Innlent
Úrvalsvísitalan niður fyrir 6000 stig Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rétt tæp 4% frá opnun markaðar í morgun. Hún er nú komin niður fyrir 6000 stig. Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni hefur lækkað töluvert í dag og hefur lækkunin verið einna mest hjá fjármálastofnunum. Innlent 13.3.2006 15:25
Hinir efnameiri geti ekki greitt fyrir forgang Bæði Samfylkingin og Vinstri - grænir leggjast gegn þeim hugmyndum að hinum efnameiri verði heimilað að greiða fyrir það að komast framar á biðlista í heilbrigðiskerfinu, en hvatt er til umræðu um það í nýrri skýrslu á vegum nefndar heilbrigðisráðherra. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir markmiðið að kalla eftir skýrum svörum stjórnmálaflokkanna í þessum efnum. Innlent 13.3.2006 15:28
Áframhaldandi átök um vatnalögin Bullandi ágreiningur er enn milli stjórnar og stjórnarandstöðu vegna vatnalaganna en fundi iðnaðarnefndar vegna málsins er lokið. Fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni segir ríkisstjórnina vilja æða fram með málið til að lögfesta víðtækari eignarnámsheimildir sem hún þurfi vegna hinna miklu vatnsflutninga í tengslum við Kárahnúkavirkjun. Innlent 13.3.2006 15:20
Sækir um skráningu á bólefni gegn leghálskrabba Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline hefur sótt um skráningu á bóluefni til Evrópsku Lyfjastofnunarinnar fyrir bóluefni sem fyrirtækið hefur þróað gegn leghálskrabbameini. Bóluefnið sem nefnist Cervarix hefur í klíniskum rannsóknum sýnt fram á 100% vörn gegn viðvarandi sýkingu af völdum HPV-veiru sem veldur um 70% tilfella leghálskrabbameins í heiminum. Innlent 13.3.2006 14:12
Mikið að gera hjá lögreglunni í Hafnarfirði Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði hafði í nógu að snúast um helgina. Nokkuð bar á ölvun og þurfti lögreglan að hafa afskipti af þónokkrum vegna þessa. Áföstudagskvöld var lögreglan kölluð til að heimili í Garðabæ vegna hávaða og þegar hún hugðist hafa afskipti af stúlku einni sem var mikið ölvuð veittust að henni tveir menn. Innlent 13.3.2006 14:07
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja Mikill meirihluti slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaganna. Tæp 78% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já en tæp 21% sögðu nei. Kjörsókn var góð og greiddu eða um 91%. Innlent 13.3.2006 13:57
Ökumaðurinn ekki í lífshættu Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi og var Sæbrautinni lokað um tíma. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar á gatnamótum Súðavogar og Sæbrautar. Rútan var á leið vestur eftir Sæbrautinni þegar henni var að því er virðist ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar sem var að koma frá Súðavogi. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. Innlent 13.3.2006 13:02
Fleiri ökuníðingar á Akureyri nú en í fyrra Hátt í þrjátíu ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur á Akureyri í gærdag, sem er langt yfir meðallagi, og frá mánaðamótum er búið að svipta fimm ökumenn réttindum vegna ofsaaksturs. Frá áramótum er Akureyrarlögreglan búin að sekta 350 ökumenn fyrir hraðakstur, sem er hátt í sex sinnum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þá sektaði Blönduósslögreglan 85 ökumenn um helgina, sem er líka vel yfir meðallagi. Innlent 13.3.2006 12:32
Standard & Poor's staðfestir lánshæfismat á Íbúðalánasjóði Alþjóða matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest fyrra lánshæfismat sitt á Íbúðalánasjóði og segir horfur sjóðsins vera neikvæðar. Matsfyrirtækið gaf Íbúðalánasjóði lánshæfiseinkunnina AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt 10. mars síðastliðinn og setti sjóðinn á athugunarlista með neikvæðum horfum út annan ársfjórðung 2006. Viðskipti innlent 13.3.2006 12:34
Mótmæli stúdenta í og við Odda Hópur stúdenta við Háskóla Íslands stendur nú fyrir mótmælum í og við Odda, en þar hefst eftir nokkrar mínútur fyrirlestur bandaríska fræðimannsins og stjórnmálaráðgjafans Michael Rubin. Eftir því sem næst verður komist vilja mótmælendurnir andæfa þætti hans í stefnumótun bandarískra stjórnvalda vegna innrásarinnar í Írak. Innlent 13.3.2006 12:24
