Innlent
Landsflug krafið skýringa Heilbrigðisráðuneyti og bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hafa krafið Landsflug um skýringar á því hvers vegna sjúkraflugvél hafi ekki verið til staðar tvívegis á tveimur dögum þegar hennar var þörf. Framkvæmdastjóri Landsflugs segir félagið hafa staðið við skuldbindingar sínar og auk þess hafi ekki verið um bráðaútköll að ræða í umræddum tilvikum. Innlent 17.2.2006 20:01
Dagsbrún vill að RÚV dragi sig út af auglýsingamarkaði Ríkisútvarpið á að draga sig út af auglýsingamarkaði, sagði Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar hf., á aðalfundi félagsins sem fram fór í dag. Þórdís segir það ótrúlegt að afskipti ríkisvaldsins eða aðgerðarleysi myndi reynast fyrirtækinu þrándur í götu, á sama tíma og það væri í mikilli sókn. Innlent 17.2.2006 19:22
Fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir manndráp Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurð Frey Kristmundsson í fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir að verða Braga Halldórssyni að bana. Sigurður Freyr stakk fórnarlamb sitt til bana í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík í ágúst á síðasta ári. Innlent 17.2.2006 17:50
Forsætisráðherra fundar með Tony Blair Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigurjóna Sigurðardóttir eiginkona hans halda til Bretlands á þriðjudag næstkomandi þar sem forsætisráherra mun meðal annars eiga fund með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Þá mun forsætisráðherra einnig heimsækja íslensk fyrirtæki og ávarpa fulltrúa úr bresku fjármála- og atvinnulífi. Heimsókn þeirra hjóna lýkur síðdegis á föstudag. Innlent 17.2.2006 17:41
Nokkur afskipti af umferðaróhöppum og hraðakstri 14 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í umdæmi Áltanes, Garðabæ og Hafnarfirði í vikunni. Þá var ökumaður bifreiðar, sem lenti í hörðum þriggja bíla árekstri, fluttur á slysadeild til rannsóknar. Á miðvikudag var mjög alvarlegt umferðarslys á Bæjarbraut í Garðabæ þar sem ekið var á 16 ára gamla stúlku sem var gangandi. Innlent 17.2.2006 17:35
Þrír áfram í gæsluvarðahaldi vegna innflutnings á fíkniefnum Litháarnir tveir, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald vegna innflutnings á amfetamíni í fljótandi formi fyrir stuttu, voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til föstudagsins 24. febrúar. Þá hefur einnig gæsluvarðhaldi verið framlengt yfir ungum manni sem sakaður er um innflutning á tæplega fjórum kílóum af amfetamíni. Innlent 17.2.2006 17:26
Landvernd á móti tilraunaborholum í Kerlingafjöllum Landvernd telur að hafna beri umsókn um tilraunaborholur vegna hugsanlegra jarðvarmamannvirkja í Kerlingafjöllum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í dag. Í yfirlýsingunni segir að hætta sé á að jarðborununum fylgi óafturkræf náttúrupspjöll. Innlent 17.2.2006 17:19
Þrjá bílveltur á svipuðum slóðum Þrjár bílveltur urðu í gærkvöldi og nótt í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi. Tveir bílanna fóru útaf þjóðveginum í Langadal en slæmt veður, blinbylur og hálka var á þessum slóðum þegar bílarnir fóru útaf veginum. Annar bíllinn lenti hálfur ofan í tjörn en engann sakaði. Bílarnir eru nokkuð skemmdir. Innlent 17.2.2006 16:59
Línuhönnun fyrsta ráðgjafafyrirtækið sem fær umhverfisvottun Fyrsta umhverfisvottun sem íslenskt ráðgjafafyrirtæki fær var afhent í dag og var það Línuhönnun sem hana hlaut. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að með vottuninni sé ákveðnu markmiði náð. Innlent 17.2.2006 16:57
Taka þarf fullt tillit til minnihlutahópa Borgar- og bæjarstjórnir verða að taka fullt tilllit til minnihlutahópa í jafnréttisáætlunum sínum svo þeir verði ekki útundan. Þetta sögðu borgarstóri og formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar við upphaf landsfundar jafnréttisnefnda. Innlent 17.2.2006 16:20
Fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir manndráp Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Sigurð Frey Kristmundsson í fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir að bana Braga Halldórssyni í íbúð við Hverfisgötu í ágúst síðastliðnum. Sigurður Freyr stakk Braga með hnífi í brjóstholið með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar. Innlent 17.2.2006 15:21
Fimm mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag liðlega fimmtuga konu í fimm mánaða fangelsi og til ævilangrar ökuleyfissviptingar fyrir að hafa ítrekað ekið undir áhrifum áfengis. Konan var ákærð fyrir að hafa í þrígang verið tekin fyrir ölvunarakstur í Kópavogi á síðasta ári, þar af tvo daga í röð í ágúst. Innlent 17.2.2006 14:50
Þremenningar játa á sig hraðbankarán Tveir karlmenn og ein kona, sem handtekin voru vegna gruns um að hafa brotið upp hraðbanka í söluskála Skeljungs á Fáskrúðsfirði og stolið þaðan hundruðum þúsunda króna, hafa viðurkennt brotið og vísað á þýfið. Innlent 17.2.2006 13:27
