Innlent
Getur hækkað verð fyrirtækja Ný raforkulög sem tóku gildi um áramótin hafa töluverð áhrif á mörg iðnfyrirtæki. Verði hækkunum velt út í verðlagið geta þær numið yfir 20%. Innlent 11.3.2006 12:20
Þrír fóru út af Þrír ökumenn misstu stjórn á bílum sínum í hálku á Fífuhvammsvegi í Kópavogi rétt fyrir klukkan tólf í gærkvöldi. Bílarnir lentu ekki saman heldur fóru út af hver á eftir öðrum með mjög skömmu millibili. Engin slys urðu á fólki. Innlent 11.3.2006 09:38
Hafnaði á vegriði Umferðarslys varð á Reykjanesbraut í Hvassahrauni rétt fyrir miðnætti í gær. Hálkan var mikil og missti ökumaður vald á bifreið sinni sem hafnaði á vegriði. Þrír farþegar sem voru í bifreiðinni kenndu ekki til eymsla en ökumaður var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík, vegna eymsla í hálsi og baki. Bifreiðin var óökufær og var flutt með dráttarbifreið. Innlent 11.3.2006 09:41
Skíðasvæði opin fyrir norðan Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu eru lokuð. Þó að snjó hafi kyngt niður í nótt þá er enn of lítill snjór í fjöllum til að hægt sé að opna. Hins vegar eru skíðasvæðin opin fyrir norðan. Innlent 11.3.2006 09:36
Veist að lögreglumönnum Veist var að lögreglumönnum við heimahús í Garðabæ um klukkan eitt í nótt og þeir slegnir. Samkvæmi var í húsinu og hafði lögregla upphaflega verið kölluð til vegna hávaða og fór hún á staðinn og bað húsráðendur að hafa lægra. Innlent 11.3.2006 09:30
Kokteilsósubað og lundadiskódans Sumar konur eru sjúkar í súrar gúrkur, aðrar hafa unun af því að fara í kokteilsósubað. Lundar geta líka dansað diskó og múmíur byggt sér kofa. Í Nýlistasafni Íslands í kvöld var hægt berja augum ýmislegt sem sjaldnast birtist almenningi. Það voru nemendur Listaháskóla Íslands sem buðu upp á gjörning í Nýlistasafninu og þar kenndi ýmissa grasa. Innlent 10.3.2006 22:22
Skiptar skoðanir um heilbrigðismál Skiptar skoðanir eru á álitum nefnda heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurskilgreiningu verksviða innan heilbrigðisþjónustunnar. Álitunum er ætlað að móta framtíðarumgjörð íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Haldinn var opinn kynningar- og umræðufundur um niðustöður tveggja nefnda sem báðar fjalla um þau grundvallaratriði og lagaramma sem íslensku heilbrigðiskerfi er ætlað að mótast af. Innlent 10.3.2006 22:13
Fjögurra bíla árekstur í Grímsnesi Fjórir bílar lentu í árekstri við Minniborg í Grímsnesi á níunda tímanum í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum en tveir voru þó fluttir á brott með sjúkrabíl. Ekki fengust upplýsingar um tildrög slyssins nú rétt fyrir tíu. Innlent 10.3.2006 21:50
Boðað til helgarfundar um vatnalög Þingheimur hefur verið boðaður saman til fundar á morgun til að ræða frumvarp til vatnalaga. Umræður um frumvarpið hafa þegar staðið yfir í rúman sólarhring og ganga ásakanirnar á víxl milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Innlent 10.3.2006 21:28
Spá áframhaldandi hárri verðbólgu Verðbólgan helst há næstu mánuði og mun ef eitthvað er aukast frá því sem nú er. Þetta er meðal þess sem má lesa úr umsögnum greiningardeilda bankanna um nýjustu verðbólgumælingar. Innlent 10.3.2006 19:47
