Innlent Sakar stjórnvöld um skilningsskort Páll Skúlason fráfarandi rektor Háskóla Íslands gagnrýndi skilningsskort fjármálaráðuneytis á uppbyggingu rannsóknaháskóla í ræðu sinni við brautskráningu kandídata í Egilshöll í gær. Þetta var síðasta brautskráning Páls en jafnframt sú fjölmennasta í sögu Háskólans en 801 kandídat var brautskráður. Innlent 13.10.2005 19:25 Fóru hringinn á vetnishjóli Japanskir áhugamenn um nýtingu hreinnar orku luku í gær ferð sinni um landið á vetnisknúnu hjóli. "Þetta eru eiginlega ævintýramenn, þeir hafa meðal annars flogið yfir Bandaríkin á sólarknúinni flugvél. Þegar Íslendingar fóru að brölta í vetnisrannsóknum fannst þeim þetta kjörin hugmynd," segir Jón Björn Skúlason frá Íslenskri NýOrku. Innlent 13.10.2005 19:25 Var ekki með haffærisskírteini Lögreglumenn biðu á bryggjunni þegar handfæra- og línubáturinn Eyjólfur Ólafsson GK kom til Sandgerðis í gærkvöldi eftir að mikil leit hafði verið gerð að bátnum í gær. Það var gert þar sem hann hvarf úr sjálfvirka tilkynningaskyldukerfinu og ekki náðist samband við hann um talstöð eða síma. Í ljós kom að báturinn hafði farið út fyrir leyfileg mörk, hann hafði ekki haffærisskírteini og hvorugur bátsverja hafði fullgilda lögskráningu á bátinn og voru því ótryggðir. Innlent 13.10.2005 19:24 Engar hæfniskröfur gerðar "Ástæðan er einfaldlega sú að lög kveða á um að stöðuna skuli auglýsa með þessum hætti," segir Jón Vilberg Guðjónsson, lögfræðingur hjá Menntamálaráðuneytin um auglýsingu um embætti útvarpsstjóra. Innlent 13.10.2005 19:25 Ársfundi hvalveiðiráðsins lokið
Sakar stjórnvöld um skilningsskort Páll Skúlason fráfarandi rektor Háskóla Íslands gagnrýndi skilningsskort fjármálaráðuneytis á uppbyggingu rannsóknaháskóla í ræðu sinni við brautskráningu kandídata í Egilshöll í gær. Þetta var síðasta brautskráning Páls en jafnframt sú fjölmennasta í sögu Háskólans en 801 kandídat var brautskráður. Innlent 13.10.2005 19:25
Fóru hringinn á vetnishjóli Japanskir áhugamenn um nýtingu hreinnar orku luku í gær ferð sinni um landið á vetnisknúnu hjóli. "Þetta eru eiginlega ævintýramenn, þeir hafa meðal annars flogið yfir Bandaríkin á sólarknúinni flugvél. Þegar Íslendingar fóru að brölta í vetnisrannsóknum fannst þeim þetta kjörin hugmynd," segir Jón Björn Skúlason frá Íslenskri NýOrku. Innlent 13.10.2005 19:25
Var ekki með haffærisskírteini Lögreglumenn biðu á bryggjunni þegar handfæra- og línubáturinn Eyjólfur Ólafsson GK kom til Sandgerðis í gærkvöldi eftir að mikil leit hafði verið gerð að bátnum í gær. Það var gert þar sem hann hvarf úr sjálfvirka tilkynningaskyldukerfinu og ekki náðist samband við hann um talstöð eða síma. Í ljós kom að báturinn hafði farið út fyrir leyfileg mörk, hann hafði ekki haffærisskírteini og hvorugur bátsverja hafði fullgilda lögskráningu á bátinn og voru því ótryggðir. Innlent 13.10.2005 19:24
Engar hæfniskröfur gerðar "Ástæðan er einfaldlega sú að lög kveða á um að stöðuna skuli auglýsa með þessum hætti," segir Jón Vilberg Guðjónsson, lögfræðingur hjá Menntamálaráðuneytin um auglýsingu um embætti útvarpsstjóra. Innlent 13.10.2005 19:25
Flóttamenn mótmæla Níu flóttamenn sem dvelja á tveimur gistiheimilum í Reykjanesbæ mótmæltu í gær meðferð íslenskra stjórnvalda á þeim. Flóttamennirnir, sem allir hafa sótt um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi, segja aðbúnað sinn lélegan og undrast hversu hægt gangi að vinna úr þeirra málum. Innlent 13.10.2005 19:25
Spáir verðbólguhækkun upp á 1% Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga hækki um heilt prósentustig í næsta mánuði, fari úr 2,8 prósentum í 3,8 prósent. Ástæðurnar eru einkum hærra eldsneytisverð, matvöruverð og húsnæðisverð. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:24
