Innlent
Dómur kveðinn upp í Baugsmáli um miðjan dag Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan korter í þrjú í dag. Um er að ræða átta ákæruliði um brot sem vógu ekki þungt í meintu heildarbroti 40 ákæruliða. Innlent 15.3.2006 09:26
Samkomulag um vatnalagafrumvarp Samkomulag náðist um afgreiðslu vatnalagafrumvarps iðnaðarráðherra skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Þá höfðu samningafundir stjórnar og stjórnarandstöðu staðið yfir klukkutímunum saman. Samkomulagið felur í sér að stjórnarandstæðingar hætta málþófi gegn því að lögin taka ekki gildi fyrr en haustið 2007. Innlent 15.3.2006 06:56
Ofsaakstur á Sæbraut í nótt Lögreglan í Reykjavík stöðvaði ökumann á tæplega 150 kílómetra hraða á Sæbraut í nótt þar sem hámarkshraði er 6o kílómetrar, þannig að hann var á umþaðbil 90 kílómetra hraða umfarm löglegan hámarkshraða. Auk þess kom í ljós að hann hafði áður verið sviftur ökuréttindum og var því próflaus. Hann var einn í bílnum og ódrukkinn Innlent 15.3.2006 07:41
Pólitísk hryðjuverkastarfsemi Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna harmar og hafnar hugmyndum Kristins H. Gunnarssonar í þá veru að huga að sameiningu Framsóknarflokks og Samfylkingar og líkir hugmyndinni við pólitíska hryðjuverkastarfssemi. Í ályktun sambandsins frá í gærkvöldi, segir að stanslausar árásir Kristins á eigin flokksfélaga og málefnastarf séu fyrir margt löngu komnar út fyrir öll velsæmismörk og ekki verði sérstök eftirsjá af Kristni þótt hann hverfi úr félagaskrá Framsóknarflokksins. Innlent 15.3.2006 07:39
Mikill eldur logar í atvinnuhúsnæði í Garðinum Allt tiltækt lið Brunavarna Suðurnesja er að berjast við eld, sem kviknaði í stóru atvinnuhúsi í Kothúsum í Garðinum á Reykjanesi um klukkan hálf fjögur í nótt. Fólk, sem var í húsinu, komst út ómeitt. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var eldur kominn í hluta þekju hússins og mikill eldur logaði innandyra í hluta þess. Svo Innlent 15.3.2006 06:53
Hætta málþófi um vatnalög Samkomulag náðist á Alþingi laust fyrir miðnætti um að afgreiða vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra sem lög frá Alþingi. Stjórnarandstæðingar fengu það í gegn að lögin taka ekki gildi fyrr en eftir kosningar og geta þá afnumið þau áður en þau taka gildi nái þeir meirihluta. Innlent 15.3.2006 02:02
Rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja verður bætt Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynnti á mánudag frumvarp og breytingar á reglugerðum er varða fyrirfram skráningu nýsköpunarfyrirtækja auk breytinga sem geri lífeyrissjóðum kleift að styðja fyrirtæki í nýsköpun og hátækni. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Sala á osti eykst Osta- og smjörsalan hagnaðist um 6,4 milljónir króna á árinu 2005. Hagnaðurinn árið á undan var 94 milljónir en innifalinn í því var 49 milljóna króna hagnaður af sölu Íslensks markaðar. Sala á ostum og viðbiti jókst töluvert árið 2005. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
TM íhugar að skrá sig úr Kauphöll Í máli Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, stjórnarformanns TM, á aðalfundi félagsins kom fram að taka þyrfti ákvarðanir um hvort það ætti að vera áfram skráð í Kauphöllina. Félagið uppfyllir ekki skilyrði um dreifða eignaraðild. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Krónufjárfestar brenndir Bæði innlendir og erlendir fjárfestar hafa tapað töluverðum fjárhæðum við veikingu krónunnar undanfarna daga. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Flugfélagið til sölu? Orðrómur er uppi um að Flugfélag Íslands sé til sölu eins og margt annað í eignasafni FL Group. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Launaskrið á bankastjórum Forstjórar viðskiptabankanna fengu allir yfir áttatíu milljónir króna í laun á síðasta ári. Mest hækkuðu laun Sigurjóns Þ. Árnasonar og Jóns Sigurðssonar á milli ára. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Staða Seðlabankans erfið Horfur eru á að verðbólga verði nálægt sex prósentum í vor. Búist er við að veiking krónunnar gangi eilítið til baka. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Opna gleraugnaverslun í apótekum Lyf og heilsa hefur opnað tvær nýjar gleraugnaverslanir í apótekum sínum á höfuðborgarsvæðinu undir heitinu Augastaður. Verslanirnar eru í nýju apóteki Lyfja og heilsu í Hamraborg í Kópavogi og í JL-húsinu í Vesturbæ Reykjavíkur. Í fyrra var einnig opnuð verslun í Apótekaranum í Hafnarstræti á Akureyri. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Hlutur Fons í sölumeðferð Tæplega 62 prósenta hlutur Fons Eignarhaldsfélags, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, í Plastprenti, er nú í sölumeðferð hjá MP Fjárfestingabanka hf. Viðskipti innlent 15.3.2006 01:13
