Gunnar Bragi Sveinsson

Fréttamynd

Bóluefnavandi ríkisstjórnarinnar

Þingflokkur Miðflokksins hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman til að ræða þá alvarlegu stöðu sem nú er uppi varðandi bólusetningu landsmanna vegna COVID 19.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað ætlar ríkisstjórnin að láta sauðfjárbændur standa lengi á brúninni?

Ráðherra landbúnaðarmála hefur vart virt bændur viðlits, hvað þá hlustað á varnaðarorð þeirra. Það er löngu ljóst að landbúnaðarráðherra ræður ekki við hlutverkið og því þarf að færa lausn þessa máls frá ráðherranum og það fyrir löngu. Bændur hafa bent á lausnir og mörg fordæmi eru erlendis frá fyrir því að stjórnvöld komi matvælaframleiðslu til aðstoðar.

Skoðun
Fréttamynd

Órökstuddar fullyrðingar formanns Neytendasamtakanna

Ólafur Arnarson, nýr formaður Neytendasamtakanna skrifaði opið bréf í vikunni til mín og annarra þingmanna þar sem að hann hvetur okkur til að falla frá "beinni aðför að íslenskum neytendum og heimilum landsins“ - en þar vísar hann til 100 milljóna króna framlags á fjáraukalögum sem ætluð er til markaðssetningar á íslenskum sauðfjárafurðum.

Skoðun
Fréttamynd

Reiknum nú rétt fyrir heimilin

Hagstofan hefur vanreiknað vísitölu neysluverð í hálft ár. Vegna þessara mistaka er upplagt að okkar mati að endurskoða þau viðmið sem vísitalan er reiknuð út frá. Okkur langar í þessu samhengi að minnast á þingsályktunartillögu sem Framsóknarmenn lögðu fram í vor.

Skoðun
Fréttamynd

Framsókn og verðtryggingin

Framsóknarflokkurinn hefur verið skýr í afstöðu sinni til verðtryggingar, að hana beri að afnema af neytendalánum. Öll sáum við hversu mikil áhrif verðtryggingarinnar voru í hruninu. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar varði hag sparifjáreigenda en gætti ekki að þeim sem fjárfest höfðu í eignum, en fasteign er sú sparnaðarleið sem flestir kjósa fyrir verðtryggt lánsfé. Flestir þekkja framhaldið.

Skoðun
Fréttamynd

Pylsuvagn á aðventu í Tókýó

Nýlega birtust fregnir af því að í hillum verslana í New York væri nú aftur að finna íslenska bjórinn Einstök sem þaðan hafði horfið tímabundið eftir bráðræðislega ákvarðanatöku í ráðhúsinu við Tjörnina. Á komandi aðventu verður alíslenskum pylsuvagni komið fyrir í Tókýó og í Finnlandi eru þarlendir orðnir heimsins mestu aðdáendur íslenska skyrsins

Skoðun
Fréttamynd

Ný heimsmarkmið

Í dag, föstudaginn 25. september 2015, hefst fundur í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna, þar sem samþykkt verða ný markmið um sjálfbæra þróun, eða heimsmarkmiðin, til styttingar. Markmiðin munu gilda fyrir öll 193 aðildarríki SÞ – líka Ísland – til ársins 2030.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf til 10. bekkjar Salaskóla

Kæru nemendur í 10. bekk Salaskóla. Í vor áttum við frábæran fund í skólanum ykkar. Þið kynntuð fyrir mér ykkar sýn á drög að nýjum markmiðum um sjálfbæra þróun, sem var þá verið að ræða í Sameinuðu þjóðunum í New York.

Skoðun
Fréttamynd

Al­þjóð­legi saka­mála­dóm­stóllinn á betra skilið

Í dag höldum við upp á Alþjóðlegan dag réttlætis. Þennan dag árið 1998 var Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn stofnaður – merkur áfangi í baráttunni gegn refsileysi fyrir verstu glæpi mannkyns: hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði.

Skoðun
Fréttamynd

Afnám hafta er hafið

Fyrir síðustu kosningar voru tvö af helstu kosningamálum Framsóknarflokksins að leiðrétta fasteignaskuldir heimilanna og aflétta höftum þannig að svigrúm skapaðist til að verja og bæta efnahagslega stöðu landsmanna.

Skoðun
Fréttamynd

Horft yfir farinn veg

Nú eru tæp tvö ár eru liðin síðan Framsókn tók við völdum. Á þeim tíma höfum við uppfyllt eitt helsta kosningaloforð okkar um að leiðrétta verðtryggð fasteignaveðlán. Við höfum lagt ríka áherslu á að bæta hag heimilanna, minnka greiðslubyrði og auka ráðstöfunartekjur. Þau 99,4% umsækjenda sem fengu umsókn sína samþykkta 23. desember síðastliðinn hafa samþykkt leiðréttinguna.

Skoðun
Fréttamynd

Hvar eru karlarnir?

Í dag, 25. nóvember, er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi.

Skoðun
Fréttamynd

Styðjum Alþjóða björgunarsveitina

Í dag, 17. október, kemur fjöldi íslenskra og erlendra sérfræðinga í björgunarmálum saman á ráðstefnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björgun 2014. Þetta er í tólfta sinn sem ráðstefnan er haldin en hún er orðin mikilvægur alþjóðlegur vettvangur um björgunarmál,

Skoðun
Fréttamynd

Útverðir Íslands

Íslendingar hafa ávallt verið víðförul þjóð og er vandfundinn sá kimi jarðar þar sem við höfum ekki stungið niður fæti við leik, nám eða störf.