Framhaldsskólanemar gagnrýna styttingu stúdentsprófs Mörg þúsund framhaldsskólanemar hafa sent menntamálaráðherra póstkort þar sem þeir gagnrýna vinnubrögð hans vegna styttingar námstíma til stúdentsprófs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagsmunaráði íslensrka framhaldsskólanema. Innlent 17.2.2006 13:12
Tíu sækja um embætti sóknarprests í Ásprestakalli Tíu sækja um embætti sóknarprests í Ásprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra sem auglýst var laust til umsóknar nýlega. Innlent 17.2.2006 11:34
Mega ekki veiða of mikið Loðnuveiðar ganga vel við Vestmannaeyjar. Helsta vandamál sjómanna er að veiða ekki meira en svo að vinnslan hafi undan því, vegna þess hversu lítill kvótinn er á sem minnst að fara í bræðslu. Innlent 17.2.2006 12:05
Segir Jón Gerald hafa verið með spuna hjá lögreglu Jón Gerald Sullenberger var með hreinan spuna hjá lögreglu, segir fyrrverandi tengdasonur Jóhannesar Jónssonar í Bónus. Þar vísar hann í vitnisburð Jóns Geralds um innflutning bíla frá Bandaríkjunum Innlent 17.2.2006 11:52
FL Group kaupir hlut í Bang og Olufsen FL Group hefur keypt ríflega átta prósenta hluta í danska félaginu Bang og Olufsen eftir því sem fram kemur í frétt á heimasíðu Kauphallar Íslands. Markaðsvirði hlutarins er um 7,5 milljarðar króna. Innlent 17.2.2006 11:27
Sparisjóður Keflavíkur kaupir afgreiðslu Landsbanka í Sandgerði Landsbankinn og Sparisjóðurinn í Keflavík hafa gert samkomulag um kaup Sparisjóðsins á afgreiðslu Landsbankans í Sandgerði. Fram kemur í tilkynningu frá félögunum sparisjóðurinn mun taka við öllum eignum og skuldum afgreiðslunnar 5. mars ásamt póstafgreiðslu í Sandgerði sem Landsbankinn og Íslandspóstur eru aðilar að. Innlent 17.2.2006 10:44
Sjálfstæðismenn í Árborg með prófkjör á morgun Sjálfstæðismenn í Árborg velja á morgun fulltrúa sína í prófkjöri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Fimmtán gefa kost á sér, tíu karlar og fimm konur. Innlent 17.2.2006 11:16
Þrír handteknir vegna hraðbankaráns Lögreglan á Akureyri handtók í morgun þrjá menn á bílaleigubíl sem grunaðir eru um að hafa brotið upp hraðbanka í söluskála Skeljungs á Fáskrúðsfirði í nótt og stolið þaðan hundruðum þúsunda króna. Innlent 17.2.2006 11:01
313 buðu í lóðir í Úlfarsárdal 313 skiluðu 4.240 gildum kauptilboðum í byggingarrétt fyrir 408 íbúðir á 120 lóðum í Úlfarsárdal. Frestur til að skila inn tilboðum rann út í gær og unnu starfsmenn framkvæmdasviðs sleitulaust í alla nótt við að opna tilboð í lóðirnar og skrá þau. Innlent 17.2.2006 10:55
FL Group kaupir í Bang og Olufsen FL Group hefur keypt 8,2 prósenta hlut í danska raftækjaframleiðandanum Bang og Olufsen fyrir 7,5 milljarða króna. Viðskipti innlent 17.2.2006 10:45
Fyrirtæki búi sig undir fuglaflensu Fyrirtækin gætu þurft að búa sig undir nýjar aðstæður ef ríkari kröfur verða gerðar til þeirra um samfélagslega ábyrgð vegna fuglaflensu sem einsýnt þykir að berist til landsins. Þetta segja Samtök verslunar og þjónustu. Innlent 17.2.2006 10:31
Prófkjör hjá Framsóknarflokknum á Akureyri á morgun Framsóknarmenn á Akureyri og í Hrísey halda á morgun opið prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningaarnar í vor. Nítján manns eru í framboði, þrettán karlar og sex konur, en nýr oddviti flokksins verður kjörinn þar sem Jakob Björnsson, oodviti framsóknarmanna til fjölda ára, gefur ekki kost á sér áfram. Innlent 17.2.2006 10:15
Hafa tekið á um 100 handrukkurum og eiturlyfjasölum Sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra og lögreglumenn frá nokkrum embættum hafa haft afskipti af um það bil hundrað handrukkurum og eiturlyfjasölum síðan skipulagðar aðgerðir hófust gegn þessum hópum í fyrravor. Innlent 17.2.2006 07:38
Vöruskiptahalli í fyrra nærri hundrað milljarðar Vöruskiptahallinn við útlönd í fyrra nam hátt í hundrað milljörðum og hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Innlent 17.2.2006 09:40
Tíu árekstrar á Akureyri í gær Tíu árekstrar urðu á Akureyri í gær sem alla má rekja til slæms skygnis og hálku, og er árekstrafjöldinn langt yfir meðaltali þar í bæ. Engin meiddist þó í þessari hrynu, en talsvert eignatjón varð. Nú er farið að hlýna í veðri og varar lögreglan við enn meiri hálku en í gær. Innlent 17.2.2006 07:32
Peningum stolið úr hraðbanka á Fáskrúðsfirði Hraðbanki Landsbankans í söluskála Skeljungs á Fáskrúðsfirði var brotinn upp í nótt og þaðan stolið peningum. Ekki liggur enn fyrir hversu miklir peningar voru í bankanum en verið er að ganga úr skugga um það. Innlent 17.2.2006 08:47
Dagblað Dagsbrúnar verði stærst í Danmörku Dagblaðið sem Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, ætlar að gefa út í Danmörku verður gefið í út í 500 þúsund eintökum dag hvern og verður þannig langstærsta dagblað Danmerkur. Þetta hefur Jótlandspósturinn eftir heimildarmönnum sínum í málinu. Innlent 17.2.2006 07:20