Innlent
DV framvegis helgarblað Útgáfu DV verður hætt í núverandi mynd og kemur blaðið framvegis aðeins út um helgar. Tíu manns verður sagt upp störfum á ritstjórninni. Þetta kom fram á starfsmannafundi hjá blaðinu í dag. Innlent 28.4.2006 15:25
Sveitarfélag Ölfuss og OR semja um samstarf Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem felst meðal annars í lýsingu Þrengslavegar, samstarf við uppgræðslu og umhverfisvernd, framkvæmdir í sveitarfélaginu og ljósleiðaravæðingu í þar. Innlent 28.4.2006 14:03
Starfsfólk DV boðað til starfsmannafundar Starfsfólk DV hefur verið boðað til starfsmannafundar klukkan þrjú. Ritstjórar blaðsins hafa ekki gefið neitt upp um efni fundarins, en búast má við að hann fjalli um framtíð blaðsins. NFS fylgist með og segir fréttir af fundinum um leið og þær berast. Innlent 28.4.2006 14:08
Frumvarp um frjálst flæði vinnuafls samþykkt Frumvarp til laga um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga var samþykkt á Alþingi nú á öðrum tímanum með 46 greiddum atkvæðum. Frumvarpið snýr að réttindum ríkisborgara frá átta af tíu hinna nýju Evrópusambandsríkja. Þeir geta nú komið hingað til lands og ráðið sig í vinnu án atvinnuleyfis frá og með 1. maí. Innlent 28.4.2006 13:54
Vinnubrögð meirihlutans algjörlega óviðunandi Vinnubrögð meirihlutans í Kópavogi í málefnum Gustssvæðisins eru algjörlega óviðunandi að mati Samfylkingarmanna í bænum. Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til viðræðna við stjórnarmenn Gusts um að taka yfir kauptilboð þeirra á hesthúsum á svæðinu.Forsaga málsins er sú að í ágúst í fyrra hófu fjárfestar að kaupa upp hesthús á Gustssvæðinu sem svo er kallað og fyrr en varði áttu þeir um 40 prósent húsanna. Innlent 28.4.2006 13:46
Setuverkfall á Hrafnistu í Reykjavík en ekki Hafnarfirði Ófaglærðir starfsmenn á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík ákváðu á fundi nú í hádeginu að halda til streitu steuverkfalli sínu. Starfsmenn á Hrafnistu í Hafnarfirði ákváðu hins vegar að hætta aðgerðum og ganga að tilboði Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Innlent 28.4.2006 13:36
Dagsbrún telur RÚV-frumvarp brjóta í bága við EES-samninginn Dagsbrún telur að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið hf. brjóti í bága við ákvæði EES-samningsins um ríkisaðstoð. Í tilkynningu frá félaginu segir að það að með því að undanskilja Ríkisútvarpið reglum um eignarhald er óhjákvæmilega verið að lögfesta mismunun á grundvelli þjóðernis sem EES-reglur banni. Innlent 28.4.2006 13:26
Frumvarp til laga um frjálsa för verkafólks rætt á þingi Nú stendur yfir á þingi önnur umræða um frumvarp um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturrétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin eiga að taka gildi 1. maí og því liggur á að samþykkja þau. Innlent 28.4.2006 12:24
Rætt hvort halda eigi aðgerðum áfram á Hrafnistu Neyðarástand skapast á dvalar- og hjúkrunarheimilum ef ekki semst við ófaglært starfsfólk á allra næstu dögum. Deilan strandar á svari frá fjármálaráðherra segir formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Nú klukkan hálfeitt var boðað til neyðarfundar á Hrafnistu í Reykjavík þar sem ekki er samstaða meðal starfmannanna um hvort halda eigi setuverkfalli til streitu. Innlent 28.4.2006 12:34
