Innlent

Fréttamynd

Fjölbýlishús selt á 10 milljónir

Fjölbýlishús með ellefu íbúðum var selt fyrir rúmar tíu milljónir króna á Bíldudal á dögunum. Á höfuðborgarsvæðinu fæst varla 50 fermetra íbúð fyrir þá upphæð. Fasteignamat eignarinnar er rúmar 23 milljónir króna og brunabótamat ríflega 121 milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta skemmtiferðaskipið komið

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarins er komið til Reykjavíkur. Það er japanska skipið Asuka sem er í heimsreisu. Dvölin á Íslandi verður ekki löng því brottför verður klukkan 19 í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Frjálslyndir krefjast rannsóknar

Frjálslyndi flokkurinn krefst ítarlegrar, opinberrar rannsóknar á allri starfsemi Einkavæðingarnefndar og vill að mat verði lagt á gerðir hennar og ráðherranna.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að flýja úr umsjón lögreglu

Maður frá Singapúr var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að smygla fólki á milli landa. Einn þeirra sem með honum voru í för reyndi að flýja úr umsjón lögreglu með því að stökkva út um glugga af annarri hæð.

Innlent
Fréttamynd

Þekkja réttindi sín ekki vel

Rúmur þriðjungur starfandi Íslendinga veit ekki í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða að sögn Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur, útskriftarnema við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Guðjóna gerði á vormánuðum rannsókn meðal tæplega þrjú hundruð starfsmanna á vinnumarkaði og kannaði hversu vel þeir þekkja ýmis réttindi sín.

Innlent
Fréttamynd

LSH bíður greinagerðar

Stjórnendur Landspítala-háskólasjúkrahúss bíða nú eftir greinargerð frá tæknideild spítalans vegna bilunarinnar sem varð í netkerfi hans í vikunni, að sögn Jóhannesar M. Gunnarssonar lækningaforstjóra.

Innlent
Fréttamynd

Endurvinnsla auk kjaftasagna

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert undarlegt við það að hæsta tilboði í Landsbankann hafi ekki verið tekið á sínum tíma. Honum virðist umfjöllun <em>Fréttablaðsins</em> um einkavæðinguna vera endurvinnsla á gamalli skýrslu með nokkrum kjaftasögum sem lítið sé til í.

Innlent
Fréttamynd

Tveir halda áfram tilboðsvinnu

Austurhöfn-TR ehf. hefur boðið fyrirtækjunum Fasteign og Klasa annars vegar og Portus Group hins vegar að taka áfram þátt í samningskaupaferlinu vegna fyrirhugaðrar tónlistar- og ráðstefnumiðstöðvar.

Innlent
Fréttamynd

Alfreð vill flugvöllinn burt

Alfreð Þorsteinsson, Framsóknarflokki og borgarfulltrúi R-listans, telur tímabært að höggva á hnútinn um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina. Hann vill reisa nýjan flugvöll á uppfyllingu við svonefnd Löngusker í Skerjafirði og segir það ekki kostnaðarsamara en að reisa orkuver á Hellisheiði.

Innlent
Fréttamynd

Umferðarljós óvirk á 20 gatnamótum

Umferðarljós á tuttugu helstu gatnamótum Reykjavíkur urðu óvirk á háannatíma nú síðdegis eftir að vinnuvél tók í sundur rafmagnsstreng. Skapaðist umferðaröngþveiti af þeim sökum en ljósin eru á Miklubraut, Kringlumýrarbraut, Suðurlandsbraut og á Grensásvegi.

Innlent
Fréttamynd

Gríðarlegur sinueldur við Þrengsli

Gríðarlegur sinueldur kviknaði í Geitafelli við Þrengslaveg um hádegið eftir að þyrla varnarliðsins, sem var við æfingu, sleppti reykblysi á þurra jörðina. Slökkvistarfinu lauk á sjötta tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Vilja rannsókn á bankasölu

Frjálslyndi flokkurinn krefst ítarlegrar opinberrar rannsóknar einkavæðingu bankanna. Þetta kemur fram í kjölfar umfjöllunar <em>Fréttablaðsins</em> um málið. Í yfirlýsingu frá flokknum segir að nú hafi verið upplýst að Landsbankinn hafi lánað vinum ráðamanna fé til kaupa bankanna og að forsætisráðherra hafi stýrt sölu Búnaðarbankans og VÍS. Þetta séu spilltir stjórnarhættir og þá verði að leggja af.

Innlent
Fréttamynd

Góð störf tapast vegna krónunnar

Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir jafn mikla ástæðu til að hafa áhyggjur af því að íslensk fyrirtæki kjósi nú að stofna til reksturs erlendis og því að fyrirtæki segi upp fólki hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Kolféllu í fjármálalæsi

Framhaldsskólanemar fengu falleinkunn í fjármálalæsi í könnun sem Breki Karlsson, nemandi í Háskólanum í Reykjavík, gerði í vetur. Breki segir að niðurstaðan hafi verið skelfileg. Könnunin hafi staðfest grunsemdir sínar en sér hafi komið óvart hve mikinn yfirdrátt nemarnir hafa.

