Íþróttir
332 333 334 ›
Sýn Plús í loftið í september Sjónvarpsstöðin Sýn mun fara í loftið með Sýn plús þjónustu í byrjun september. Sýn plús sýnir dagskrá Sýnar klukkutíma síðar. Rásin verður aðgengileg áskrifendum Sýnar á útsendingarsvæði Digital Íslands. Áskrifendur sem greiða áskrift að Sýn allt árið um kring fá Sýn plús án aukagjalds. Sport 13.10.2005 19:37
Lyn skoðar Garðar Jóhannsson Forráðamenn norska liðsins Lyn sem er í fimmta sæti í norsku úrvalsdeildinni hafa enn ekki gert upp við sig hvort þeir bjóði Garðari Jóhannssyni framherja KR samning hjá félaginu. Fulltrúar frá félaginu hyggjast fylgjast með Garðari í leik gegn FH í Landsbankadeildinni á sunudag og í framhaldi af því verður ákvörðun tekinn hvort Garðari Jóhannsyni verði boðinn samningur hjá norska félaginu. Sport 13.10.2005 19:37
Gunnar Berg frá vegna meiðsla Gunnar Berg Viktorsson handknattleiksmaður sem leikur með Króná Östringen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik verður frá keppni í fjóra mánuði vegna axlarmeins. Gunnar var skorinn upp á dögunum og þá kom í ljós að meiðslin voru mun alvarlegri en haldið var í fyrstu. Gunnar Berg mun ekki leika í þýsku deildinni til áramóta , en Króná Östringen vann sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni á nýjan leik á síðustu leiktíð Sport 13.10.2005 19:37
Ný miðjumaður til Fram Johann Karlefjard 21. árs sænskur miðjumaður frá sænska liðinu Örgryte hefur verið lánaður til Fram þar sem eftir lifir leiktíðar í Landsbankadeildinni. Þeim sænska er ætlað að fylla það skarð sem Daninn Kim Nörholt skildi eftir í Safamýrinni, en Nörholt varð að snúa heim vegna meiðsla. Sport 13.10.2005 19:37
Barrichello yfirgefur Ferrari Brasilíski Formúlu 1 ökumaðurinn, Rubens Barrichello, ætlar að yfirgefa Ferrari liðið að þessu keppnistímabili loknu. Barrichello ætlar að ganga til liðs við BAR liðið á næsta tímabili. Sport 13.10.2005 19:37
Vörn Celtic götótt Skoski boltinn byrjaði í gær og Glasgow Celtic heldur áfram að fá á sig mörk. Í gær mættu þeir Motherwell og endaði leikurinn 4-4. Staðan í hálfleik var 3-1 Celtic í vil. Celtic hefur nú fengið á sig níu mörk í tveimur leikjum. Sport 13.10.2005 19:36
Árni hafði betur í Íslendingaslag Það var Íslendingaslagur í norsku úrvalsdeildinni í gær þegar Våleringa, lið Árna Gauts Arasonar, mætti Brann, liði þeirra Ólafs Arnar Bjarnasonar og Kristjáns Sigurðssonar. Árni Gautur og félagar í Våleringa sigruðu í leiknum 2-1. Stefán Gíslason var í liði Lyn sem sigraði Lilleström 1-0. Sport 13.10.2005 19:36
Agassi í úrslit Andre Agassi komst í nótt í úrslit á Mercedes Benz mótinu í tennis þegar hann sigraði Argentínumanninn Julio Ignacio, 6-4 og 6-2. Hinn 35 ára Agassi mætir Gilles Muller frá Lúxemborg í úrslitunum en hann sigraði Slóvakann Dominic Harbati. Sport 13.10.2005 19:36
Fulham tapaði í Bandaríkjunum Í nótt fór fram stjörnuleikurinn í amerísku deildinni í knattspyrnu, MLS. Spilað var við enska liðið Fulham og sigruðu Ameríkanarnir, 4-1. Heiðar Helguson lék ekki með Fulham. Sport 13.10.2005 19:36
Tvö heimsmet í gær Bandaríkjamaðurinn Aaron Peirsol og ástralska stúlkan Leisel Jones settu heimsmet í gær á heimsmeistaramótinu í sundi sem haldið er í Montreal í Kanada. Jones synti 200 metra bringusund á 2 mínútum og 21 sekúndu og bætti heimsmet Amöndu Beard um 72 hundraðshluta. Jones Sport 13.10.2005 19:36