Auðveldar stuðning við nýsköpun og hátækni Auðveldara verður fyrir lífeyrissjóði að styðja við nýsköpun og hátækni, samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti í dag. Þá fá slík fyrirtæki auknar skattaívilnanir til að auðvelda rannsóknar -og þróunarstarf. Í fyrsta lagi verður reglugerð breytt þannig að fyrirtæki í þróunarstarfi geta verið með svokallaða fyrirfram skráningu í virðisaukaskattskerfnu í 12 ár í stað 6. Þá ætlar ráðherra að leggja fram frumvarp um að svokallað leiðréttingar tímabil vegna fasteigna lengist úr 10 árum í 20. Innlent 13.3.2006 12:01
Alvarlegt umferðarslys á Sæbrautinni Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi, og er hún nú lokuð frá Kleppsmýrarvegi og Miklubraut. Bráðasveitir lögreglu og slökkviliðs eru nú á Sæbrautinni vegna slyssins. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar og virðist sem rútan hafi ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. Ökumennirnir voru einir í farartækjum sínum. Innlent 13.3.2006 11:59
Iðnaðarnefnd fundar vegna vatnalaga Iðnaðarnefnd Alþingis kemur saman nú klukkan ellefu þar sem ræða hin umdeildu vatnalög. Önnur umræða um málið hófst á þingi fyrir viku en deilur um hvort kveða eigi skýrt um eignarhald á vatni urðu til þess að stjórnarandstaðan greip til málþófs. Innlent 13.3.2006 10:01
Sterling missir stærsta viðskiptavin sinn Lágjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu FL Group, hefur misst stærsta viðskiptavin sinn yfir til SAS. Þetta á við um farþegaflutninga fyrir Star Tour næstu tvö ferðatímabil og snýst um flutning á umþaðbil 200 þúsund manns. Það jafngildir að þrjár flugvélar með tilheyrandi áhöfnum séu í stanslausum flutningumn fyrir Star Tour. Sölustjóri ferðaskrifstofunnar segir þetta stærsta samning í sögu dönsku ferðarþjónustunnar, en talsmaður Sterling segir að félagið hafi ekki getað teygt sig lengra í tilboði sínu, en gert var. Innlent 13.3.2006 09:50
Bitist um Lundúnakauphöllina Verðið á Kauphöllinni í Lundúnum hækkaði um 22 prósent í morgun í kjölfar vangaveltna um hvort Nasdaq og Kauphöllin í New York taki að bítast um að kaup á kauphöllinni. Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Viðskipti innlent 13.3.2006 09:44
Rauð viðvörunarljós blikka á Íslandi Rauð viðvörunarljós eru farin að blikka á Íslandi, segir í fyrirsögn norska blaðsins Dagens Næringsliv um helgina. Þar er meðal annars vitnað í nýlega greiningu Fitch Rating, sem leiddi til lækkunar á gengi og verðbréfum í síðustu viku. Blaðamenn blaðsins, sem voru hér við efnisöflun, segja að Ísledingar hafi með gríðarlegri lántöku, náð að kaupa nokkur eftirsóknarverð fyrirtækið í Evrópu. Innlent 13.3.2006 09:09
Tugir þúsunda steraskammta fundust Tugir þúsunda ólöglegra steraskammta fundust við húsleit í líkamsræktarstöð í Reykjavík fyrir helgi. Að sögn Morgunblaðisns hefur lengi leikið grunur á að þar væru seldir ólögleglir sterar og var því aflað húsleitarheimilda. Einn maður var handtekinn vegna rannsóknarinnar, en hann hefur verið látinn laus þar sem málið telst að mestu upplýst. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn smyglaði efnunum sjálfur til landsins, eða var einungis viðriðinn sölu þess. Innlent 13.3.2006 07:04
Treystir sér ekki til að halda þyrlunum starfandi Tæknistjóri flugtæknideildar Landhelgisgæslunnar hefur sagt upp störfum og segir í viðtali við Fréttablaðið að hann treysti sér ekki til að halda vélum gæslunnar starfandi út árið fyrir þá fjármuni, sem til þess eru ætlaðir. Stóra þyrlan er enn í skoðun, en sú minni komst í gagnið fyrir nokkrum dögum eftir að hafa verið frá um tíma vegna bilunar. Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar segir í viðtali við Fréttablaðið að hann telji fjármuni til viðhalds vélanna duga út allt árið, ef rétt sé á haldið. Innlent 13.3.2006 07:26
