Innlent

Fréttamynd

Fjölmenni í kröfugöngu

Fjöldi fólks tekur þátt í kröfuganga dagsins í Reykjavík sem lagði upp frá Hlemmi fyrir hálftíma sem upphafið að hátíðahöldum á baráttudegi verkalýðsins. Nú er fólk að safnast saman á Ingólfstorgi þar sem útifundur hefst tíu mínútur yfir tvö.

Innlent
Fréttamynd

Vinstri-grænir kynna lista sinn

Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum leiðir framboðslista Vinstri-grænna í Dalasýslu fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Framboðslistinn var samþykktur einróma á félagsfundi Vinstri-grænna í gær.

Innlent
Fréttamynd

Femínistafélagið fær jafnréttisverðlaun

Femínistafélag Íslands hlaut Jafnréttisverðlaun Reykjavíkurborgar. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í dag og sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri að það hefði komið á óvart hversu margar tilnefningar bárust.

Innlent
Fréttamynd

Kjósa milli þriggja nafna

Gljúfrabyggð, Norðausturbyggð eða Norðurþing er nafnið sem sameinað sveitarfélag Húsavíkur, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps fær.

Innlent
Fréttamynd

Gjá milli ASÍ og verkalýðsfélaga

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýnir forystu Alþýðusambands Íslands harðlega í pistli á heimasíðu verkalýðsfélagsins. Hann segir gjá hafa myndast milli ASÍ og fjölda verkalýðsfélaga.

Innlent
Fréttamynd

Hreinsunarátak við strendur landsins

Samtökin Veraldarvinir eru að hefja stórátak til að hreinsa strandlengju landsins. Á fréttavefnum Bæjarins besta er greint frá því að stefnt sé að hreinsa alla strandlengju landsins á árunum 2006 til 2011. Strendur verða hreinsaðar á fjórum stöðum í sumar, við Tálknafjörð, Vík í Mýrdal, Fjarðarbyggð og Siglufjörð. Stefnt er að því að fjarlægja allt rusl, kortleggja stærri svæði og gera áætlanir um hvernig hægt sé að þrífa þau í framtíðinni.

Innlent
Fréttamynd

Á 149 km hraða

Sautján ára gamall drengur var stöðvaður á Suðurlandsvegi rétt austan við Hvolsvöll í gærkvöld eftir að ökutæki hans var mælt á 149 km hraða. Bíllinn var fullur af farþegum.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnamál í Kópavogi

Lögreglan í Kópavogi gerði upptækt lítilsháttar magn af kannabisefni og amfetamíni í nótt. Þrír voru handteknir vegna málsins en þeir voru allir gómaðir við venjubundið eftirlit. Allir voru þeir góðkunningjar lögreglunnar en eftir yfirheyrslur fengu mennirnir að fara til síns heima og telst málið upplýst.

Innlent
Fréttamynd

Datt niður úr pálmatré

Rokkarinn aldni Keith Richards hefur verið lagður inn á sjúkrahús á Nýja Sjálandi, eftir að hann fékk heilahristing í fríi á Fiji eyjum. Fríið hjá Richards virðist ekki bara hafa einkennst af rólegheitum, því að fyrst hrundi hann niður úr pálmatré og skömmu síðar lenti hann í árekstri á sjóskíðum.

Lífið
Fréttamynd

Vélsleðamaðurinn fundinn

Maðurinn sem leitað var á Langjökli síðan klukkan níu í morgun fannst heill á húfi nú rétt áðan. Hann fannst vestan við Klakk, rakur og kaldur en á annað hundrað björgunarsveitarmenn leituðu hans í dag.

Innlent
Fréttamynd

Mældist á um 180 km hraða

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann sem mældist á um 180 kílómetra hraða í gær. Annar ökumaður reyndi að stinga lögreglunna af eftir að hann hafði mælst á um 160 kílómetra hraða. Sá hafnaði utan vegar og á yfir höfði sé háar sektir því hann reyndist einnig vera ölvaður.

Innlent
Fréttamynd

Setuverkfalli aflýst á Sunnuhlíð

Ófaglært starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi samþykktu nýja kjarasmaninga og aflýsti setuverkfalli á fjórða tímanum í dag. Starfsemin er komin í eðlilegt horf. Samningar hafa því tekist á öllum dvalar- og hjúkrunarheimilunum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ófaglærðir hafa verið í kjarabaráttu síðustu vikurnar.

Innlent
Fréttamynd

Gagnrýnir ummæli Sveins Andra

Hreinn Loftsson hæstarréttarlögfræðingur hefur gert athugasemd við ummæli Sveins Andra Sveinssonar hæstarréttarlögmanns í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Hreinn gagnrýnir Svein fyrir að tjá sig um hver hugsanleg niðurstaða yrði í málinu á hendur Jón Ásgeiri Jóhannessyni og fleiri aðilum.

Innlent
Fréttamynd

Silvía Nótt gefur út ljóðabók

Silvía Nótt áritaði nýútkomna ljóðabók sína, Teardrops of wisdom, eða viskutár, í húsakynnum B&L í dag. Fjöldi manns var samankomin til að bera stórstjörnuna augum og eins og sönn stjarna mætti Silvía Nótt aðeins of seint.

