Innlent
Fylgst með reiðhjólanotkun Í Kópavogi segist lögregla hafa sérstakt auga með reiðhjólafólki og börnum á reiðhjólum þessa dagana. Þetta mun vera eitt af hefðbundnum vorverkum lögreglu víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu, enda reiðhjólanotkun að aukast með bættu tíðarfari. Innlent 13.10.2005 19:12
Bandaríkin kalla hermenn heim Bandaríkjamenn hafa ákveðið að flytja 13 þúsund hermenn frá Þýskalandi og Suður-Kóreu. Þetta er liður í allsherjarniðurskurði þar sem til stendur að loka um 150 herstöðvum. Um þetta var tilkynnt í bandaríska varnarmálaráðuneytinu í gær. Erlent 13.10.2005 19:12
Tafir við Miklubraut í tvær vikur Miklabraut til móts við Rauðarárstíg verður þrengd tímabundið 17.-31. maí vegna framkvæmda við tengingu Hringbrautar. Akreinum verður fækkað úr fjórum í tvær, ein í hvora átt. Innlent 13.10.2005 19:12
Skrúfa af kanadískum tundurspilli Landhelgisgæslan kom með skrúfu af kanadíska tundurspillinum Skeenu að Reykjavíkurhöfn í dag. Skeena strandaði við vesturenda Viðeyjar í nóvember árið 1944. Innlent 13.10.2005 19:12
Fyrsti kvenkyns stórmeistarinn Menntamálaráðherra og Lenka Pitasníkóva hafa skrifað undir samning um að Lenka fái laun úr Launasjóði stórmeistara, fyrst íslenskra kvenna. Lenka hlaut íslenskan ríkisborgararétt á síðasta ári og er tíundi íslenski stórmeistarinn. Innlent 13.10.2005 19:12
Hagnaður bankanna 20 milljarðar Samanlagður hagnaður bankanna nam rúmum 20 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hagnaður KB banka nam rúmum 11 milljörðum króna, hagnaður Íslandsbanka nam þemur milljörðum króna og Landsbankinn var með slétta sex milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Börnin gætu ráðið ferðinni Menntamálaráðuneytið býður nú nemendum í 10. bekk í fyrsta skipti upp á að sækja um framhaldsskóla rafrænt á netinu. Öllum útskriftarnemum úr grunnskólunum er sendur heim veflykill og leiðbeiningar sem þeir geta notað til að skrá sig inn á þar til gerða vefsíðu og þar sótt um þann framhaldsskóla sem þeim hugnast. Innlent 13.10.2005 19:12
Persónuupplýsingar gegn greiðslu Smartkort hf. hefur fengið einkaleyfi á tækjum og ferlum sem gera möguleg skipti á persónuupplýsingum gegn greiðslu, hvort sem hún er í formi fjármuna, afsláttar, bónuspunkta eða annarra fríðinda. Innlent 17.10.2005 23:41
Mærir Íslendingasögur í bók Hinn heimskunni tékknesk-franski rithöfundur Milan Kundera fer fögrum orðum um íslenska sagnaarfinn í bók sem nýverið kom út í Frakklandi. Innlent 13.10.2005 19:12
Neysluverðsvísitalan lækkar Neysluverðsvísitalan lækkaði á milli mánaða. Lækkunin nemur 0,54%. Lækkunina má meðal annars rekja til harðrar verðsamkeppni á matvörumarkaði sem reyndar ríkir enn en verð á dagvöru lækkaði um 4% á milli tímabila. Þá lækkaði eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs um 1,4%. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Krónan hefur lækkað um 8,6% Krónan lækkaði um ríflega eitt prósent í morgun eftir birtingu vísitölu neysluverðs. Greiningardeild Íslandsbanka segir krónuna hafa lækkað nokkuð hratt síðustu vikur en frá því að gengi krónunnar stóð hæst á árinu, í lok marsmánaðar, hefur gengi hennar lækkað um 8,6 prósent. Dollarinn hefur á sama tíma hækkað úr tæpum 59 krónum í 66 krónur. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Náðu skrúfu af hafsbotni Áhöfn Óðins og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar náðu upp skrúfu sem legið hafði á sjávarbotni við Viðey síðan í október 1944. Skrúfan er úr kanadíska tundurspillinum Skeena, sem strandaði við Viðey í ofsaveðri. Fimmtán manns fórust þá eftir að þeir yfirgáfu skipið í björgunarbátum og -flekum. Innlent 13.10.2005 19:12
Young í tvöfalt lífstíðarfangelsi Dómari í Pensacola í Flórída dæmdi í gærkvöldi Sebastian Young í tvöfalt lífstíðarfangelsi en hann myrti hina hálfíslensku Lucille Mosco á heimili hennar þann 14. mars árið 2003. Sonur hennar, Jón Atli Júlíusson, særðist alvarlega í árásinni. Innlent 13.10.2005 19:12
Gunnar velkominn í flokkinn Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að þar sem Gunnar Örn Örlygsson hafi tekið út sína refsingu sé hann velkominn í Sjálfstæðisflokkinn. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist ekki vita hvort úrsögn Gunnars skaði flokkinn. Innlent 13.10.2005 19:12
Atlantsolía opnar í Njarðvík Samkeppnin í bensín- og olíusölu í Reykjanesbæ eykst í dag þegar Atlantsolía tekur í notkun nýja stöð í Njarðvík. Þetta er fjórða stöð félagsins en að sögn talsmanns Atlantsolíu verður á næstu vikum tilkynnt um fleiri stöðvar sem til stendur að opna á næstunni. Innlent 13.10.2005 19:12
