Innlent

Fréttamynd

Söfnun grunnskólabarna að ljúka

Söfnuninni Börn hjálpa börnum er að ljúka og hafa meira en átta milljónir króna safnast. Söfnunin, sem er á vegum ABC barnahjálpar hófst 15. apríl þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gaf í söfnunina og forveri hans Vigdís Finnbogadóttir einnig. Það voru íslensk grunnskólabörn sem gengu á milli fólks með söfnunarbauka.

Innlent
Fréttamynd

Séra Hjalti verði ráðinn aftur

Foreldrar barna í Landakotsskóla skora á stjórn skólans að ráða séra Hjalta Þorkelsson aftur sem skólastjóra og veita honum fullt og óskorað umboð til að stjórna skólanum. Foreldrar lýsa yfir þungum áhyggjum af ástandinu í skólanum.

Innlent
Fréttamynd

Kostnaður meiri en tekjurnar

Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands og International Fund for Animal Welfare er kostnaður við hvalveiðar í vísindaskyni mun meiri en þær tekjur sem hafa mætti af sölu afurðanna. Reynslan af markaðssetningu á Íslandi, Noregi og Japan gefi til kynna að neytendamarkaður fyrir hvalkjöt sé lítill og fari minnkandi, segir einnig í skýrslunni.

Innlent
Fréttamynd

Útilokar smit á Landspítala

Landlæknir segir útilokað að maðurinn sem liggur með hermannaveiki á Landspítalanum hafi veikst á sjúkrahúsinu þótt hann sé starfsmaður þar. Hann vinni á skrifstofu spítalans, sem sé annars staðar en spítalinn og skrifstofufólkið eigi sjaldnast erindi inn á sjúkrahúsið sjálft. Þá ítrekar landlæknir að sjúkdómurinn berist ekki milli manna heldur getur veikin borist með loftræstikerfum.

Innlent
Fréttamynd

Á hlaupahjólum yfir hálendið

Tólf daga ferð tveggja Hollendinga yfir hálendið á sérútbúnum hlaupahjólum er nýlokið. Ferðina fóru þeir til styrktar langveikum börnum í Hollandi.

Innlent
Fréttamynd

Baktjaldamakk og valdabrölt

Séra Hjalti Þorkelsson skólastjóri Landakotsskóla sagði upp stöðu sinni á föstudag vegna samstarfsörðugleika við skólanefnd. Afsögnin er afleiðing illinda skekið hafa skólann undanfarna mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú innbrot sömu nóttina

Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þrjá þjófnaði og þrjár tilraunir til innbrots.

Innlent
Fréttamynd

Slökkvilið með jafnréttisáætlun

Slökkvilið Akureyrar hefur fyrst stofnana bæjarins sett sér jafnréttisáætlun í samræmi við jafnréttislög og jafnréttisstefnu bæjarins. Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að frá því um áramót hafi margar stofnanir bæjarins unnið að gerð jafnréttisáætlana, þar á meðal grunnskólar bæjarins, Framkvæmdamiðstöð, Heilsugæslustöð og Öldrunarheimili.

Innlent
Fréttamynd

Ók utan í vegg í göngum

Vörubifreið var ekið utan í vegg í Hvalfjarðargöngum í gærkvöldi og voru göngin lokuð um stund vegna þessa. Bílstjórinn hlaut minni háttar meiðsl og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílnum hafi verið stolið sunnan megin við göngin. Óhappið varð um klukkan níu en búið var að opna göngin að nýju rúmri klukkustund síðar og fór umferð því um Hvalfjörðinn á meðan.

Innlent
Fréttamynd

Milljónatjón á einkavirkjunum

Milljónatjón varð þegar stífla brast í Sandá í gærkvöldi. Eigendurnir, sem eru bændur í nágrenninu, eru ekki vissir um orsökina, en grunar að þurrkar undanfarinna daga hafi átt einhvern hlut að máli. Þeir þakka þó fyrir að enginn skyldi slasast þegar flóðbylgjan æddi niður árfarveginn.

Innlent
Fréttamynd

Tapaði á áhættufjárfestingum

Málræktarsjóður hefur ekki úthlutað styrkjum síðustu þrjú ár vegna fjármagns sem tapaðist með áhættufjárfestingum árið 2000 og sennilega eru tvö ár í að hann geti úthlutað næst.

Innlent
Fréttamynd

Varað við símasölu netfyrirtækis

Tölvu- og netþjónustan Snerpa varar fólk við símasölu frá erlendu netfyrirtæki. Í tilkynningu frá Snerpu segir að fyrirtækið hafi síðustu daga fengið ábendingar um símasöluherferð netfyrirtækisins þar sem hringjandinn segist vera að aðstoða við skráningu á nafni viðkomandi í lénaskrá.

Innlent
Fréttamynd

Alþjóðleg samkeppni um Vatnsmýri

Undirbúningur er nú hafinn að alþjóðlegri samkeppni um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. "Við teljum að þetta sé einstakt tækifæri til að halda alþjóðlega samkeppni um stórt lykilsvæði í hjarta höfuðborgar," segir Dagur B. Eggertsson. "Þetta hefur allt til að bera til að vekja heimsathygli meðal arkitekta og skipulagsfræðinga."

Innlent
Fréttamynd

Telur að skipun rektors standi

Umboðsmaður Alþingis telur að landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, hafi ekki verið vanhæfur til að ákveða hver skyldi skipaður í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá telur umboðsmaður ólíklegt að skipunin verði talin ógildanleg.

