Innlent

Fréttamynd

Ákærður fyrir að rassskella konu

Sævar Óli Helgason er ákærður fyrir að veitast að konu sem lagði fyrir innkeyrsluna hans í fyrrahaust. Hann segir leikskólakennarann hafa vegið að sér kynferðislega og reynt að sparka í punginn á sér, hann hafi því rassskellt hana.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Fallvölt ímynd í stjórnmálum

Hveitibrauðsdögum nýrrar forystu Samfylkingarinnar lauk á fyrsta degi eftir tímamótalandsfund um síðustu helgi. Trúverðugleikinn er á vogarskálum þar sem Ágúst Ólafur Ágústsson verst ásökunum um að hafa beitt sviksamlegum vinnubrögðum í kjöri um embætti varaformanns.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Varar við byggð í eyjunum

Hugmyndir borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins um íbúðabyggð á eyjunum í kringum Reykjavík eru fáránlegar, segir Jóhann Óli Hilmarsson formaður Fuglaverndunarfélags Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Vélarvana við Látrabjarg

Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, Vörður, var í gærmorgun kallað út vegna vélarvana báts eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi.

Innlent
Fréttamynd

Mál á hendur Ramsey þingfest

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag ákæra á hendur Scott Ramsey sem varð 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Sló Ramsey manninn í hálsinn hægra megin með þeim afleiðingum að rifa kom á slagæð sem leiddi til mikilla blæðinga milli heila og heilahimnu af völdum höggsins sem leiddi til dauða hans.

Innlent
Fréttamynd

ESA rannsakar stuðning við Farice

Eftirlitsstofnun EFTA hefur hafið rannsókn á stuðningi íslenskra stjórnvalda við Farice-verkefnið. Um er að ræða sæstreng sem var tekinn í notkun í fyrra og jók möguleika þjóðarinnar á samskiptum við útlönd um síma eða Netið þúsundfalt. Efasemdir hafa vaknað hjá eftirlitsstofnuninni, sem hefur umsjón með að reglum sé fylgt á evrópska efnahagssvæðinu, um að hlutafjáraukning ríkisins í verkefninu og ríkisábyrgð standist reglurnar.

Innlent
Fréttamynd

Kynferðisbrotakafli endurskoðaður

Dómsmálaráðuneytið vinnur nú að breytingum og er að semja drög að frumvarpi á þeim ákvæðum í kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga sem fjalla um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Hefur ráðuneytið fengið Ragnheiði Bragadóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, til að semja drög að frumvarpi vegna breytinga á ákvæðunum.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir fyrir vopnaburð

Þrír menn á þrítugsaldri voru dæmdir til að greiða 30 þúsund krónur hver, fyrir að bera ólögleg bitvopn á almannafæri í miðborg Reykjavíkur þann 12. apríl síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Æ fleiri heitir reitir hjá OgVodafone

Sífellt fleiri fyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum upp á Heita reiti (Hot Spot), þráðlausa háhraða nettengingu, frá Og Vodafone. Um 50 veitinga- og kaffihús og ýmiss konar þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri hafa nú þegar tekið þjónustuna í notkun.

Innlent
Fréttamynd

Sakar DV um gróft virðingarleysi

Forstjóri Landspítalans sakar DV um að sýna manni, sem sýktist af hermannaveiki, gróft virðingarleysi með því að birta mynd af honum og nafn hans í blaðinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Leikfélagið sýknað

Leikfélag Akureyrar hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi leikara félagsins um vangoldin laun vegna ólögmætrar uppsagnar.

Innlent
Fréttamynd

Gagnvirkt sjónvarp ekki fyrir alla

Gagnvirkt sjónvarp, sem Síminn er þessa dagana að kynna viðskiptavinum sínum, verður aðeins í boði á Akureyri og Húsavík, utan suðvesturhorns landsins.

Innlent
Fréttamynd

Ætlaði að selja efnin

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem tekinn var með 300 grömm af amfetamíni á heimili sínu í ársbyrjun 2004.

Innlent
Fréttamynd

Endurtaka þarf viðvörun við börn

Endurtekin fræðsla þar sem börn eru vöruð við því að fara upp í bíl með ókunnugum er nauðsynleg. Foreldrar verða líka að vera vissir um að börnin skilji það sem við þau er sagt.

Innlent
Fréttamynd

Skuldir heimilanna 900 milljarðar

Heimilin í landinu skulduðu tæpa 900 milljarða um síðustu áramót sem jafngildir um þremur milljónum á hvern Íslending. Skuldirnar jukust um 107 milljarða á einu ári. Heimilin hafa eignast meira og var eignamyndunum meiri en skuldir á sama tíma.