Skoðun
Fréttamynd

Til hagsbóta fyrir heimilin

Í dag, 1. júlí, tekur gildi fríverslunarsamningur Íslands og Kína en Ísland var fyrst ríkja Evrópu til að undirrita fríverslunarsamning við Kína.

Skoðun
Fréttamynd

Landið er dýrmæt auðlind

Um einn milljarður jarðarbúa býr í dreifðum byggðum þróunarríkja þar sem flestir byggja lífsviðurværi sitt á sjálfsþurftarbúskap eða eru smábændur. Dýrmætasta auðlindin er frjósamur jarðvegur og landeyðing er skæður óvinur.

Skoðun
Fréttamynd

Orka, fiskur og jafnrétti

Alþjóðleg þróunarsamvinna er ein af meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu. Við leggjum áherslu á stuðning við fátækustu ríki heims og fátækt fólk í ríkjum þar sem gæðum er misskipt.

Skoðun
Fréttamynd

Norrænt samstarf í öryggismálum

Norræn samvinna byggir á gömlum merg en á síðustu árum hefur samstarfi í utanríkis- og öryggismálum vaxið fiskur um hrygg. Í þessu sambandi mörkuðu skýrsla Thorvalds Stoltenbergs um aukið samstarf landanna á þessu sviði og norræn samstöðuyfirlýsing um gagnkvæma aðstoð á hættu- og neyðartímum tvímælalaust þáttaskil.

Skoðun
Fréttamynd

Norræn samstaða í hvikulum heimi

Áhrif loftslagsbreytinga og annarrar hnattrænnar þróunar skapa heimsbyggðinni sífellt nýjar áskoranir og tækifæri. Norrænu ríkjunum hefur tekist vel til að bregðast við þessum breytingum eins og fjölmargar rannsóknir sýna. Sá árangur Norðurlandanna hefur verið öðrum áhugaverð fyrirmynd en við getum gert enn betur.

Skoðun
Fréttamynd

Í sókn á norðurslóðum

Breið samstaða er á Alþingi um að hagsmunir Íslands á norðurslóðum séu eitt af forgangsmálum utanríkisstefnunnar.

Skoðun
Fréttamynd

„Mennt er máttur“

Menntun þjóðar er einn besti mælikvarðinn sem til er á þróun og framfarir. Þjóð sem er vel menntuð er nær örugglega vel stödd efnahagslega. Ríkari þjóðir heims tryggja öllum grunnmenntun

Skoðun
Fréttamynd

Verðtryggingin ólögleg?

"Framsóknarflokkurinn vill að stökkbreytt verðtryggð húsnæðislán verði leiðrétt. Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram ítarlegar tillögur til lausnar skuldavanda heimila. Afstaða Framsóknarflokksins er eindregið sú að ekkert geti réttlætt að lánþegar verðtryggðra húsnæðislána sitji einir uppi með afleiðingar þess að lánin stökkbreyttust af völdum efnahagshruns.“

Skoðun
Fréttamynd

Keyrum þetta í gang

Þúsundir Íslendinga vinna nú erlendis og þúsundir munu á næstu árum klára háskólanám hérlendis og erlendis. Margir þeirra er vinna utan landsteinanna eru sérfræðingar á einhverju sviði, læknar, hjúkrunarfólk, rafvirkjar, píparar o.s.frv. Flestir þeirra hafa menntað sig og hlotið reynslu á Íslandi og því mikil þjóðhagsleg verðmæti í þessu fólki.

Skoðun
Fréttamynd

Hagstjórnarmistök að lækka skuldir?

Í liðinni viku komst leiðarahöfundur Fréttablaðsins svo skemmtilega að orði að það væru hagstjórnarmistök að lækka skuldir íslenskra heimila. Þá hélt hann því einnig fram að slík aðgerð kostaði ríkissjóð alltof mikið án þess að leggja fram nokkra útreikninga fyrir þeirri fullyrðingu.

Skoðun
Fréttamynd

Öflugt atvinnulíf er forsenda velferðar á Íslandi

Öflugt atvinnulíf er forsenda þess að Ísland verði áfram eftirsótt til búsetu og heimsókna. Efling atvinnulífsins verður best tryggð með samtali og samvinnu stjórnvalda og þeirra sem eiga og reka stór og smá fyrirtæki. Hvert einasta starf skiptir máli og hver einasta króna sem framleidd er telur. Möguleikar Íslands eru nánast óþrjótandi ef samstarf þessara aðila er með eðlilegum

Skoðun
Fréttamynd

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðunni um allt sem aflaga fer á Alþingi. En sjaldan veldur einn þá tveir deila. Staðreyndin er sú að dagskrá Alþingis er á valdi ríkisstjórnarinnar í krafti meirihlutans og embættis forseta Alþingis.

Skoðun
Fréttamynd

Kafteinn Evrópa og þjóðernishyggjan

Það er freistandi fyrir óvandaða stjórnmálamenn, fræðimenn og aðra sem telja sig þurfa að koma óorði á pólitíska andstæðinga að kenna þá við þjóðernisöfgar. Þetta bragð er þekkt í ríkjum þar sem Evrópuaðild er rædd, þ.e. að talsmenn ESB-aðildar reyna að mála andstæðinga sína upp sem þjóðernisöfgamenn.

Skoðun
  • «
  • 1
  • 2