Innlent

Fréttamynd

Varaformannskosning í lagi

Sérstök athugun á framkvæmd landsfundar Samfylkingarinnar í maí síðastliðnum leiddi meðal annars í ljós að ekki var reynt að kjósa fyrir aðra í varaformannskjöri flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Engin tjöld enn á Kárahnjúkum

Enn virðast engin tjöld mótmælenda farin að rísa á Kárahnjúkasvæðinu. Lögreglan á Egilsstöðum fór í eftirlitsferð um svæðið í morgun og ætlar að vera þar fram eftir degi.

Innlent
Fréttamynd

Hægðu á þér

„Hægðu á þér – tökum slysin úr umferð“ er yfirskrift þjóðarátaks Vátryggingafélags Íslands gegn umferðarslysum sem félagið stendur nú fyrir fimmta sumarið í röð. Að þessu sinni er athyglinni beint að þeirri staðreynd að beint samhengi er á milli of mikils hraða og alvarlegra afleiðinga umferðarslysa.

Innlent
Fréttamynd

Óbreyttur heildarkvóti

Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra heldur sig við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar og heimilar veiðar á 198 þúsund tonnum af þorski og 105 þúsund tonnum af ýsu á næsta fiskveiðiári.

Innlent
Fréttamynd

Karlar leita sér frekar hjálpar

Meginástæða þess að sjálfsvígum karla hefur fækkað á undanförnum árum er að þeir eru frekar tilbúnir að ræða vandamál sín og leita sér hjálpar en áður. Þetta segir landlæknir.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanleg tollalækkun

Tollar á landbúnaðarvörum munu hugsanlega lækka um 50 til 70 prósent á næsta ári í kjölfar nýs samnings við alþjóðaviðskiptastofnunina WTO sem unnið er að. Þetta segir Ólafur Friðriksson skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu en í nýrri skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD kemur fram að opinberir styrkir til bænda séu hlutfallslega hæstir á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Skyndilokanir vegna kolmunnaveiða

Hafrannsóknastofnun hefur nú í fyrsta sinn þurft að grípa til skyndilokana vegna kolmunnaveiða þar sem óheyrilega mikið af þorski hefur veiðst með kolmunnanum, utan allra kvóta. Auk þess endar eðalþorskurinn svo í bræðslu eins og hver annar skítfiskur.

Innlent
Fréttamynd

Launavísitalan hækkaði um 0,6%

Launavísitalan í maí mældist tæplega 266 stig og er það hækkun um 0,6 prósent frá því í apríl. Síðastliðna tólf mánuði hefur hún hækkað um 6,6 prósent en ef litið er aðeins til sex mánaða hefur hún hækkað um 9,8 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sveitarfélagið sýknað af kröfunni

Sveitarfélagið Rangárþing eystra var í dag sýknað af kröfu Eggerts Haukdals, fyrrum alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps til þrjátíu ára, um greiðslu ríflega fjögurra milljóna króna með vöxtum og dráttarvöxtum.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfsvígum karla hefur fækkað

Sjálfsvígum karla hefur fækkað undanfarin þrjú ár en ekki sjálfsvígum kvenna. Landlæknir kynnti í dag átakið „Þjóð gegn þunglyndi“.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir í samkomulag

Aðalfundur Sparisjóðs Skagfirðinga, áður Sparisjóður Hólahrepps, verður haldinn klukkan hálftvö í dag. Miklar deilur hafa staðið milli tveggja stofnfjáreigendahópa sem buðu fram sitt hvorn listann á aðalfundi í nóvember síðastliðnum, en mögulegt er að sættir náist á fundinum í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkisendurskoðun hirtir ráðherra

Í skýrslu sem Ríkisendurskoðun birti í gær um framkvæmd fjárlaga segir að forstöðumenn og ráðuneyti bregðist of seint við þegar ljóst sé að rekstur stofnana kosti meira en sem nemur fjárveitingum.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert sést til mótmælenda

Ekkert hefur sést til mótmælenda á Kárahnjúkum en þeir hugðust setja upp tjaldbúðir þar í gær á lengsta degi ársins. Lögregla hefur verið á svæðinu í dag en þar hefur verið kalt og var hiti aðeins tvær gráður í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Eggert tapaði í héraði

Eggert Haukdal, fyrrum oddviti Vestur-Landeyjahrepps, tapaði í gær máli sem hann höfðaði á hendur hreppnum í febrúar árið 2002 til greiðslu á rúmlega fjórum milljónum króna auk dráttarvaxta. Sveitarfélagið, sem heitir nú Rangárþing eystra, var sýknað af kröfum Eggerts.

Innlent
Fréttamynd

Ungs manns enn leitað

Lögregla leitar enn ungs manns sem komst undan í Heiðmörk á mánudagsmorguninn eftir að þar var kveikt í stolnum bíl. Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð til og handsamaði hún á staðnum tvo 17 ára pilta og 15 ára gamla stúlku.

Innlent
Fréttamynd

Ný umferðarmerki tekin í gagnið

Í þjóðarátaki VÍS gegn umferðarslysum er sjónum að þessu sinni beint að umferðarhraða. Í samvinnu við Vegagerð ríkisins verða sett upp leiðbeinandi viðvörunarmerki á stöðum þar sem mörg slys hafa orðið og fólk hvatt til að draga úr hraða ökutækja. Merktar verða krappar beygjur, brýr og fleiri staðir þar sem slys hafa orðið.