Sluppu lítið meiddir úr bílveltu Þrír menn sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra valt og endaði á hvolfi rétt fyrir ofan Gullinbrú á leið í Grafarvog snemma í kvöld. Meiðsl mannanna virðast vera minniháttar en einn þeirra er nú til rannsóknar á slysadeild Landspítalans. Innlent 10.3.2006 20:59
Nauðgaði stúlku á stigagangi Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stúlku á stigagangi heimilis hennar. Stúlkan var mjög ölvuð og þótti dómnum sýnt að maðurinn hefði misnotað sér ástand hennar. Innlent 10.3.2006 17:21
Gjaldeyrisjöfnuður bankanna jákvæður Gjaldeyrisstaða bankanna var jákvæð um tæpa 83 milljarða króna í lok síðasta mánaðar. Þetta er hækkun um 21,7 milljarða króna á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 10.3.2006 17:02
Þrír mánuðir fyrir misbeitingu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 25 ára karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir að notfæra sér ölvun tvítugrar stúlku og hafa við hana mök þegar hún gat enga vörn sér veitt. Innlent 10.3.2006 16:53
Besti árangur FL Group frá upphafi 16 FL Group skilaði rúmlega tuttugu milljarða króna hagnaði fyrir skatta á síðasta ári. Afkoman er nokkuð betri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð og er forstjórinn hæstánægður. Innlent 10.3.2006 16:13
FL Group stærsti hluthafinn í easyJet FL Group hefur aukið hlut sinn í easyJet í 16,9 prósent. Markaðsvirði hlutarins nam í gær um tæpum 31 milljarði króna. Með þessu á FL Group orðinn stærsti hluthafi easyJet en stofnandinn Stelios Haji-Ioannou á 16,5 prósent. Viðskipti innlent 10.3.2006 14:55
Árdegi kaupir DagGroup Árdegi ehf hefur keypt alla hluti félaga í eigu Róberts Melax í Degi Group og Nordex og á nú félögin 100%. Í byrjun febrúar sl. seldi Dagur Group Senu ehf. til Dagsbrúnar hf. Dagur Group á og rekur 9 BT verslanir, 3 Skífuverslanir, 2 verslanir undir nafni Hljóðfærahússins auk Sony Center í Kringlunni. Innlent 10.3.2006 14:47
Farþegum um Leifsstöð fjölgar Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 4% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmum 89 þúsund farþegum árið 2005 í tæplega 93 þúsund farþega nú. Innlent 10.3.2006 13:56
Hagnaður FL Group 17,3 milljarðar Hagnaður FL Group fyrir skatta árið 2005 var rúmir 20,5 milljarðar króna samanborið við rúma 4,3 milljarða krónur árið áður. Eftir skatta var var hagnaður fyrirtækisins tæpir 17,3 milljarðar króna, samanborið við tæpa 3,6 milljarða króna árið áður. Þetta er besta afkoma fyrirtækisins fram til þessa. Viðskipti innlent 10.3.2006 14:11
Ólafur F. Magnússon borgarstjóraefni Frjálslynda flokksins Ólafur F. Magnússon er borgarstjóraefni Frjálslynda flokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Dóttir oddvitans er í fimmta sæti listans. Innlent 10.3.2006 13:43
Samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða Kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur verið samþykktur af miklum meirihluta félagsmanna eða með 91,4% atkvæða. Innlent 10.3.2006 13:50
Auðmenn kaupa upp jarðir Nokkrir hópar auðmanna eru að kaupa upp jarðir í stórum stíl vítt og breitt um landið og samþykkti Búnaðarþing í gær tillögu, um að kannað verði hvaða áhrif uppkaupin kunni að hafa á stöðu landbúnaðarins. Innlent 10.3.2006 13:33