Ráðleggja fjárfestum að selja íslensk skuldabréf Danska fjárfestingafélagið Nykredit beinir því til fjárfesta sinna að losa sig við skuldabréf í íslensku bönkunum vegna þess að hættan á að glata þeim fjármunum sé orðin of mikil. Þetta kom fram á vefsíðu Jótlandspóstsins seint í gærkvöldi. Þar segir yfirmaður greiningadeildar Nykredid að hann geti til dæmis ekki ráðlagt nokkrum manni að fjárfesta í KB banka, við núverandi aðstæður bankans, og víðar í evrópu séu stórir fjárfestar hættir að taka þátt í útrás íslenskra fyrirtækja. Innlent 13.3.2006 06:53
Sauðfé rúið Mikið líf og fjör var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Þar fylgdust börn og fullorðnir með því þegar sauðféð í garðinum var rúið og fengu að sjá hvað verður um ullina. Guðmundur Hallgrímsson ráðsmaður á Hvanneyri mætti til að rýja fé en það hefur hann gert síðustu ár. Innlent 12.3.2006 19:33
Fögnuðu 90 ára afmæli Alþýðuflokkurinn og Alþýðusamband Íslands fögnuðu í dag 90 ára afmæli sínu. Í tilefni af því voru hátíðarhöld í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sá staður er valinn þar sem stofnfundurinn var á sínum tíma haldinn í Bárubúð sem þá stóð þar. Leiðtogar jafnaðarmanna frá ýmsum tímum héldu ávörp í tilefni dagsins. Innlent 12.3.2006 19:27
Fræða ungmenni um kynlíf Læknanemar fara í yfir 200 heimsóknir á þessu ári í menntaskóla til að fræða ungmenni um kynlíf. Um er að ræða sjálfboðaverkefni sem staðið hefur í nokkur ár og er árangurinn að þeirra mati góður. Læknanemar hafa staðið fyrir kynfræðslu meðal menntaskólanema í nokkur ár. Innlent 12.3.2006 19:13
Sumarbústaður alelda Gamall sumarbústaður í Norðlingaholti varð alelda í nótt. Bústaðurinn er í rjóðri rétt fyrir utan nýja hverfið. Slökkviliðið var kallað út klukkan rúmlega þrjú og stóð slökkvistarf í einn og hálfan klukkutíma. Fara þurfti aftur á staðinn í morgun til að slökkva í glóðum. Innlent 12.3.2006 11:08
Giftingarhringar og farsímar í páskaeggjum Ótrúlegust hlutir geta leynst í páskaeggjum en á síðustu árum hafa giftingarhringir og gsm símar verið meðal þess sem þar hefur mátt finna. Páskaeggin byrja að streyma í verslanir eftir helgi. Innlent 12.3.2006 11:02
Íslandsbanki verður Glitnir Íslandsbanki veitir þjónustu sína héðan í frá undir nafninu Glitnir. Þetta var tilkynnt á fundi bankans í dag. Samhliða nýju nafni tekur bankinn upp nýtt merki og útlit. Dótturfélög bankans og skrifstofur í fimm löndum heita einnig framvegis Glitnir. Innlent 11.3.2006 19:20
07.07.07 vinsæll brúðkaupsdagur Flestir laugardagar yfir sumartímann eru vinsælir til þess að ganga í það heilaga. Einn laugardagur virðist þó ætla að verða öðrum vinsælli en það er sjöundi júlí á næsta ári og eru dæmi um að kirkjur séu uppbókaðar á þessum tíma. Innlent 11.3.2006 18:13
Mikill viðbúnaður vegna væntanlegs Kötlugoss Ef Katla gýs gæti fylgt gosinu gríðarstórt jökulhlaup sem talið er geta verið nærri sjö sinnum stærra en hlaupið á Skeiðarársandi árið 1996. Undirbúningsvinna vegna væntanlegrar rýmingar stendur yfir en rýma gæti þurft svæðið frá Þykkvabæ og austur fyrir Meðalland. Innlent 11.3.2006 18:09
Umræðum um vatnalög frestað fram á mánudag Umræðum á Alþingi um umdeild vatnalög var frestað laust fyrir klukkan fjögur. Það var gert að ósk Birkis Jóns Jónssonar formanns iðnaðarnefndar, en fundur í nefndinni um málið hefur verið boðaður á mánudag. Innlent 11.3.2006 15:58
Símkerfið gaf sig undan álagi Fullkomið brúðkaup, leikritið sem sló öll aðsóknarmet á Akureyri í vetur, er að endurtaka leikinn í Borgarleikhúsinu í Reykjavík. Símkerfi leikhússins sprakk í morgun og á fyrsta degi miðasölu í gær seldust fjögur þúsund miðar. Sýningar hefjast í lok apríl. Innlent 11.3.2006 15:51
Tvennar sameiningarkosningar Tvennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga fara fram í dag. Annars vegar í Strandasýslu þar sem kosið er um sameiningu Broddaneshrepps og Hólmavíkurhrepps og hins vegar í Austur- Húnavatnssýslu þar sem kosið verður um sameiningu Áshrepps og Húnavatnshrepps. Innlent 11.3.2006 12:25