Innlent
Fréttamynd

ASÍ bregst harkalega við

ASÍ bregst harkalega við yfirlýsingum fjármálaráðherra um vaxtabótakerfið. Ráðherrann telur koma til greina að endurskoða kerfið frá grunni. Samtök atvinnulífsins telja hins vegar fullt tilefni til að lækka vaxtabætur þar sem fasteignaviðskipti drífi áfram verðbólguna.  

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Afpláni tvö síðustu árin á Íslandi

Einar S. Einarsson, einn þeirra sem eru að reyna að fá Aron Pálma Ágústsson leystan úr haldi fangelsisyfirvalda í Texas, segir vonir standa til að hann fái að afplána tvö af tíu síðustu árum dóms síns hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Kosningar lögmætar

Kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar segir að kosningar í öll embætti á landsfundinum hafi verið lögmætar og í samræmi við reglur flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú ár fyrir tæp þrjú kíló

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær yfir fjórum sakborningum í einum anga Dettifossmálsins. Sá angi snýr að innflutningi á um 2,7 kílóum af amfetamíni og um 600 grömmum af kókaíni. Dettifossmálið svokallaða er þó mun stærra í heild sinni.

Innlent
Fréttamynd

Mannbjörg þegar Gideon sökk

Áhöfn íslenska togarans Péturs Jónssonar RE bjargaði öllum fimmtán í áhöfn lettneska skipsins Gideon þegar það sökk á Flæmska hattinum um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld. Barst neyðarkall frá skipinu laust eftir klukkan fjögur og höfðu allir skipverjar bjargast rúmum þremur klukkustundum síðar.

Innlent
Fréttamynd

Kynferðisbrotsdómur staðfestur

Rúmlega tvítugur maður var í Hæstarétti dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa haft kynmök við tólf ára gamla stúlku á heimili sínu á Akureyri árið 2002.

Innlent
Fréttamynd

Biðlistar á líknardeild

Síðustu tvö ár hafa allt að tíu manns verið á biðlista að komast á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Þar eru nú átta rúm en til stendur að fjölga rúmunum um fjögur. Stjórn spítalans hefur sent beiðni um viðbótarfjármagn til heilbrigðisráðuneytisins en talið er að það kosti um 10 milljónir króna aukalega á ári.

Innlent
Fréttamynd

Kanna arðsemi og umhverfisáhrif

"Áður en hægt er að taka afstöðu til álvers í Helguvík þarf fyrst að kanna arðsemi jafnt álversins og þeirra jarðvarmavirkjana sem því tengjast. Jafnframt finnst mér ljóst að fara þarf yfir umhverfisþætti málsins," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar 

Innlent
Fréttamynd

Efnahagslífið ekki að ofhitna

Í nýrri skýrslu OECD er staðhæft að íslenskt efnahagslíf sé að ofhitna og til að mynda hafi verðbólga farið yfir ytri mörk Seðlabankans á undanförnum mánuðum. Fjármálaráðuneytið mótmælir þessu. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Björguðu mönnum af brennandi skipi

Áhöfnin á Pétri Jónssyni RE bjargaði í gær fimmtán manna áhöfn brennandi skips frá Lettlandi. Þrír Íslendingar voru í áhöfn lettneska skipsins. Skipstjórinn á Pétri Jónssyni segir það mikla gæfu að bjarga fimmtán mannslífum.

Innlent
Fréttamynd

Sýna vöðva og tennur

Fulltrúar flokkanna þriggja, sem koma að Reykjavíkurlistanum, funduðu í gær um framtíð samstarfsins.

Innlent
Fréttamynd

Bótakrafa friðargæsluliða samþykkt

Tryggingastofnun hefur samþykkt bótaskyldu vegna þriggja friðargæsluliða sem slösuðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Afganistan í fyrrahaust. Stofnunin, sem hafði áður hafnað bótaskyldu, hefur nú samþykkt að um bótaskylt slys hafi verið að ræða samkvæmt vinnuslysatryggingu almannatrygginga.

Innlent
Fréttamynd

Óskir um líf og dauða skráðar

Guðjón Sigurðsson varð í dag fyrstur Íslendinga til að skrifa undir lífsskrá. Guðjón, sem þjáist af MND- sjúkdómnum, tilgreinir meðal annars í skránni hverjum hann treystir til að taka ákvarðanir sem snerta líf hans og dauða, geti hann ekki lengur tjáð sig.

Innlent