Hús rýmd út af sprengihættu Frystihúsið á Breiðdalsvík, lífæð atvinnulífsins á staðnum, brann í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið á Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði vann að því að slökkva eldinn auk Stöðvarfjarðardeildar Rauða kross Íslands, björgunarsveitarmanna og lögreglu. Innlent 14.3.2006 21:55
Mæla með bankabréfum Þýski bankinn DrKW telur í nýrri greiningu að álag á skuldabréf íslensku bankanna sé of hátt. Bankinn segir að það álag sem sé á bréfunum sé töluvert umfram það sem áhættan réttlæti að hans mati. Viðskipti innlent 14.3.2006 21:55
Fór sjálfur á slysadeild Umferðaróhapp varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs á fjórða tímanum í dag. Ökumaður annars bílsins kenndi eymsla í baki og hálsi og fór sjálfur á slysadeild til rannsókna. Fleiri sakaði ekki. Innlent 14.3.2006 22:55
Reynt að höggva á hnútinn Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna gengu rétt fyrir kl. 22 í kvöld inn á skrifstofu forseta Alþingis þar sem gerð er tilraun til að leysa þann hnút sem kominn er á umræður um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra. Stöðugir fundir hafa staðið yfir í Alþingishúsinu í kvöld. Innlent 14.3.2006 22:14
Íbúar á Breiðdalsvík eru lamaðir vegna brunans Íbúar á Breiðdalsvík eru lamaðir vegna brunans í frystihúsinu en frystihúsið er stærsti vinnustaður bæjarins og þar vinna um fjörtíu manns. Slökkvilið vinnur enn að því að slökkva eldinn. Vindur er hægur á þessum slóðum svo nærliggjandi húsum stafar ekki hætta af eldinum. Innlent 14.3.2006 22:05
Ný reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla Sjávarútvegsráðuneytið gaf í dag út reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Í reglugerðinni eru margvísleg nýmæli sem miða fyrst og fremst að því að fella vigtunina betur að vinnslu og viðskiptaferlum í atvinnugreininni. Innlent 14.3.2006 20:16
70 börn á gjörgæsluna árlega Um sjötíu börn þarf að flytja, ár hvert, af Barnaspítalanum á gjörgæslu, sem er í næsta húsi. Hágæsluherbergi var ekki á forgangslista spítalans, enda talið brýnna að bæta við tækjum og fullmanna stöður fyrir almenna þjónustu. Innlent 14.3.2006 18:59
Nýr sendiherra Íslands gagnvart Slóveníu Kristinn F. Árnason, sendiherra, afhenti í dag Janez Drnovsek, forseta Slóveníu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Slóveníu, með aðsetur í Genf. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Ljubljana, höfuðborg landsins. Innlent 14.3.2006 18:06
Líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum Þingmál um að upplýsingar um líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum einstaklinga hefur verið lagt fram á Alþingi. Fyrsti flutningsmaður er Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. Innlent 14.3.2006 18:12
Intrum innheimtir fyrir Borgarbókasafnið Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur samið við innheimtufyrirtækið Intrum Justitia um innheimtu á efni safnsins sem er í vanskilum. Innlent 14.3.2006 17:59
Hart deilt um aðkomu UMFÍ að umsögn Formaður Ungmennafélags Íslands, segir samtökin ekki hafa samþykkt sameiginlega umsögn nokkurra félagasamtaka um andstöðu við ný vatnalög þrátt fyrir að nafn þeirra sé á umsögninni. Þingmaður Samfylkingar spurði hvaða Framsóknarmaður hefði skammað formanninn til að hann skipti um skoðun. Innlent 14.3.2006 17:39
Undirskriftasöfnun vegna hágæsluherbergis Búið er að hrinda af stað undirskriftasöfnun á netinu vegna hágæsluherbergis á Barnaspítala Hringsins. Þar sem því er beint til stjórnvalda að hágæsluherbergi eigi skilyrðislaust að vera sett upp þegar í stað. Innlent 14.3.2006 17:06
Fjórir sækja um embætti hæstaréttardómara Fjórir hafa sótt um embætti hæstaréttardómara sem auglýst var laust til umsóknar, en umsóknarfrestur rann út þann 10. mars síðastliðinn. Innlent 14.3.2006 16:35
65 milljónir til Vestfjarða Húsafriðunarnefnd hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2006 og fara rúmar 65 milljónir króna til Vestfjarða. Í frétt á fréttavefnum Bæjarins besta kemur fram að tíu kirkjur á Vestfjörðum fái styrk en hæsta styrkinn, fjórar milljónir króna, fær Þingeyrarkirkja við Dýrafjörð. Innlent 14.3.2006 15:37
Leggur til að upplýsingar um líffæragjöf komi fram á ökuskírteini Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að upplýsingar um líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum einstaklinga. Hann leggur til að farin verði sú leið að notast við upplýsingar á ökuskírteinum líkt og gert sé í Bandaríkjunum, en látnir ökumenn koma oft til greina sem líffæragjafar. Innlent 14.3.2006 15:29