Ólíklegt að Íslendingar fái breytt varnaráætlun Ólíklegt má telja að Íslendingar fái nokkru breytt um þá varnaráætlun sem sendinefnd Bandaríkjamanna kynnti í íslenska utanríkisráðuneytinu í gær. Ekki síst í ljósi þess að varnarliðið birti í gær áætlun um um lokun allra þjónustustofnana við varnarliðsmenn áður en fundur fulltrúa Íslendinga og Bandaríkjamanna hófst í gær. Innlent 28.4.2006 12:18
Vöruskiptahalli ekki meiri í einum mánuði í 17 ár Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var 13,4 milljarðar króna og hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðastliðin sautján ár. Jöfnuðurinn 16,7 milljörðum króna lakari á fyrsta ársfjórðungi þess árs en á sama tíma í fyrra. Bílainnflutningur jókst um nærri tvo þriðju á tímabilinu en búast má við að hann dragist saman á næstunni vegna lækkunar á gengi krónunnar. Innlent 28.4.2006 12:13
Sex stéttarfélög semja við LN Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svokölluð HugGarðsfélög en Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra fræða og Stéttarfélag lögfræðinga samþykktu samninginn með öllum greiddum atkvæðum. Innlent 28.4.2006 08:59
Kennslusýning Hólaskóla Reiðkennarabraut Hólaskóla, í samvinnu við hestamannafélagið Fák, stendur fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni í Víðidal helgina 6.-7. maí. Nemendur og kennarar skólans bjóða upp á spennandi dagskrá varðandi reiðmennsku og þjálfun frá morgni til kvölds báða dagana. Nánar auglýst síðar. Sport 28.4.2006 10:04
Skotveiðimenn bjartsýnni á gæsaveiðar í haust en áður Skotveiðimenn eru bjartsýnni með hverjum deginum sem líður á að hægt verði að stunda gæsaveiðar í haust, en eftir að fuglaflensu varð vart á Bretlandseyjum fyrir nokkru var talið víst að hún bærist hingað með farfuglum í vor. Innlent 28.4.2006 09:06
Fimmti maðurinn í gæsluvarðhald vegna BMW-smygls Fimmti maðurinn hefur verið úrskurðaður í gærluvarðhald vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnasmygli, þar sem reynt var að smygla tugum kílóa af fíkniefnum í bensíngeymi BMW-bifreiðar. Sá fimmti var Íslendingur, en auk fjögurra Íslendinga situr einn Hollendingur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Innlent 28.4.2006 08:57
Vöruskiptin óhagstæð um 13,4 milljarða Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13,4 milljarða króna í mars. Vörur voru fluttar út fyrir 19,9 milljarða króna en inn fyrir 33,3 milljarða króna. Í mars í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 6,3 milljarða á föstu gengi. Viðskipti innlent 28.4.2006 09:37
Frakka íhuga að auka umsvif sín á N-Atlantshafi Frakkar íhuga að auka umsvif sín á Norður-Atlantshafi til að tryggja öryggi á svæðinu. Þetta segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í viðtali við Morgunblaðið eftir viðræður við varnarmálaráðherra Frakklands í París í gær. Innlent 28.4.2006 08:47
Setuverkfall á a.mk. sex dvalarheimilum Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á að minnstakosti sex dvalar- og hjúkrunarheimilum á suðvesturlandi hófst á miðnætti vegna óánægju starfólks þar yfir því að fá laun sín ekki hækkuð til jafns við laun annarsstaðar fyrir sambærilega vinnu, fyrr en í upphafi næsta árs. Innlent 28.4.2006 08:33
Hlutabréf í KB banka og Straumi Burðarási lækkuðu Hlutabréf í KB banka og Straumi Burðarási lækkuðu í Kauphöllinni í dag. Uppgjör félaganna voru kynnt í morgun en þá varð ljóst að þau slógu öll fyrri hagnaðarmet á fyrstu þremur mánuðum ársins. Innlent 27.4.2006 22:56