Innlent
Fréttamynd

Eignarhald enn óljóst

"Ég eða félög mér tengd eigum ekkert í Serafin Shipping og höfum aldrei átt," segir Jón Kristjánsson, stjórnarformaður Icelandic Group, spurður um hver ætti félagið. Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, vísaði á Jón þegar hann var spurður í fyrradag hvort hann ætti eða hefði átt Serafin Shipping. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Festu bílinn í á

Nokkrir útlendingar lentu í vandræðum þegar þeir festu bíl sinn í lítilli á uppi á Hrunamannaafrétti í gær og kölluðu eftir aðstoð. Björgunarsveit var send þeim til hjálpar og náði bílnum upp og sluppu útlendingarnir því með skrekkinn, heilir á húfi.

Innlent
Fréttamynd

Forstöðumönnum verði refsað

Mörg dæmi eru um að ríkisstofnanir fari fram úr fjárheimildum ár eftir ár en engin dæmi eru hins vegar um að ráðuneyti áminni forstöðumenn eins og lög gera ráð fyrir. Þetta segir ríkisendurskoðandi sem telur alvarlega misbresti á framkvæmd fjárlaga.

Innlent
Fréttamynd

Kleifarvatnshrina að ganga niður

Klukkan hálf átta í gærmorgun reið yfir jarðskjálfti upp á 3,5 á Richter við vestanvert Kleifarvatn á Reykjanesi. Sekúndu fyrr mældist annar um 2,5 á Richter. Að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur, deildarstjóra hjá Veðurstofunni, virtist hrinan í gær vera að ganga niður með eðlilegum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Gengu úr stjórn Árvakurs

Haraldur Sveinsson, sem ýmist hefur verið stjórnarformaður eða framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, og jafnframt stór hluthafi, gekk úr stjórn félagsins á aðalfundi þess í gær. Það gerði Friðþjófur Johnson, fulltrúi hlutafjár Johnson ehf. í Árvakri, einnig.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Víðtækur harmleikur

"Við tölum um sjálfsvíg sem harmleik, sem heldur áfram meðal ættingja og vina sem eftir lifa," segir Salbjörg Bjarnadóttir er stýrir verkefninu Þjóð gegn þunglyndi, sem er á vegum Landlæknisembættisins.

Innlent
Fréttamynd

Jarðskjálftahrina við Kleifarvatn

Jarðskjálftahrina hófst rétt vestan við Kleifarvatn á fimmta tímanum í nótt. Sterkasti skjálftinn mældist klukkan korter fyrir átta í morgun og var um 3,4 á Richter samkvæmt sjálfvirkum mælingum en eftir er að reikna styrkinn út nákvæmlega. Skjálftarnir fundust í Hafnarfirði, Reykjavík og víðar.

Innlent
Fréttamynd

Heildarafli í samræmi við ráðgjöf

Sjávarútvegsráðherra undirritaði í dag reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2005-6 sem hefst þann 1. september. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að leyfilegur heildarafli verði í öllum aðalatriðum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Skilti með leiðbeinandi hraða

Ný umferðarskilti, sem eiga að leiðbeina ökumönnum um að lækka hraðann á hættulegum köflum, verða sett upp á þjóðvegum landsins á næstu vikum. Tölvuútreikningar eru notaðir til að ákvarða hve mikinn hraða einstakir vegarkaflar þola.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í ónýtri rútu

Slökkvilið Reykjanesbæjar var kallað að Helguvík rétt eftir klukkan fjögur á aðfararnótt miðvikudags en þar logaði eldur í ónýtri rútu á ruslahaug. Í greinargerð lögreglu um málið kemur fram að tjón hafi ekki hlotist af og slökkvilið slökkti í rútunni.

Innlent
Fréttamynd

Segir félag ekki hafa greitt gjöld

Efling - stéttarfélag segir sautján atvinnuleyfi frá fyrirtækinu Geymi ehf. hafa komið til umsagnar félagsins en þeim hafi verið hafnað. Lögreglan og ASÍ vinna nú að málum Geymis ehf. vegna tólf Pólverja sem höfðu laun langt undir lágmarkssamningum og bjuggu við óviðunandi aðstæður. Ástæður þess voru þær að Geymir hefur ekki greitt lögbundin gjöld af starfsmönnum sínum, svo sem í lífeyrissjóð og önnur gjöld.

Innlent
Fréttamynd

Tíðindalítill ríkisstjórnarfundur

Ríkisstjórnarfundur var haldinn formsins vegna í morgun og var mjög stuttur þar sem engin mál lágu fyrir. Aðeins mættu sex ráðherrar. Að loknum almennum umræðum var honum slitið.

Innlent
Fréttamynd

Mosaic Fashions inn í Kauphöll

Mosaic Fashions varð í dag fyrsta breska félagið sem skráð er á aðallista Kauphallar Íslands. Útgefið hlutafé félagsins er tæpir þrír milljarðar króna að nafnverði. Forstjóri Kauphallarinnar segir þetta kannski ryðja brautina fyrir fleiri erlend félög.

Viðskipti innlent