Íþróttir

Fréttamynd

Ponsumót Bjarkanna 2005

Nærri 100 stúlkur á aldrinum 6 til 10 ára öttu kappi á svokölluðu Ponsumóti sem Fimleikafélagið Björk hélt um liðna helgi. Ponsumót er vinamót þriggja félaga, Fimleikafélag Keflavíkur, Fimleikadeild Stjörnunnar og Bjarkanna. Keppt var í 6. þrepi fimleikastigans í áhaldafimleikum.

Sport
Fréttamynd

Red Bull skipta um ökumann

Christian Klien, ökumaður Red Bull í formúlu 1 sem ekið hefur með David Coulthard í fyrstu þremur keppnum ársins, þarf að víkja fyrir Ítalanum Vitantonio Liuzzi í að minnsta kosti þrjú næstu mót.

Sport
Fréttamynd

Rétt að fara á nýja bílinn

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher telur að Ferrari-liðið hafi tekið hárrétta ákvörðun þegar það afréð að nota nýja bílinn í kappakstri helgarinnar.

Sport
Fréttamynd

Yfirráðum Ferrari er lokið

Mike Gascoine, tæknistjóri hjá Toyota-liðinu í Formúlu 1, segir að áskrift Ferrari að meistaratitlum sé lokið.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur FH-inga

Íslandsmeistarar FH sigruðu bikarmeistara Keflavíkur með þremur mörkum gegn engu í deildarbikarnum í Reykjaneshöll í gærkvöld. Tryggvi Guðmundsson lék sinn fyrsta leik með FH og skoraði eitt mark. Ólafur Páll Snorrason og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson voru einnig á skotskónum.

Sport
Fréttamynd

Bætti eigið met í 100 m baksundi

Bandaríkjamaðurinn Aaron Peirsol bætti í gærkvöldi eigið heimsmet í 100 metra baksundi þegar hann synti á 53,17 sekúndum á úrtökumóti bandarískra sundmanna fyrir heimsmeistaramótið í júlí. Peirsol bætti heimsmetið um 28 hundraðshluta úr sekúndu.

Sport
Fréttamynd

BellSouth-mótið stytt vegna veðurs

Mótshaldarar á Bellsouth Classic mótinu í golfi í Duluth í Georgíufylki í Bandaríkjunum ákváðu í gær að stytta mótið í 54 holur. Í gær var loksins hægt að hefja keppni en ekki tókst öllum kylfingum að ljúka við 18 holur. Rigning og rok hefur verið á mótsstaðnum en Bandaríkjamaðurinn Billy Mayfair hefur forystu, er á 4 höggum undir pari eftir 13 holur.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmótið í badminton í gær

Skemmtilegu Íslandsmeistaramóti í badminton lauk í gær og segja má að þau Helgi Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir úr TBR hafi verið sigurvegarar mótsins, því þau unnu bæði tvöfalt, bæði í einliða- og tvíliðaleik karla og kvenna.

Sport
Fréttamynd

Ragnheiður í KR

Ragnheiður Ragnarsdóttir, fjórfaldur Íslandsmethafi í skriðsundi og fjórsundi, hefur ákveðið að ganga til liðs við Sunddeild KR en hún hefur æft og keppt með SH undanfarin fjögur ár.

Sport
Fréttamynd

Clijsters sigraði á Nasdaq-mótinu

Kim Clijsters frá Belgíu sigraði Mariu Sharapovu Rússlandi í úrslitaleik á Nasdaq-mótinu í tennis á Miami í Flórída í gærkvöldi. Clijsters lék nánast ekkert í fyrra vegna meiðsla og um tíma stefndi í að hún yrði að hætta keppni. Hún féll niður í 133. sæti á styrkleikalistanum eftir að hafa verið í fyrsta sæti um tíma. Clijsters hóf að keppa aftur í febrúar og hefur unnið 14 leiki síðan og aðeins tapað einum.

Sport
Fréttamynd

Vilhjálmur og Sólveig vörðu titla

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, Karatefélagi Reykjavíkur, og Sólveig Sigurðardóttir, Þórshamri, vörðu í gær Íslandsmeistaratitla sína í kata í karate. Vilhjálmur Svan varð meistari í fimmta sinn en Sólveg hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari. Breiðablik sigraði í hópkata í karlaflokki en Þórshamar í kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Enn sigrar Broddi

Broddi Kristjánsson er margfaldur Íslandsmeistari í badminton og bætti enn einum titlinum í safnið í gær þegar hann varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik karla, ásamt Helga Jóhannessyni sem hafði mínútum áður tryggt sér titilinn í einliðaleik.

Sport
Fréttamynd

Enn vinnur Renault

Renault-liðið sannaði í gær að árangur liðsins í fyrstu keppnum ársins var engin tilviljun. Spánverjinn Fernando Alonso vann sitt annað mót í röð þegar keppt var í Barein og það sannfærandi.

Sport
Fréttamynd

Broadhurst og Lima efstir

Englendingurinn Paul Broadhurst og Portúgalinn Jose Filipe Lima hafa forystu þegar keppni er hálfnuð á Estoril-mótinu í Portúgal. Þeir eru á átta höggum undir pari og hafa eins höggs forystu á Englendingana Barry Lane og Simon Dyce. Vegna rigningar í morgun var keppni frestað en þá höfðu þeir bestu ekki hafið leik.