Schumacher á ráspól Þýski ökuþórinn Michael Schumacher verður á ráspól í Formúlu eitt kappakstrinum í Ungverjalandi sem fram fer á morgun. Þetta er í fyrsta sinn á árinu sem Schumacher er á ráspól. Þetta er 64. ráspóll Schumachers á ferlinum, aðeins Ayrton Senna hefur oftar verið í fyrsta sæti í rásröð, eða 65 sinnum. Sport 13.10.2005 19:36
Armstrong tapar Lance Armstrong, sem sigraði í Frakklandshjólreiðunum ekki alls fyrir löngu, tapaði í gær baráttu sinni við dagblaðið <em>Sunday Times</em> um að blaðið mætti birta grein um að Armstrong hefði tekið ólögleg efni. Sport 13.10.2005 19:36
Auðvelt hjá Agassi Andre Agassi komst auðveldlega áfram í fjögurra manna úrslit á Los Angeles tennismótinu sem fer núna fram í Kaliforníu. Agassi sigraði Paradorn Srichaphan frá Taílandi 6-2, 4-6 og 6-4. Þetta er fyrsta mótið sem Agassi tekur þátt í frá því Opna franska meistaramótið var haldið fyrir um tveimur mánuðum. Sport 13.10.2005 19:36
Liverpool mætir Littbarski Í dag var dregið í heimsmeistaramót félagsliða í knattspyrnu. Evrópumeistarar Liverpool lentu í B-riðli ásamt Sydney frá Ástralíu og Deportivo Saprissa frá Kosta Ríka. Með Sydney spilar Dwight York og þjálfari er enginn annar en Þjóðverjinn kunni Pierre Littbarski. Sport 13.10.2005 19:36
Jafnt gegn Dönum Íslenska piltalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, gerði jafntefli við Dani, 29-29, á opna Skandinavíumótinu í Svíþjóð í dag. Íslenska liðið var yfir í hálfleik 17-16. Markahæstir hjá Íslandi voru: Ásgeir Örn Hallgrímsson með 5 mörk, Arnór Atlason 5 og Árni Þór Sigtryggsson. Sport 13.10.2005 19:36
Larry Brown þjálfar Knicks NBA liðið New York Knicks hefur ráðið Larry Brown sem þjálfara liðsins. Larry Brown er nýhættur störfum hjá Detroit Pistons en undir stjórn Browns vann liðið óvænt NBA titilinn 2004 og komst í úrslit á þessu ári. New York vann síðast NBA titilinn 1973 þannig að Brown á mikið verk fyrir höndum. Sport 13.10.2005 19:35
Þrír berjast um hnossið Á setningarathöfn Unglingalandsmótsins í kvöld, sem fram fer í Vík að þessu sinni, mun Björn Bjarndal Jónsson, formaður UMFÍ, tilkynna hvar Unglingalandsmótið árið 2007 verður haldið. Sport 13.10.2005 19:35
Jakob Jóhann í undanúrslit Jakob Jóhann Sveinsson komst í dag í undanúrslit í 200 metra bringusundi á heimsmeistarmótinu í sundi í Montreal, þegar hann varð 13. af 55 keppendum í undanrásum. Hann synti á 2 mín. 15.28 sek. og var aðeins 8/100 úr sek. frá Íslandsmeti sínu. Sport 13.10.2005 19:35
Vassel til Manchester City Enski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Darius Vassel, gekk í morgun frá samningi við Manchester City. City borgar Aston Villa 2 milljónir punda fyrir Vassel sem skorað hefur 6 mörk í 22 landsleikjum. Sport 13.10.2005 19:35
Þórey Edda í 5-7 sæti Þórey Edda Elísdóttir stökk 4 metra og 25 sentimetra í stangarstökki á DN Galan mótinu í frjálsum íþróttum í Stokkhólmi í gærkvöldi. Þórey Edda varð í 5-7 sæti. Heimsmethafinn Jelena Isinbajeva hafði eins og oft áður mikla yfirburði. Hún setti mótsmet þegar hún stö-kk 4 metra og 79 sentimetra. Hún freistaði þess síðan að setja enn eitt heimsmetið en felldi þá 5 metra og einn sentimetra. Sport 13.10.2005 19:35