Umferðaröryggi eykst með göngum Umferðaröryggi á Suðausturlandi jókst til muna í dag þegar göng undir Almannaskarð voru opnuð. Verkið kostaði minna en gert var ráð fyrir og lauk rúmum þremur mánuðum á undan áætlun. Innlent 13.10.2005 19:25
Neyðast til að kveðja í kyrrþey Kostnaður vegna jarðarfara og erfidrykkju er orðinn svo mikill að margir neyðast til að kveðja látna ástvini í kyrrþey. Kirkjan segir það óheillaþróun að jarðarfarir reynist mörgum fjárhagslegur baggi. Innlent 13.10.2005 19:25
Mótmæla stækkun Fríhafnarverslunar Samtök verslunar og þjónustu mótmæla stækkun Fríhafnarkomuverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ástæðan er sú að ríkið á og rekur verslunina þótt sérstök stjórn og framkvæmdastjóri stýri rekstrinum í umboði utanríkisráðuneytisins. „Stjórnskipulega er utanríkisráðuneytið eigandi og rekstraraðili stærstu snyrtivöruverslunar landins,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Innlent 13.10.2005 19:25
Prestar vilja gifta samkynhneigða "Við fögnum því að þjóðkirkjan sé að svara kalli tímans," segir Sigursteinn Másson varaformaður Samtakana 78 vegna þeirrar óskar sem biskupi Íslands barst í gær á prestastefnunni sem nú er haldin um að þjóðkirkjan komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra para með hliðstæðum hætti og hjá gagnkynhneigðum. Innlent 13.10.2005 19:25
Varnarviðræður innan nokkurra daga Innan fárra daga hefjast viðræður um framtíð varnarsamstarfs Íslendinga og Bandaríkjamanna í Washington eftir langa bið. Ekki er þó ljóst hvað á að ræða þar sem Bandaríkjamenn hafa ekki ákveðið hver framtíð stöðvarinnar á að verða. Innlent 13.10.2005 19:25
Göng undir Almannaskarð opnuð Vaskir verktakar við gerð jarðganga undir Almannaskarð, rétt austan við Höfn í Hornafirði, eru nú að ljúka frágangi við göngin sem formlega verða tekin í notkun í dag. Með vegskálum beggja vegna ganganna eru þau rúmlega 1100 metra löng og nýir vegkaflar beggja vegna eru samtals um fimm kílómetrar. Innlent 13.10.2005 19:24
Dæmd fyrir kókaínsmygl í hárkollu Erlend kona á sjötugsaldri var í dag dæmd í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa flutt inn kókaín sem falið var í hárkollu sem hún bar. Innlent 13.10.2005 19:25
Netnotkun óvíða meiri Rúm 80 prósent allra íslenskra heimila eru tengd internetinu og er það hlutfall það hæsta í gervallri Evrópu samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Hagstofa Íslands hefur gert. Innlent 13.10.2005 19:25
Fylgi Framsóknar fimm prósent Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er minna en fimm prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Í könnuninni mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða átta og hálfu prósenti á landsvísu sem er minna en helmingur af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum. Innlent 13.10.2005 19:25
Hugsanlegt að áminna forstöðumenn Fjármálaráðherra segir að til greina komi að áminna forstöðumenn stofnana, sem fara fram úr á fjárlögum, en ekki að frysta launagreiðslur til þeirra, eins og lagt er til í skýrslu Ríkisendurskoðanda. Innlent 13.10.2005 19:25
Alvarlegt samkeppnisbrot Símans Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssíminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman ólíka þjónustuhætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu "Allt saman" tilboði. Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs skekkti Landssíminn á alvarlegan hátt samkeppni á markaði og misnotaði markaðsráðandi stöðu sína. Innlent 13.10.2005 19:25
