgandi án samþykkis fyrir dánaraðstoð
Reglum hefur verið breytt í Hollandi þannig að læknir má nú, án samþykkis, gefa sjúklingi sljóvgandi lyf áður en hann gefur honum lyf sem binda enda á líf sjúklingsins. Þetta ákvað nefnd sem fjallar um dánaraðstoð í kjölfar dóms þar sem læknir var sýknaður einmitt af þessum gjörningi.

Nýsjálendingar höfnuðu kannabis en vilja heimila dánaraðstoð
Tvær þjóðaratkvæðagreiðslur voru haldnar á Nýja Sjálandi á dögunum samhliða þingkosningum þar í landi og voru bráðabirgðaúrslit úr þeim kunngjörð í morgun.

Lokar á útsendingu frá síðustu stundum manns sem var meinað um dánaraðstoð
Facebook hefur lokað fyrir beina útsendingu fransks manns sem hafði í hyggju að sýna beint frá síðustu dögum lífs síns.

Skýrsla um dánaraðstoð lögð fram á Alþingi
Í skýrslunni er m.a. fjallað um þróun lagaramma í löndum þar sem dánaraðstoð er leyfð, um tíðni, ástæður og skilyrði dánaraðstoðar í þeim löndum og hver reynslan hefur verið.

Nýsjálendingar kjósa um lögleiðingu líknardráps
Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin samhliða þingkosningum á næsta ári. Á sama tíma verður kosið um hvort að lögleiða eigi kannabis í landinu.

Ólympíumeistari fékk dánaraðstoð
Marieke Vervoort naut aðstoðar lækna við að deyja.

Dánaraðstoð í Sviss
Reynslusaga mín sem hef tvisvar á sex árum upplifað dánaraðstoð við náinn aðstandanda.

Sækja mál gegn lækni sem framkvæmdi líknardráp á sjúklingi með Alzheimer
Hollenskir dómstólar reka nú mál gegn þarlendum lækni vegna líknardráps, sem hann framkvæmdi árið 2016.

Kona á sjötugsaldri fyrst til þess að nýta sér nýsamþykkt lög um líknardráp
Hin 61 árs gamla Kerry Robertson lést á hjúkrunarheimili í Victoriuríki í Ástralíu í júlí.

Að fá að deyja með reisn
Í asanum sem jafnan fylgir þinglokum eru ýmis mikilvæg mál afgreidd sem ekki fá mikla athygli. Dæmi um slíkt er gerð skýrslu um dánaraðstoð sem er afar viðkvæmt mál enda álitaefnin margvísleg.

Að fá að kveðja
Svo að segja hver einstaklingur verður einhvern tíma á lífsleiðinni vitni að því að einhver honum nákominn veikist svo alvarlega að öllum er ljóst að ekkert bíður hans nema dauðinn.

Snýst um að enda þjáningar en ekki líf
Sérfræðingar á sviði dánaraðstoðar frá Belgíu og Hollandi mæla með því að Íslendingar ræði málefnið á opinskáan hátt og horfi til reynslu sinna þjóða. Í Belgíu er litið á dánaraðstoð sem hluta af líknandi meðferð.

Minnst fimm Íslendingar hafa sótt um dánaraðstoð
Einn hefur fengið ósk sína uppfyllta.

Lög um líknardauða felld úr gildi í Kaliforníu
Dómari í Kaliforníu hefur fellt úr gildi lög um líknardráp vegna formgalla. Lögin voru samþykkt fyrir þremur árum og voru afar umdeild. Samkvæmt þeim gátu dauðvona sjúklingar, sem eiga minna en hálft ár eftir ólifað að mati lækna, farið fram á að vera gefin banvæn lyf í stað líknandi meðferðar.