Genoa dæmt Elsta knattspyrnufélag á Ítalíu, Genoa, var í morgun dæmt til þess að spila í þriðju deild. Genoa vann sér sæti í efstu deildinni í maí þegar liðið sigraði Venezia. Fljótlega eftir að leiknum lauk vöknuðu grunsemdir um að maðkur væri í mysunni og að úrslitum í leiknum hefði verið hagrætt. Sport 13.10.2005 19:35
Örn bætti eigið met Sundkappinn Örn Arnarson úr SH, bætti eigið Íslandsmet í 100 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu í Montreal í Kanada í dag. Örn synti á 50,47 sekúndum en fyrra metið var 50,59 sekúndur. Örn varð þriðji í sínum riðli og 30. sæti af 123 keppendum en hann hefði þurft að koma í mark á 49,73 til að komast í úrslit. Sport 13.10.2005 19:35
Tvö heimsmet í sundinu Í gærkvöldi voru tvö heimsmet slegin á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer í Montreal. Þessi met voru í 50 metra flugsundi karla og 100 metra bringusundi kvenna. Sport 13.10.2005 19:34
Lilleström sigraði Start Lilleström sigraði efsta liðið Start með tveimur mörkum gegn engu í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Þrátt fyrir tapið er Start í efsta sæti deildarinnar með 30 stig. Valerenga og Víking eru í 2.-3. sæti með 27 stig. Sport 13.10.2005 19:35
Real tapaði fyrir botnliðinu Leikmenn Real Madrid riðu ekki feitum hesti frá æfingaleik í Japan í gærkvöld. Madridingar töpuðu með þremur mörkum gegn engu fyrir Tókýó Verdí sem er á botninum í japönsku úrvalsdeildinni. Sport 13.10.2005 19:34
Jakob Jóhann komst ekki í úrslit Jakob Jóhann Sveinsson, sundkappi úr Ægi, komst ekki í undanúrslit í 50 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Montreal. Jakob Jóhann stefndi á þátttöku í undanrásum og taldi að til þess þyrfti hann að bæta Íslandsmet sitt, 28,86 sekúndur um minnst hálfa sekúndu.<font face="Helv"></font> Sport 13.10.2005 19:35
Íslandsmet hjá Erni og Jakobi Örn Arnarson sundmaður setti Íslandsmet í 50 metra flugsundi í undanrásum á heimsmeistaramótinu í sundi í Montreal í dag, en það dugði ekki til að komast í undanúrslit. Örn synti á 24.56 sek.og bætti Íslandsmetið um45 /100 úr sek. Hann varð í 25.-26. sæti af 103 keppendum. Jakob Jóhann Sveinsson setti einnig Íslandsmet.... Sport 13.10.2005 19:34
Alonso sigraði í Þýskalandi Spánverjinn Fernando Alonso sigraði fyrr í dag í Hochenheim Formúlu 1 keppninni í Þýskalandi. Kimi Raikonen hafði haft forystu allan tíma þangað til að McClaren bifreið hans bilaði. Annar var Juan Pablo Montoya og þriðji var Jenson Button. Veldu meira og sjáðu stöðuna í einstaklingskeppni og í keppni bílaframleiðanda. Sport 13.10.2005 19:34
Jón Arnar og Silja með þrjú gull <font face="Times New Roman"> .Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum hófst í gær á Vilhjálmsvelli á Egilstöðum. Jón Arnar Magnússon úr FH varð þrefaldur Íslandsmeistari í gær. Jón Arnar sigraði í 110 m grindahlaupi, stangastökki. og langstökki. Silja Úlfarsdóttir sigraði einnig í 3 greinum. </font> Sport 13.10.2005 19:34
Armstrong sigraði 7. árið í röð Bandaríkjmaðurinn Lance Armstrong, hrósaði sigri í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France 7. árið í röð. Armstrong hélt fengnum hlut í dag og varð 4 mín. og 40 sek. á Ítalanum Ivan Basson, sem varð annar og 6 mín. og 21 sek. á undan Þjóðverjanum Jan Ullrich, sem varð þriðji. Sport 13.10.2005 19:34