Sport
Fréttamynd

Heimsmetið handan við hornið

Kraftlyftingaheimurinn tók eftir því á dögunum þegar ungur Íslendingur "lék sér" með 400 kíló í réttstöðulyftu á æfingu og lyfti þyngdinni fjórum sinnum fyrir viðstadda.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmót í badminton um helgina

Íslandsmótið í badminton hófst í húsakynnum TBR við Gnoðarvog í gærkvöldi. 96 keppendur frá sjö félögum taka þátt í mótinu. Úrslitaleikirnir í meistaraflokki verða á sunnudag.

Sport
Fréttamynd

Elsa og Jakob sigursæl í göngu

Ólafsfirðingurinn Elsa Guðrún Jónsdóttir og Ísfirðingurinn Jakob Einar Jakobsson hafa verið sigursæl á Skíðamóti Íslands sem fram fer á Sauðárkróki. Þau hafa unnið fern gullverðlaun í skíðagöngu. Bæði höfðu mikla yfirburði í keppni með frjálsri aðferð í gær.

Sport
Fréttamynd

Keppt í karate í dag

Íslandsmótið í kata í karate verður í Smáranum í Kópavogi í dag. 44 keppendur frá fimm félögum eru skráðir til keppni en úrslitin hefjast klukkan 16.

Sport
Fréttamynd

Federer í úrslit á Nasdaq-mótinu

Svisslendingurinn Roger Federer sigraði Bandaríkjamanninn Andre Agassi í undanúrslitum á Nasdaq-mótinu í tennis í Miami á Flórída í gærkvöldi. Federer mætir Spánverjanum Rafael Nadal í úrslitum en Nadal vann landa sinn David Ferrer í undanúrslitum.

Sport
Fréttamynd

Veður hamlar keppni á BellSouth

Vegna veðurs hafa kylfingar enn ekki hafið leik á BellSouth Classic mótinu í golfi á Sugarloaf-vellinum í Duluth í Georgíufylki. Mótshaldarar standa frammi fyrir miklum vanda því Masters-mótið hefst á fimmtudag og ef BellSouth-mótinu lýkur ekki fyrr en á mánudag þá fá kylfingar eins og Phil Mickelson litla hvíld fyrir Masters-mótið.

Sport
Fréttamynd

Nýr Ferrari öflugur

Michael Schumacher og Rubens Barrichello hjá Ferrari náðu bestum tíma aðalökumanna á æfingum í morgun, en þeir keppa á nýja bílnum frá liðinu í fyrsta sinn um helgina.

Sport
Fréttamynd

Elsa hlutskörpust í 5 km göngu

Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsfirði, sigraði í 5 kílómetra göngu á Skíðamóti Íslands sem hófst á Sauðárkróki í gær. Elsa Guðrún varð rúmri mínútu á undan Stellu Hjaltadóttur, Ísafirði, sem varð önnur. Sólveg Guðmundsdóttir frá Ísafirði varð þriðja.

Sport
Fréttamynd

Barrichello sáttur við nýja bílinn

Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello er afar ánægður með nýja bílinn hjá liði sínu Ferrari og varar andstæðinga sína við endurkomu liðsins á toppinn

Sport
Fréttamynd

Tua sigraði Griffis

Nýsjálendingurinn David Tua, sem er fyrrum áskorandi í þungavigt, sigraði í dag Bandaríkjamanninn Talmadge Griffis í hnefaleikakeppni sem fram fór í Nýja Sjálandi.

Sport
Fréttamynd

Fjölmargir HM-leikir í gær

Fjölmargir leikir fóru fram í undankeppni HM í gær. Helstu úrslit urðu þau að Englendingar unnu Aserbaídsjan 2-0, Moldavía og Noregur gerðu markalaust jafntefli, Ísrael og Frakkland gerðu 1-1 jafntefli og Úkraína vann Danmörk, 1-0.

Sport
Fréttamynd

Montoya ekki með í Bahrein

Nú hefur verið staðfest að kólumbíski ökuþórinn Juan Pablo Montoya getur ekki keppt fyrir McLaren í Bahrein um næstu helgi.

Sport
Fréttamynd

Lippi reiður Íslendingum

Í <em>La Gazzetta Dello Sport</em> í dag segist Marcello Lippi, þjálfari ítalska landsliðsins, verða reiður þegar hann heyri minnst á Ísland. Lippi kvartar undan grófum leik Íslendinga í vináttuleiknum í gær og segir að þetta hljóti að vera eitthvað persónulegt gagnvart Ítölum og þá sérstaklega honum sjálfum.

Sport
Fréttamynd

Montoya meiddist í tennis

Forráðamenn McLaren-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum hafa staðfest að Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Montoya sjái sér ekki fært um að taka þátt í næstu keppni vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

NFL-leikmaður kærður fyrir ofbeldi

Kæra hefur verið lögð fram á hendur Marvin Harrison, leikmanns Indianapolis Colts í ameríska fótboltanum, fyrir ofbeldisfullt athæfi gagnvart þremur ungum strákum.

Sport