Verð á brauði og kökum hækkar Verð á brauði og kökum hækkar um allt að fjórðung, ef hækkun á raforkuverði til bakaría vegna nýrra raforkulaga fer út í verðlagið. Þetta segir formaður Landssambands bakarameistara. Hingað til hafa bakarí fengið afslátt af raforku yfir hánóttina, þegar lítið álag er á orkuveitunni. Á móti hefur orkuveitan mátt skrúfa fyrir rafmagnsfrekustu tæki í bakaríum á þeim tímum dags þegar álagið er mest. En eftir að ný orkulög tóku gildi um áramótin segjast forsvarsmenn orkuveitunnar ekki lengur hafa forsendur til að semja á þennan hátt við bakarí. Það þýðir bara eitt..... kostnaður vegna raforku hefur rokið upp í bakaríum. Comment Reynir segist vonast til að þingmenn beiti sér í málinu, enda hafi margir þeirra barist fyrir lægra matvælaverði. Þá sé nefnd á vegum bakara í viðræðum við orkuveituna. Reynir óttast að ef ekkert gerist fljótt neyðist bakarar til að hækka verð og rjúfa þar með sátt. Innlent 10.3.2006 13:30
ÖBÍ mótmælir töfum hjá TR Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir þeim töfum sem fyrirsjáanlegar eru á svörum Tryggingastofnunar ríkisins við andmælum bótaþega vegna endurreikninga bóta ársins 2004. Í bréfi stofnunarinnar segir að því miður sé fyrirsjáanlegt að frekari dráttur verði á afgreiðslunni, einkum vegna manneklu og nauðsynlegrar forgangsröðunar verkefna. Því sé ekki ljóst hvernær mál verði tekið fyrir en vonandi verði hægt að ljúka þeim innan sex til átta mánaða. Innlent 10.3.2006 13:25
Stóru orðin ekki spöruð á Alþingi Stóru orðin voru ekki spöruð á Alþingi í morgun þegar umræðu um vatnalögin var haldið áfram. Iðnaðarráðherra sagði ekki stein standa yfir steini í málflutningi stjórnarandstöðunnar. Össur Skarphéðinsson var fyrstur í pontu til að ræða störf þingsins og sagði samkomulag EES ríkja um grunn vantatilskipunar ESB í höfn. Innlent 10.3.2006 13:15
Deilt um vatnalög Átök um frumvarp til vatnalaga harðna á Alþingi og ásakanir um valdbeitingu og málþóf ganga á víxl. Stjórnarþingmenn segja markmiðið að fá fram skýrt eignarhald á vatni og skynsamlega nýtingu þess, en stjórnarandstaðan segir að verið sé að einkavæða vatnsauðlindina. Innlent 10.3.2006 13:10
Björgólfur Thor ríkastur Íslendinga Björgólfur Thor Björgólfsson gæti staðið undir öllum opinberum rekstri á Íslandi í um það bil hálft ár. Hann er númer 350 á lista yfir ríkustu menn veraldar samkvæmt nýjum lista Forbes tímaritsins. Innlent 10.3.2006 13:06
Hald lagt á fíkniefni og góss Lögreglumenn, sem stöðvuðu ökumann í nótt og fanst hann grunsamlegur, fundu nokkur grömm af anfetamíni, eitthvað af hassi og maríjuana, þegar þeir leituðu á honum. Innlent 10.3.2006 07:35
Grillveisla en ekki eldsvoði Fjölmennt lið slökkviliðsmanna af höfuðborgarsvæðinu var sent á mörgum slökkvibílum að háhýsi við Engihjálla í Kópavogi á tíunda tímanum i gær eftir að tilkynningar bárust um að mikinn reyk legði frá húsinu, en tugir íbúða eru í því. Innlent 10.3.2006 07:31
Verðbóla eykst um 1,12 prósent Verðbólguvísitalan hækkaði um 1,12 prósent milli febrúar og mars samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Hækkunin er heldur meiri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Verðbólga án húsnæðis hækkaði um 1,17 prósent frá því í febrúar. Viðskipti innlent 10.3.2006 09:28