Skattar og tollar

Fréttamynd

22 þúsund á mánuði

Ef allir launþegar nytu skattaafsláttar á borð við þann sem sjómenn njóta myndi hagurinn vænkast.

Innlent
Fréttamynd

Áhyggjur vegna skattalækkana

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skattabreytingar að því er fram kemur í ályktun fundar stjórnar félagsins í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar dregur í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana.

Innlent
Fréttamynd

Vilja hærri skatta á áfengi

Hækka þarf skatta á áfengi í því markmiði að draga úr neyslu þess. Þetta er sameiginleg niðurstaða heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum, eftir að hafa fjallað um áfengismál á sérstökum aukafundi í Kaupmannahöfn. Fundinum lauk í gær. 

Innlent
Fréttamynd

10 þúsund minna í vasann

Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjörtímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur maður sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt.

Innlent
Fréttamynd

Samskráning í virðisaukaskattsskrá

Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Frumvarpið heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá.

Innlent
Fréttamynd

Útgjöld að aukast

Ríkissjóður stendur vel, í það minnsta mun betur en í fyrra. Ekki er þó hægt að þakka ríkisstjórninni fyrir aðhald í fjármálum því útgjöldin eru að aukast. Það sem gerir buddu Geirs Haarde fjármálaráðherra svo þunga eru skatttekjurnar sem aukast sífellt samfara meiri neyslu og vaxandi hagvexti. 

Innlent
Fréttamynd

Útsvar hækki um 1%

Þingflokkur vinstri-grænna hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér heimild til sveitarfélaga til að hækka útsvar um eitt prósentustig úr 13,03% í 14,03%.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn stoppar matarskattslækkun

Flokkar sem fengu 82% atkvæða í kosningum eru fylgjandi lægri matarskatti. Framsókn er á móti og útlit fyrir að málið sofni á þingi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir þó að lækkun komi til greina ef "svigrúm" gefist. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Óréttlát stimpilgjöld

Margret Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar lagði fram fyrirspurn til fjármálaráðherra á Alþingi í gær þar sem hún spurði um álit ráðherrans á lækkun eða afnámi stimpilgjalda. Í máli þingmannsins kom fram að Samfylkingin teldi að almenningur nyti ekki vaxtalækkunar á húsnæðislánum sem skyldi vegna "óréttlátrar skattlagningar í formi stimpilgjalda".

Innlent
Fréttamynd

Halldór skýrir skatta

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda.

Innlent
Fréttamynd

Þriðjungur greiðir ekki skatt

35% fólks greiðir engan tekjuskatt og nýtur þar með ekki 1% tekjuskattslækkunar sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu, samkvæmt upplýsingum yfirmanns efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra sagði hins vegar að tekjuskattslækkunin gagnaðist "nærri öllum" enda borguðu meir en 80% tekjuskatt.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur fólk til meiri vinnu

Deilt var á Geir Haarde fjármálaráðherra í umræðum um fjárlagafrumvarpið á Alþingi í dag. Geir var sakaður um að hygla hálauna- og stóreignafólki með skattalækkunum en láta hina sitja eftir. Ráðherra svaraði því til að þessu fyrirkomulagi væri ætlað að hvetja fólk til að vinna meira.

Innlent
Fréttamynd

Skattalækkanir í lok kjörtímabils

Landsmenn þurfa að bíða þar til í lok kjörtímabilsins eftir mestum hluta skattalækkana, að því er fram kom í stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Helstu boðberar skattalækkana úr hópi stjórnarliða virðast ætla að láta sér það lynda. 

Innlent
Fréttamynd

Skattar meðallauna lækka um 30.000

Einstaklingur með eina milljón í laun sparar rúmar 270.000 krónur á skattalækkun ríkisstjórnarinnar miðað við útreikninga Alþýðusambands Íslands. Framkvæmdastjóri ASÍ telur lækkunina lítt gagnast tekjulágum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

40% tekna til ríkis og bæja

Það stefnir í að hið opinbera jafni met sitt í álögum á landsmenn á þessu ári. Nú er áætlað að rétt um fjörutíu prósent af öllum tekjum landsmanna fari til ríkis og sveitarfélaga í formi skatta. Stjórnvöld hyggjast þó létta skattbyrðina á næstu árum.

Menning
Fréttamynd

Lægri matarskatt og betri skóla

Samfylkingin kynnti áherslur sínar í þingbyrjun í Alþingishúsinu í gærdag. Ef hagvaxtarspár ganga eftir ætlar flokkurinn að beita sér fyrir að hagnaðurinn verði til þess að matarskattur verði lækkaður og að fjármagn til skólanna verði aukið til muna.

Innlent
Fréttamynd

Heimsmet í samneyslu

Ef hið opinbera gáir ekki fljótlega að sér mun skattbyrði aukast og afkoma fyrirtækja versna. Samneysla sem hlutfall af landsframleiðslu er nú hæst á Íslandi af öllum OECD ríkjunum.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið tekur 84% af vodkaflösku

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eiga Íslendingar heimsmet í skattlagningu á áfengi. Samkvæmt sundurliðuðum kostnaðartölum frá ÁTVR fer hlutur ríkisins í einstakri vörutegund upp í allt að 85% af verði.

Innlent
Fréttamynd

Heimsmet í áfengissköttum

"Við eigum heimsmetið," segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, um áfengisskatta á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Skattar á sterkt vín og léttvín eru hvergi hærri en hér. Aðeins Norðmenn eru fyrir ofan okkur í álagningu á bjór.

Innlent
Fréttamynd

Skattakóngur Íslandssögunnar

"Þetta var ansi bólginn dagur," sagði Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans og skatthæsti einstaklingur Íslandssögunnar, samkvæmt álagningarseðlum skattstjóraembættanna sem birtir voru í gær. Björgólfur greiðir 295 milljónir í opinber gjöld, sem að mestu er fjármagnstekjuskattur vegna sölu og kaupa á eignarhlutum í fyrirtækjum sem eru skráð erlendis.

Innlent