Innlent
Fréttamynd

Hvarf úr sumarbústað í Lóni

Óskað var eftir aðstoð Björgunarfélags Hornafjarðar og lögreglu við leit á tólf ára gömlum strák sem hvarf frá sumarhúsi í Gjádal í Lóni um klukkan eitt í dag. Liðsmenn björgunarfélagsins voru komnir á staðinn skömmu síðar og hófu strax leit. Drengurinn fannst um klukkan tvö en hann hafði þá farið úr sumarhúsinu í fússi og falið sig í nágrenninu.

Innlent
Fréttamynd

Setuverkfall enn á Sunnuhlíð

Samningar náðust milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins síðdegis í gær. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja.

Innlent
Fréttamynd

Leitað að vélsleðamanni

Fjölmennt lið björgunarsveita er að fara af stað til að leita að vélsleðamanni sem er týndur á Langjökli. Maðurinn var ásamt þremur félögum sínum á jöklinum, þegar þeir týndu honum og ekkert hefur til hans spurst síðan. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg eru björgunarmenn rétt í þessu að leggja af stað upp á jökulinn.

Innlent
Fréttamynd

Lokað fyrir umferð um Dyrhólaey

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka fyrir almenna umferð um Dyrhólaey frá 1. maí næstkomandi og til með 25. júní. Umhverfistofnun mun jafnframt, í samráði við landeigendur og nytjaréttarhafa, fylgjast með varpi á eynni og skoða hvort opna eigi fyrr fyrir umferð á Háey.

Innlent
Fréttamynd

Kraflar hefur það gott í Húsdýragarðinum

Höfðinginn mikli, Kraflar frá Miðsitju, hefur dvalið í góðu yfirlæti í Húsdýragarðinum í vetur. Klárinn lítur ótrúlega vel út og að sögn dýrahirða í garðinum er hann hvers manns hugljúfi. Kraflar er alltaf jafn unglegur og ef ekki væri fyrir gráu hárin í enni hans myndi maður alveg getað trúað því að þarna væri ungfoli á ferð. Feldurinn svartur og glansandi, byggingin létt og fasið unglegt.

Innlent
Fréttamynd

Vegurinn um Þrengslin lýstur upp

Vonast er til að vegurinn um Þrengslin verði upplýstur í kringum næstu áramót. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir þá hafa boðið Vegagerðinni að taka þátt í að lýsa einnig upp Hellisheiðina.

Innlent
Fréttamynd

Sammála um að aðgerða þörf í málefnum aldraðra

Oddvitar stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru sammála um að aðgerða sé þörf í málefnum aldraðra. Formaður Félags eldri borgara segir það kröfu félagsins að málefnin aldraðra verði alfarið færð til sveitafélaganna.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins eftir að semja í Sunnuhlíð

Samningar hafa tekist milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins. Eftir því sem fréttastofa NFS kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja.

Innlent
Fréttamynd

Kosningarnar framundan lita Gustsmálin

Kosningarnar í vor hafa hugsanlega áhrif á deilurnar sem sprottnar eru upp um kaup á húsum á hinu svokallaða Gustssvæði, segir talsmaður viðræðunefndar Gusts. Forsvarsmenn félagsins sáu sig knúna til að kalla til fundar í kvöld til að skýra málin fyrir félagsmönnum.

Innlent
Fréttamynd

Verkmenntaskóli Austurlands 20 ára

Það var mikið um fjör á Neskaupsstað í dag þegar Verkmenntaskóli Austurlands fagnaði tuttugu ára starfsafmæli sínu. Á Fréttavefnum Aussturlandið.is kemur fram að fjölmenni hafi verið á afmælishátíðinni og meðal gesta voru Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, Guðmundur Bjarnason.

Innlent
Fréttamynd

Kvöldfréttir NFS sauma að kvöldfréttum RÚV

Kvöldfréttir NFS sauma nú að kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í áhorfi samkvæmt nýrri áhorfskönnun IMG Gallup sem opinberuð var í dag. Samkvæmt henni mælist áhorf á kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins 40.4% miðað við 34.5% áhorf á kvöldfréttatíma NFS.

Innlent
Fréttamynd

Biðröð á bensínstöðvum vegna tímabundinna verðlækkana

Það hljómaði eins og aprílgabb þegar tilkynnt var á útvarpsstöðinni Kiss FM í dag að eldsneytisverð yrði lækkað á bensínstöðvum Bensínorkunnar í höfuðborginni um nærri þriðjung miðað við almennt verð. Svo var þó ekki og því mynduðust langar biðraðir á stöðvunum á meðan tilboðið stóð enda hefur dropinn verið dýr undanfarnar vikur.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa að kanna pólitíks tengsl viðskiptavina

Bankar þurfa að kanna pólitísk tengsl viðskiptavina sinna, samkvæmt frumvarpi um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í áhættuhópi eru þeir sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu og eru búsettir utan Íslands, sem og nánasta fjölskylda þeirra.

Innlent