Innlent
Fréttamynd

Enn eitt gæluverkefnið

"Það er óþolandi að forsvarsmenn Orkuveitunnar séu sýknt og heilagt að vasast í gæluverkefnum sem borgarbúum er svo sendur reikningur fyrir," segir Guðlaugur Þór Þórðarson. Hann gagnrýnir að Orkuveita Reykjavíkur ætli sér að fjárfesta í heilsutengdri ferðaþjónustu eins og fyrir liggur.

Innlent
Fréttamynd

KEA vill Neytendastofu norður

Kaupfélag Eyfirðinga svf. hefur boðist til að leggja lóð á vogarskálarnar til að Neytendastofa sem fyrirhugað er að setja á fót verði á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Kanna jarðhita á Grænlandi

Iðnaðarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun samstarfssamning sem gerður hefur verið við Grænland um orkumál. Samningurinn fylgir í kjölfar þess að sveitarfélag á Diskó-eyju á Grænlandi óskaði eftir samstarfi um það hvort og hvernig væri hægt að nýta 19 gráðna heitt vatn sem fundist hefur á eynni. Iðnaðarráðuneytið hefur falið Íslenskum orkurannsóknum að kanna jarðhitann og hefjast jarðfræðirannsóknir í ágúst næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja bíla árekstur í Keflavík

Þriggja bíla árekstur varð á mótum Hringbrautar og Vesturgötu í Keflavík í gærkvöldi. Slys urðu ekki á fólki en ein bifreiðin var þó óökuhæf á eftir.

Innlent
Fréttamynd

KEA fagnar staðsetningu stofnunar

Stjórn kaupfélags Eyfirðinga fagnar ákvörðun Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra um að staðsetja Landbúnaðarstofnun á Selfossi. Í ályktun stjórnar KEA sem samþykkt var á fundi félagsins segir að ákvörðunin staðfesti afstöðu ríkisstjórnarinnar til staðsetningar opinberra verkefna.

Innlent
Fréttamynd

Stífla brast í Sandá í gær

Verulegt tjón varð þegar stífla brast í Sandá við Eyvindartungu, skammt frá Laugarvatni, í gærkvöldi. Tvær rafmagnsvirkjanir í ánni, sem eru í einkaeigu, urðu óvirkar vegna óhappsins og þótti mildi að ekki urðu slys á fólki. Efri virkjunin var tekin í notkun í mars síðastliðnum en neðri stöðin árið 2003.

Innlent
Fréttamynd

Prófkjör síðla hausts

Prófkjör vegna uppstillingar á lista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar 27. maí 2006 verður haldið mánaðamótin október nóvember næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í dag og verður prófkjörið lagt til við fulltrúaráðsfund í byrjun september.

Innlent
Fréttamynd

Ræða þrískiptingu ríkisvalds

Hvernig á að tryggja þrískiptingu ríkisvaldsins? Það er spurningin sem Þjóðarhreyfingin veltir upp á fundi í kvöld að gefnu tilefni og á fundarstað sem ekki er valinn af handahófi.

Innlent
Fréttamynd

Fimm menn ákærðir vegna banaslyss

Fimm menn, sem allir störfuðu við framkvæmdirnar á Kárahnjúkasvæðinu, hafa verið kærðir fyrir brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, þann 15. mars í fyrra er ungur maður lést í vinnuslysi þegar tæplega fjörtíu kílóa þungt grjót hrundi ofan á hann úr hlíð Hafrahvammsgljúfurs.

Innlent
Fréttamynd

Hálft ár fyrir skjalafals

45 ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Maðurinn seldi Íslandsbanka skuldabréf þann 27. ágúst í fyrra fyrir tvær og hálfa milljón króna en hann gaf bréfið út sama dag og hafði jafnframt falsað áritun á nafni konu í reit fyrir samþykki sjálfskuldarábyrgðarmanns. Ákærði játaði brot sitt fyrir dóminum.

Innlent
Fréttamynd

Skilnaðartíðni óbreytt í 15 ár

Giftingaraldur Íslendinga hefur hækkað um hátt í tíu ár á síðustu 40 árum samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þá hefur skilnaðartíðni  hér á landi haldist nánast óbreytt síðastliðin fimmtán ár.

Innlent
Fréttamynd

FÍB vill taka rannsókn upp aftur

Félag íslenskra bifreiðaeigenda krefst þess að ákvarðanir áfrýjunarnefndar samkeppnismála og samkeppnisráðs vegna ólögmæts samráðs tryggingafélaganna í bifreiðatryggingum verði felldar úr gildi og málið tekið til rannsóknar að nýju. Málflutningur í málinu stendur nú yfir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Reykjavík vart flokkuð sem borg

"Með hliðsjón af viðmiðum um þéttbýli og þéttleika byggðar þá er ég ekki viss um að Reykjavík félli annars staðar undir þá skilgreiningu að vera borg," segir Orri Gunnarsson, verkfræðingur.

Innlent
Fréttamynd

Rækjan nærri hruni fyrir vestan

Rækjustofninn veiðist vart lengur á Íslandsmiðum og er nánast hruninn í Ísafjarðardjúpi. Hafrannsóknarstofnunin leggur til að upphafsafli úthafsrækju verði minnkaður um þriðjung á næsta fiskveiðiári.

Innlent
Fréttamynd

Unglæknar fá leiðréttingu

Landspítalinn hefur skipað starfsnefnd sem fer yfir vinnutíma unglækna með það fyrir augum að laga hann að ákvæðum vinnutímatilskipunar Evrópusambandsins. Nefndin á að koma með tillögur að nýju vaktafyrirkomulagi unglækna fyrir 27. júní, en í því verður þá farið eftir ákvæðum um lágmarkshvíldartíma og hámarksvinnutíma.

Innlent