Lítill drengskapur Gunnars "Það er augljóst mál, að þingmaður sem nú vill styðja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Halldórs Ásgrímssonar, á ekki heima í Frjálslynda flokknum," segir í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundi miðstjórnar Frjálslynda flokksins um ákvörðun Gunnars Örlygssonar að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 13.10.2005 19:12
950 manns með öðrum í herbergi 950 aldraðir búa í herbergi með öðrum á hjúkrunarstofnunum og eru þá frátalin hjón og sambúðarfólk. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins Sigurðssonar á Alþingi. Innlent 13.10.2005 19:12
Stóraukið framlag til HÍ Í ályktun frá Félagi háskólakennara og Félagi prófessora í Háskóla Íslands er þess krafist að stjórnvöld komi að uppbyggingu Háskólans með stórauknu framlagi til rannsókna og kennslu. Innlent 13.10.2005 19:12
Klofinn dómur í kynferðisbrotamáli Héraðsdómur Norðurlands vestra klofnaði í máli manns sem sakaður var um kynferðisbrot gegn ungri systurdóttur sinni. Tveir dómarar sýknuðu manninn, en sá þriðji skilaði séráliti og vildi dæma hann í 10 mánaða fangelsi. Ákvörðun um áfrýjun liggur ekki fyrir. Innlent 13.10.2005 19:12
Íslandsmetið í blindskák slegið? Henrik Larsen, stórmeistari í skák og skólastjóri Hróksins, ætlar að reyna að slá Íslandsmetið í blindskák í dag. Hann ætlar að tefna 18 blindskákir samtímis en það er sjö skákum meira en núverandi Íslandsmet sem Helgi Áss Grétarsson setti fyrir tveimur árum. Innlent 13.10.2005 19:12
Hraðamet í afgreiðslu þingmála Alþingi fór í sumarleyfi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld eftir að Halldór Blöndal, fráfarandi þingforseti, hafði slegið hraðamet í afgreiðslu mála. Innlent 13.10.2005 19:12
Olíudæla í gömlu bryggjuhúsi Olíudreifing er með olíuafgreiðslu í einu elsta bryggjuhúsi Íslendinga sem stendur inni á minjasvæði Tækniminjasafns Austurlands á Seyðisfirði. Olíu er dælt úr slöngu sem liggur utan á húsinu, tíu metra frá fjöruborðinu, og eru varnir litlar. Olían rennur beint út í sjó ef slys verður. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:12
6 milljarða hagnaður Landsbankans Hagnaður Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi var sex milljarðar króna eftir skatta. Arðsemi eigin fjár var 82 prósent og er þetta besta afkoma bankans frá upphafi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:12
Nær öllu starfsfólkinu sagt upp Nær öllu starfsfólki hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur verið sagt upp störfum. Þar eru ekki nægir bátar til að útvega fiskvinnslunni hráefni; þeir eru allir uppteknir á grásleppuveiðum. Innlent 13.10.2005 19:12
Minni verslanir mega hafa opið Á hvítasunnudag verður heimilt að hafa þær matvöruverslanir opnar sem eru að hámarki 600 fermetrar að stærð og a.m.k. tveir þriðju hlutar veltunnar er sala á matvælum, drykkjarvöru og tóbaki. Innlent 13.10.2005 19:12
Allir vilja Jökulsárlón Aðalmeðferð fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi í máli fjármálaráðuneytisins á hendur Sameigendafélagi Fells og Einari Birni Einarssyni til að fá hnekkt úrskurði Óbyggðanefndar um eignarhald á Jökulsárlóni og stórum hluta jarðarinnar Fells í Suðursveit. Innlent 13.10.2005 19:12
Dalsmynnisdómur stendur Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms um að maður og kona greiði Hundaræktinni Dalsmynni samtals um 730 þúsund krónur fyrir fimm hunda sem þau keyptu í ársbyrjun árið 2002, alla af Chihuahua-smáhundategund, einn hund og fjórar tíkur. Innlent 13.10.2005 19:12
Lithái sendur til Þýskalands Hæstiréttur staðfesti í vikunni úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að framselja bæri litháískan mann til Þýskalands. Hingað kom maðurinn með Norrænu í byrjun mars. Innlent 13.10.2005 19:12
Skjálftahrinan heldur áfram Skjálftahrinan suður af Reykjanesi heldur áfram en frá því á miðnætti hafa fjórtán skjálftar orðið þar, sá öflugasti 3,9 á Richter. Sá síðasti varð um stundarfjórðungi yfir átta í morgun. Flestir urðu þeir í námunda við Eldeyjarboða. Innlent 13.10.2005 19:12
Forsætisráðherra til Noregs Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona hans, verða í opinberri heimsókn í Noregi dagana 13. til 15. maí. Tilefni heimsóknarinnar er meðal annars að nú eru 100 ár frá því Norðmenn öðluðust sjáflstæði og norska konungdæmið var endurreist. Innlent 13.10.2005 19:12