Setuverkfall á miðnætti Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst á miðnætti. Á fundi starfsmannanna í dag var ákveðið að boða til viku setuverkfalls. Þeir eru ósáttir við ákvarðanir forsvarsmanna heimilanna um að hækka laun einhliða og talsmaður starfsmanna býst við fjöldauppsögnum á næstunni. Innlent 27.4.2006 22:44
Undirbúningur álvers í fullum gangi Undirbúningur að byggingu álvers í Helguvík er í fullum gangi, segir einn æðsti yfirmaður Norðuráls á Íslandi. Reykjaneshöfn og Norðurál sömdu í dag um hafnarþjónustu og leigu landspildu undir álver. Innlent 27.4.2006 21:54
Kjarasamningar sex félaga samþykktir Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svo kölluð HugGarðsfélög. Innlent 27.4.2006 21:17
Óttast að laun verkafólks lækki Laun verkafólks geta versnað til muna ef lagafrumvarp um frjálsa för austur-evrópskra launamanna verður að lögum segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Alþingi tekur frumvarpið fyrir á morgun. Innlent 27.4.2006 20:27
Hækka verð á ferðum vegna gengislækkana Ljóst er að ferðir margra Íslendinga til útlanda í sumar verða ekki til fjár, því stærstu ferðaskrifstofurnar hafa hækkað verð á öllum ferðum sínum vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar. Hækkun á sólarlandaferð fyrir meðalfjölskyldu nemur um 25 þúsund krónum. Innlent 27.4.2006 18:54
Boða setuverkfall og fjöldauppsagnir Ófaglærðir starfsmenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum ákváðu, á fundi sínum í dag, að boða til viku setuverkfalls sem hefst nú á miðnætti. Þeir eru ósáttir við ákvarðanir forsvarsmanna heimilanna um að hækka laun einhliða og talsmaður starfsmanna býst við fjöldauppsögnum á næstunni. Innlent 27.4.2006 18:47
Þriðji mesti gróði vegna eignasölu Landsbankinn seldi hlut sinn í norræna fjárfestingabankanum Carnegie í morgun og græddi á því tíu milljarða króna. Landsbankamenn segja gróðann jafnast á við tvær og hálfa loðnuvertíð. Innlent 27.4.2006 18:23
Ávinna sér rétt sem jafngildir 90 milljónum króna í starfslokagreiðslu Ráðherra sem situr í 12 ár á stóli ávinnur sér lífeyrisrétt sem jafngildir 90 milljónum króna í starfslokagreiðslu umfram það sem almennur iðgjaldagreiðandi fær. Þetta sýna útreikningar Samtaka atvinnulífsins. Alþýðusamband Íslands segir þetta ólíðandi og mótmælir nýju frumvarpi til laga um kjararáð þar sem ráðið eigi ekki að fjalla um lífeyrisréttindin. Innlent 27.4.2006 18:50
Norðurál leigir lóð undir álver Norðurál gekk í dag frá samningi við Reykjaneshöfn um lóð og hafnarþjónustu vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Reykjaneshöfn, sem er í eigu Reykjanesbæjar, sér Norðuráli fyrir hafnaraðstöðu í Helguvík og verður nýr 200 metra viðlegukantur gerður í höfninni. Innlent 27.4.2006 18:13
Aftur í setuverkfall Ófaglærðir starfsmenn hjúkrunarheimila fara í setuverkfall í kvöld til að knýja á um kjarabætur. Starfsmennirnir hafa tvisvar sinnum áður farið í setuverkfall en frestuðu aðgerðum í þriðja sinn meðan þeir biðu eftir boði um betri kjör. Þeim þótti boðið sem barst óásættanlegt og hefja því aðgerðir á ný. Innlent 27.4.2006 17:06
Ekkert gefið upp Ekkert er gefið upp um gang viðræðna Bandaríkjamanna og Íslendinga um varnarsamninginn sem framhaldið var í utanríkisráðuneytinu í dag en þeim verður haldið áfram fljótlega. Utanríkismálaráðherra gerir utanríkismálanefnd Alþingis grein fyrir viðræðunum á laugardag. Innlent 27.4.2006 16:44