Stofnfé sé eign allra Hafnfirðinga Þótt ekki sé verið að stela frá neinum, er þetta siðlaust og ætti ekki að líðast. Þetta segir Helgi í Góu, einn stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar, um þá sem hafa selt hluti sína í sjóðnum. Hann segir stofnféð vera eign allra Hafnfirðinga. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:25
Seltirningar kjósa í dag Í dag gefst Seltirningum kostur á að kjósa um tvær skipulagstillögur sem settar hafa verið fram um framkvæmdir á svæðinu við Suðurströnd og Hrólfsskálamel við miðbæinn. Kosningin fer fram í Valhúsaskóla og opnar kjörstaður klukkan níu í morgunsárið en lokar klukkan tíu í kvöld.</font /> Innlent 13.10.2005 19:25
Vill kosningar um stækkun álvers Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust. Innlent 13.10.2005 19:25
Heilsugæslan skilaði afgangi Rekstur Heilsugæslunnar í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsumdæmi skilaði 40,7 milljóna króna afgangi miðað við fjárheimildir á árinu 2004. Svarar það til 1,4 prósenta af heildarútgjöldum stofnananna á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilsugæslunni. Þar segir enn fremur að afgangurinn lækki uppsafnaðan halla frá liðnum árum um 13 prósent. Innlent 13.10.2005 19:25
Framtíðin ekki endilega á Hlemmi Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstar- og þjónustusviðs lögreglunnar í Reykjavík, varpaði fram þeirri hugmynd á fundi um skipulagsmál við Hlemm í vikunni að lögreglustöðin gæti vel flutt sig um set ef þurfa þætti. Innlent 13.10.2005 19:25
Tilbúin langt á undan áætlun Vaskir verktakakar við gerð jarðganga undir Almannaskarð, rétt austan við Höfn í Hornafirði, eru nú í óða önn að sópa og snurfusa göngin, sem formlega verða tekin í notkun í dag, langt á undan áætlun. Innlent 13.10.2005 19:24
Aukin verðmæti sjávaraflans Aflaverðmæti íslenskra skipa fyrstu þrjá mánuði ársins er rúmum 500 milljónum króna meiri en á sama tíma í fyrra eða um 20,2 milljarðar króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Innlent 13.10.2005 19:25
Lá hjálparvana í djúpum skurði Björgunarsveitarmenn úr Húnavatnssýslum fundu á níunda tímanum í morgun húsfreyju af sveitabæ í grennd við Blönduós, þar sem hún lá hjálparvana og hrakin ofan í djúpum skurði. Innlent 13.10.2005 19:24
Bílstjórar sjá ekki merkin Lögreglan í Ólafsvík tók tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur, á vegaköflum þar sem vegaframkvæmdir stóðu yfir og búið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund, eftir kvöldmat á fimmtudag. Nokkuð var um að rúður brotnuðu í bílum vegna grjótkasts. Innlent 13.10.2005 19:25
Farsímaþjónusta dýrust í Noregi Norskir neytendur greiða hærra verð fyrir farsímaþjónustu en Íslendingar samkvæmt mánaðargamalli úttekt breska greiningarfyrirtækisins Teligen sem birt var í vikunni. Innlent 13.10.2005 19:25
Rússi á leið heim eftir hnífaatvik Rússneski sjómaðurinn sem fékk hníf í kviðinn um borð í sjóræningjatogara skammt utan við 200 mílna mörkin á Reykjaneshrygg nýverið fer til Rússlands í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn á sínum tíma og gekkst hann undir aðgerð á Landsspítalanum. Undanfarið hefur hann svo dvalið á hóteli í borginni en umboðsmaður skipsins hér á landi keypti flugmiða og flýgur maðurinn því heim á leið í dag. Innlent 13.10.2005 19:24
12 sveitarfélög þurfa fjárframlag Tólf sveitarfélög í landinu hafa fengið úthlutað aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna þess alvarlega fjárhagsvanda sem þau glíma við en úthlutað var úr sjóðnum í vikunni. Innlent 13.10.2005 19:25