Erlent

Fréttamynd

Með einkarétt á fetaosti

Hvað er „feta"? Ostur, en meira en það. Evrópudómstóllinn úrskurðaði í dag að feta væri nánar til tekið saltur, grískur ostur gerður úr blöndu af kúa- og geitamjólk.

Erlent
Fréttamynd

Agavandamál í skólum hér á landi

Stjórnvöld í Bretlandi ætla að gefa kennurum frekari lagaheimildir til að ráða við nemendur og refsa þeim sem haga sér illa. Agavandamál eru altöluð á meðal kennara hér á landi og getur tekið hátt í hálfa kennslustund að koma ró á bekkinn.

Innlent
Fréttamynd

60 grindhvalir syntu upp á land

Nærri sextíu grindhvalir syntu upp á land á ströndum Tasmaníu í gær. Björgunarmenn þustu á staðinn en þeir náðu aðeins að bjarga tíu hvöldum.

Erlent
Fréttamynd

34 hjálparstarfsmenn í haldi

Flótamenn í Darfur héraði í Súdan hafa tekið þrjatíu og fjóra hjálparstarfsmenn í gíslingu í stærstu flóttamannabúðunum í Darfúr. Flóttamennirnir krefjast þess að einn af leiðtogum þeirra sem var nýverið handtekinn, verði látinn laus.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnarskráin samþykkt

Stjórnarskrá Íraks hefur verið samþykkt. Endanlegar tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu bárust nú rétt fyrir hádegi og samþykktu tæplega áttatíu prósent Íraka stjórnarskrána.

Erlent
Fréttamynd

Tamiflu nánast uppselt í Danmörku

Ótti Dana við fuglaflensu er slíkur að nú er inflúensulyfið Tamiflu nánast uppselt í apótekum og hjá heildsölum í landinu. Sala á lyfinu jókst mikið í síðasta mánuði og hefur einnig aukist í þessum í kjölfar frétta af því að hin banvæni H5N1-stofn veirunnar hafi greinst í fuglum í Austur-Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Meira en helmingur fórnarlamba yfir sextugu

Meira en helmingur þeirra sem létust af völdum fellibylsins Katrínar voru yfir sextugu. Nýjar tölur frá heilbrigðisyfirvöldum í Louisiana benda til að langflest fórnarlömb fellibylsins hafi verið eldri borgarar sem ýmist gátu ekki eða vildu ekki yfirgefa heimili sín.

Erlent
Fréttamynd

Kínverjar óttast útbreiðslu HIV

Allt að tíu milljón Kínverjar gætu smitast af HIV-veirunni á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til aðgerða. Þetta sagði helsti alnæmissérfræðingur Kínverja í gær og tók þar með undir varnaðarorð Sameinuðu Þjóðanna.

Innlent
Fréttamynd

Skotið á herskáa Palestínumenn

Ísraelsk herþota skaut í morgun sprengjum að vígi herskárra Palestínumanna í borginni Beit Hanoun á Gaza. Hópur sem tengist Fatah-hreyfingunni heldur til í byggingunni en enginn virðist hafa slasast í árásunum.

Erlent
Fréttamynd

Ben Bernanke tilnefndur sem seðlabankastjóri BNA

George Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær Ben Bernanke, ráðgjafa í Hvíta húsinu, sem næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Bernanke er ætlað að taka við af Alan Greenspan sem hættir snemma á næsta ári eftir ríflega 18 ár í starfi seðlabankastjóra.

Erlent
Fréttamynd

Sex borgarar drepnir í Afganistan

Afganskir uppreisnarmenn drápu sex óbreytta borgara seint í gærkvöldi í árás sem beindist að bandarískum herjeppa. Árásin mistókst og hermennirnir sluppu allir ómeiddir. Bíll sem átti leið hjá varð hins vegar fyrir skoti úr sprengjuvörpu með þeim afleiðingum að allir farþegarnir sex létust.

Erlent
Fréttamynd

Baráttukonan Rosa Parks látin

Rosa Parks, saumakonan frá Alabama, sem varð heimsfræg fyrir að fylgja ekki þeirri reglu aðskilnaðarlaga að standa upp fyrir hvítum í strætisvagni árið 1955, lést í gær í Detriot í Bandaríjkunum 92 ára gömul.

Erlent
Fréttamynd

Skýrla kynnt í öryggisráði SÞ

Höfundur skýrslu Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hairiri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, mun í dag kynna skýrsluna í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Í skýrslunni er því haldið fram að hátt settir menn innan stjórnkerfis Sýrlands hafi átt aðild að morðinu.