Innlent
Fréttamynd

Fimm sinnum dýrara eftirlit

Það er fimm sinnum dýrara að hafa eftirlit með byggingavöruverslun á Suðurnesjum en á Vesturlandi. Samtök atvinnulífsins segja augljóst að gjöldin endurspegli ekki kostnað við heilbrigðiseftirlit og krefjast breytinga.

Innlent
Fréttamynd

Bankaræningi dæmdur

Maður á þrítugsaldri, Jón Þorri Jónssson, var í gær dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa rænt útibú Búnaðarbankans að Vesturgötu 54.

Innlent
Fréttamynd

Varnarsamningurinn ræddur í júlí

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segist eiga von á að viðræður um varnarsamninginn hefjist í fyrri hluta júlímánaðar. Hann telur áhugaleysi Bandaríkjamanna ekki um að kenna að nokkur dráttur hafi orðið á viðræðunum heldur stóru og svifaseinu kerfi þar ytra.

Innlent
Fréttamynd

Þakka guði stuðninginn

"Ég er mjög þakklátur fyrir bréfin og þessa fallegu hugsun. Ég þakka guði á hverjum degi fyrir að fólk sé að hugsa til mín," segir Aron Pálmi Ágústsson í Texas í Bandaríkjunum.

Innlent
Fréttamynd

Vill sameina kauphallir í Lundúnum

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, vill að kauphallir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sameinist kauphöllinni í Lundúnum. Þórður segir að með því náist mikil hagræðing.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórn leysi byggðavanda

Hátt í 140 manns hefur verið sagt upp eða verður sagt upp á næstunni hjá fjórum fyrirtækjum á landsbyggðinni. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, telur ríkisstjórnina þurfa að finna lausnir til að viðhalda byggð í landi.

Innlent
Fréttamynd

Kveiktu í mosa og sinu á æfingu

Þyrla frá Varnarliðinu kveikti óvart eld í sinu og mosa sem nú brennur við Litla Sandfell í Þrengslum skammt frá þjóðveginum. Slökkvilið Þorlákshafnar með aðstoð slöllviliðsins í Hveragerði er á staðnum að berjast við eldinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi var þyrlan á æfingu og var reykblysi óvart sleppt á þurra jörðina.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 100% verðmunur á mjólkurvöru

Meira en hundrað prósenta verðmunur var á mjólkurvörum, ostum og kjötvörum í verslunum samkvæmt verðkönnun Alþýðusambands Íslands. Mesti munurinn á hæsta og lægsta verði í þessum vöruflokkum var á Léttu viðbiti, eða 295 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Óánægðir leikskólastjórar

"Ég get fullyrt að leikskólastjórar njóta virðingar hér í bæjarfélaginu og þeir eru ekki notaðir til uppfyllingar frekar en aðrir," segir Gunnsteinn Sigurðsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs vegna óánægjubréfs sem fjórtán leikskólastjórar hafa ritað honum.

Innlent
Fréttamynd

EJS gaf Ísaksskóla tölvur

EJS gaf í dag Ísaksskóla tölvur að andvirði tvær og hálf milljón króna. Níu ára sonur framkvæmdastjóra fyrirtækisins afhenti gjöfina nemanda í fimmta bekk skólans.

Innlent
Fréttamynd

Segja póstinn of þungan

Bréfberar í Kópavogi eru ósáttir við aukið álag í vinnunni vegna dreifingar <em>Blaðsins</em> og íhuga jafnvel að segja upp störfum. Bréfberi í hundrað prósent starfi fer suma daga af stað með hátt í 120 kíló meðferðis.

Innlent
Fréttamynd

Ók út af Eyrarbakkavegi

Bíl var ekið út af Eyrarbakkavegi á fimmta tímanum í morgun. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kvartaði undan eymslum en var ekki talinn alvarlega slasaður. Bíllinn var óökufær á eftir.

Innlent
Fréttamynd

Eðlileg vinnubrögð

Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir vinnubrögð lögreglunnar í Dettifossmálinu hafa verið eðlileg og gefur lítið fyrir gagnrýni sem kom fram hjá Jóni Magnússyni og Brynjari Níelssyni, hæstaréttarlögmönnum og verjendum tveggja sakborninga í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Hvað er MÓSA?

Klasakokkar eru algengar spítalabakteríur, sem geta valdið alvarlegum sýkingum til dæmis blóðsýkingum.

Innlent
Fréttamynd

Ósáttur við Orkuveitu

Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur segist ósáttur við þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur í uppbyggingu á frístundabyggð við Úlfljótsvatn.

Innlent