Erlent
Fréttamynd

Lyf í rúgbrauði

Nú eru allar líkur á því að Danir og aðrar þjóðir innan Evrópusambandsins geti sótt sér lyf í bakarí í stað apóteks. Það einskorðast þó eingöngu við lyf sem lækna eiga háa blóðfitu. Ástæðan er sú að í gær töpuðu Danir kosningu á Evrópusambandsþinginu þar sem önnur ríki kusu með því að leyfa slík lyf í tveimur gerðum af rúgbrauði.

Innlent
Fréttamynd

Fuglaflensa greinist aftur í Kína

Fuglaflensu hefur aftur orðið vart í Kína, í þetta sinn á meðal aligæsa í Anhui-héraði í austurhluta landsins. Talsmaður Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í dag að tvö þúsund og eitt hundrað fuglar hefðu sýkst af veirunni, 550 hefðu drepist og að 45 þúsund fuglum hefði verið slátrað.

Erlent
Fréttamynd

Sex látnir eftir yfirreið Wilmu

Að minnsta kosti sex manns létust þegar fellibylurinn Wilma fór yfir Flórída í gær. Wilma er nú farin aftur út á haf, en enginn fellibylur hefur valdið jafn miklu eignatjóni á Fort Lauderdale svæðinu í meira en fimmtíu ár.

Erlent
Fréttamynd

Íbúar Isabelu ekki í hættu

Eldfjallið Sierra Negra á eynni Isabelu í Galapagos-eyjaklasanum í Kyrrahafi byrjaði að gjósa um helgina með miklum látum. Gosefni úr hinu fimmtán hundruð metra háa fjalli breiddust um stórt svæði en íbúar í nágrenninu eru þó ekki taldir í hættu.

Erlent
Fréttamynd

Tuttugu létust

Þrjár bílsprengjur voru sprengdar nánast samtímis fyrir utan hótel erlendra blaðamanna í Bagdad í gær. Í það minnsta tuttugu manns dóu í sprengingunum.

Erlent
Fréttamynd

Keppast um hylli 300.000 flokkssystkina

"Davíðarnir tveir" í leiðtogaslag brezka Íhaldsflokksins, David Cameron og David Davis, keppast á næstu vikum um hylli hinna 300.000 flokkssystkina sinna. Stuðningsmenn Camerons trúa honum til að geta endurnýjað flokkinn líkt og Tony Blair endurnýjaði Verkamannaflokkinn.

Erlent
Fréttamynd

Allt á huldu um orsakirnar

Nígerísk stjórnvöld reyna nú að finna skýringar á flugslysinu um helgina þegar Boeing 737-þota Bellview Airlines fórst á leið sinni frá Lagos til höfuðborgarinnar Abuja með 117 manns innanborðs. Yfirvöld útiloka ekki að um hryðjuverk sé að ræða þótt það sé talið ólíklegt. Vonast er til að fundur svörtu kassanna svonefndu muni varpa ljósi á málið.

Erlent
Fréttamynd

Sýrlendingar sýni samvinnu

Bandaríkin og Frakkar ætla að beita sér fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krefji Sýrlendinga um fulla samvinnu í rannsókninni á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, ella sæta refsiaðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir bíða enn eftir læknishjálp

Þúsundir manna í fjallahéruðum Pakistans bíða enn eftir að komast undir læknishendur, tveimur vikum eftir jarðskjálftann mikla sem varð meira en 50 þúsund manns að bana.

Erlent
Fréttamynd

Að minnsta kosti tuttugu látnir

Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið og fjölmargir særðust í Bagdad í dag þegar þrjár bílsprengjur voru sprengdar við hótel sem erlendir fréttamenn dveljast einkum á.

Erlent
Fréttamynd

Wilma fer yfir Flórída

Fellibylurinn Wilma fer nú yfir Flórída í Bandaríkjunum og skilur eftir sig slóð eyðileggingar í Mexíkó og á Kúbu. Þetta er áttundi fellibylurinn sem íbúar Flórída fá yfir sig á fjórtán mánuðum.

Erlent
Fréttamynd

Flugvél flaug á hús í Barcelona

Fjórir létust þegar lítil flugvél flaug á fjögurra hæða hús í Barcelona á Spáni síðdegis. Allir sem létust voru um borð í vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Sprengingar við hótel fréttamanna í Bagdad

Að minnsta kosti tólf manns létu lífið þegar þrjár sprengjur sprungu við tvö hótel erlendra fréttamanna í Bagdad í dag. Sprengjurnar sprungu við Sheraton-hótelið og Palestínska-hótelið, sem standa hlið við hlið í miðri borginni.

Erlent